Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Leigubílstjóri barinn til bana – Var réttur maður hengdur fyrir glæpinn?

Tveir kanadískir hermenn ákváðu að fara í smá göngutúr enda ekkert gaman að hanga á Fort Osborne bækistöðinni í Winnipeg og bíða eftir að komast í frí sem var á næsta leyti. Það var ísköld súld og því fínt að ganga á sig hita. Þegar þeir höfðu gengið eftir Kenaston breið­stræti í um kílómetra suður af bækistöðinni tóku þeir eftir dökkbláum leigubíl, Chrystler, sem virtist fastur í aur. Við nánari athugun tóku þeir eftir karlmanni sem lá á jörðinni um fimm metrum frá bílnum. Á höfði hans voru átta djúpar rispur. Hann var látinn.

Eftir­farandi texti er frá Vísi þann 8. maí, 1946 og fjallar um morðið á Jóhanni Johnson, leigu­bílstjóra sem flutti vestur um haf árið 1922. Árið 1937 stofnaði hann sitt eigið leigubíla­fyrirtæki.

Vestur – Íslendingur myrtur

Í síðustu blöðum Lögbergs og Heims­kringlu er borizt hafa hingað, er skýrt frá því, að Islendingurinn Jóhann Johnson, bifreiðar­stjóri í Winnipeg, hafi verið myrtur nýlega,
Ók Jóhann heitinn bifreið hjá United Taxi-félaginu, en hann var einn af eigendum
þess.

Þann 31. marz s. 1. leigðu tveir menn bifreið Jóhanns. Er þeir voru komfiir skammt
út fyrir borgina, réðust þeir á hann og lömdu hann til bana. Höfuðkúpa Jóhanns
brotnaði og lézt hann samstundis.

Jóhann heitinn var 45 ára að aldri, fæddur hér i Reykjavík. Hann átti sex systkini. Eru tvö þeirra búsett vestan hafs, tvö í Danmörku og loks tvær systur hans hér á Islandi.

Er siðast fréttist, var ekki búið að hafa hendur í hári tilræðis­mannanna.

En þar með var sagan ekki sögð, hún var rétt að byrja.

Í brjóst­vasa Jóhanns fannst veski sem innihélt svolítinn pening en ódæðis­maðurinn eða mennirnir virðast hafa snúið báðum vösunum á buxum Jóhanns á rönguna, sjálfsagt í leit að pening. Svo virtist sem líkið hefði verið dregið út úr bílnum og tilraun gerð til að aka bílnum á brott. Hann hafi hins vegar verið fastur í leðjunni. Þá fundust dekkjaför eftir stóran bíl, sennilega vörubíl sem einnig virtist hafa fest sig en náð að losa sig með herkjum. Kvenmanns­fótspor fundust skammt frá líkinu og svo aftur á öðrum stað en það virtist sem kona hafi hlaupið í burtu frá morð­staðnum, aðeins klædd í annan skóinn. Þá fannst morð­vopnið vafið í dagblað og bundið fyrir en það reyndist 45 sentimetra langur bolti, notaður til brúar­smíða.

Dregur til tíðinda

Skóförin lágu í átt að nokkrum mjólkur­búum í nágrenninu þannig að eftir að lögreglan ræddi við mjólkubændurna sem þar bjuggu, tókst þeim að hafa hendur í hári konunnar sem átti sporin. Var hún handtekin og látin dúsa í fangelsi í mánuð en vitnis­burður hennar átti eftir að verða til þess að karlmaður var hand­tekinn og dæmdur fyrir morðið.

Morðið á Jóhann vakti mikla athygli í Kanada en þetta var eitt af þó nokkrum morðum á leigu­bílstjórum sem höfðu komið upp undan­farið í Kanada. Á meðan á rann­sókninni stóð á morði Jóhanns neituðu margir leigu­bílstjórar að vinna kvöld og nætur­vaktir og þeir sem gerður það, vopnuðu sig. Eftir að maðurinn sem konan dular­fulla benti á, var hand­tekinn róuðust leigubílstjórarnið nokkuð.

Samkvæmt vitnis­burði skólausu konunnar hafði hún haldið partý heima hjá sér, nóttina sem Jóhann var myrtur. Í partýinu drakk hún ótæpilega og lenti í rifrildum við eiginmann sinn, áður en hún stormaði út úr húsinu einhverntíman fyrir þrjú um nóttina. Sá grunaði var í partýinu en fór úr því stuttu á eftir konunni.

Konan sagði að hún hafi hitt þann grunaði samkvæmt samkomu­lagi, stutta vegalengd frá húsi hennar. Saman stoppuðu þau leigubíl, í þeim tilgangi að fara heim til mannsins. Sagði hún að þau hafi hins vegar lent í rifrildum og að hún hefði stoppað leigu­bílinn og ákveðið að ganga heim, frá þeim stað sem fyrstu skóförin fundust. Lýsing hennar á leigu­bílnum og bílstjóra hans passaði ekki við Jóhann og Chrystlerinn hans.

Misvísandi vitnisburður

Í kjölfarið á þessum vitnis­burði gaf hún slatta af sífellt flóknari og misvísandi full­yrðingum en ein þeirra innsiglaði örlög hins grunaða. Hún sagði að hann hefði komið aftur með leigu­bílnum, fáeinum mínútum eftir að hafa hleypt henni út og þegar hún nálgaðist bílinn hafi hún fyrst séð morð­vopnið á gólfinu, svo séð þann grunaða reiða vinsti hendinga til höggs fyrir aftan ökumanninn. Að lokum hafi hún séð bílstjóran liggja yfir framsætið. Á þessu augna­bliki sagðist hún hafa hlaupið af vettvangi og við það misst annan skóinn.

Seinna gaf konan nýjan vitnis­burð þar sem hún hélt því fram að maðurinn sem var aftur í leigu­bílnum hafi ekki verið sá grunaði, heldur ókunnugur maður með hatt. Sjálfur neitaði sá grunaði að hafa deilt leigubíl með konunni, hann hafi neitað að deila leigubíl með konunni, hanni hafi farið einn í leigubíl og farið heim til sín strax eftir partýið.

Var maðurinn dæmdur sekur fyrir rétti en hann áfrýjaði en var svo aftur dæmdur sekur, þrátt fyrir fáar sannanir.

Þau tvö ár sem maðurinn sat inni og beið örlaga sinna, breyttist almanna­álitið umtals­vert, manninum í hag. Hann hafði aldrei áður brotið af sér og var stríðs­hetja, hafði særst í átökum í Evrópu. Nefnd sem meðal annarra hafði lögfræðinga innanborðs, safnaði yfir 10.000 undir­skriftum þar sem dómstólar voru hvattir til að ógilda dóminn, vegna skorts á sönnunar­gögnum. Á það var ekki hlustað og var maðurinn hengdur tveimur árum eftir morðið á Jóhanni.

Heimild: http://www.taxi-library.org/canada/johnson-jo.htm

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur