Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ungur úkraínskur hælisleitandi fannst meðvitundalaus á enskri strönd: „Hún var yndisleg stelpa“

Ströndin þar sem stúlkan fannst.
Ströndin þar sem stúlkan fannst. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Úkraínsk skóla­stúlka lést á spítala eftir að hafa fundist meðvit­undalaus á ströndinni í Devon­skíri í Englandi. Hún var hælis­leitandi sem flúði stríðið í heima­landinu ásamt móður sinni.

Lögreglu barst tilkynning um að unglingur, sem bjó ásamt móður sinni hjá fjöl­skyldu frá Devon­skíri í Englandi, væri týnd í sjávar­þorpinu Dawlish, á laugardags­kvöld.

Leit lögreglu­þyrlna og strand­gæslunnar að stúlkunni var árángur en hún fannst meðvit­undalaus á ströndinni og var flutt með sjúkra­flugi til Royal Devon and Exeter sjúkra­hússins, þar sem hún lést stuttu síðar.

Unglings­stúlkunni hefur verið lýst af samnemendum sem „góðri og umhyggju­samri manneskju“. Einn þeirra sagði: „Hún var í skólanum mínum. Þetta er svo sorglegt, hún var yndisleg stelpa.“

Annar nemandi bætti við: „Við vorum bara að fá fréttirnar í skólanum mínum af því að hún var líka nemandi hér og okkur finnst þetta öllum hryllilegt. Hún var svo góð og umhyggjusöm manneskja og það er svo sorglegt að hún sé dáin.“

Í augna­blikinu er andlát hennar meðhöndlað sem óútskýrt en lögreglan biðlar nú til einhvers sem á CCTV eða dyrabjöllu­myndskeið, að koma fram með þau.

Bæjarbúar í áfalli

Bæjarbúar í Dawlish eru brugðið yfir þessum skelfi­lega atburði og vilja fá svör.

Carol Evans, 72 ára sjálfboða­liði í The Children´s Society búðinni í Dawlish sagði: „Ég er alveg skelfingu lostin, mér finnst þetta hræðilegt. Ég vona að það hafi ekki verið einhver annar sem olli því. Ég held að fólk yrði mjög brugðið ef svo reynist. Ég hef unnið hér í yfir 10 ár. Maður kynnist öllum hér. Ég þekki 99 prósent allra í Dawlish. Við höfum vingast við fjöldi Úkraínskra fjöl­skyldna hér. Margir þeirra hafa þó farið aftur til Úkraínu.“

Hjóla­búðar­eigandinn Radyk Modrzynsk sagði: „Ég er í sjokki því dóttir mín er einnig 14 ára. Ég mun pottþétt ræða við hana um stöðuna þegar hún kemur heim úr skólanum. Þetta hefur vakið hjá mér áhyggjur yfir hennar öryggi líka.“

Þá lýsti eigandi verslunnar yfir áhyggjum sínum af fjöl­skyldu stúlkunnar og sagðist hafa orðið fyrir „áfalli“ þegar hann heyrði fréttirnar. Bætti hann við: „Ég á unglinga líka og ég er bara í áfalli yfir þessu. Við höfum áhyggjur af fjöl­skyldu grey stúlkunnar.“

Einnig tjáði starfs­maður póstsins sig um málið: „Eftir allt það sem þessar aumingja úkraínsku fjöl­skyldur hafa gengið í gegnum í heima­landinu. Þetta er mjög hræðilegt að heyra.“

Mark Barber, kokkur á barnum í Dawlish sagði: „Ég væri til í aðeins betri upplýsingar því þær eru nánast engar. Ég hef mín eigin börn sem ég hef áhyggjur af. Ég komst að þessu í fréttunum. Mér er órótt yfir því að þetta sé eitthvað sem ég þurfi að hafa áhyggjur af. Við sjáum oft úkraínskar fjöl­skyldur koma hingað á barinn til að borða. Þetta eru miklar sorgar­fréttir.“

Karlkyns viðskipta­vinur á barnum, sem keyrði að landa­mærum Póllands og Úkraínu í byrjun stríðsins til að flytja hjálpar­gögn til Úkraínubúa, sagði: „Það sem ég sá þar braut hjarta mitt. Ég man þegar ég gaf litlum dreng bangsa en hann hafði glatað öllu. Varðandi stúlkuna, þá sá hún margt í Úkraínu og kom hingað til að lifa betra lífi og þetta gerist fyrir hana. Þetta er hræðilegt.“

Von er á niður­stöðum krufningar á fimmtudaginn.

Það var Daily Mail sem fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs