Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Eitt furðulegasta sakamál Íslandssögunnar – Tveir vegfarendur komu að Gunnari látnum

„Leigubílstjóri fannst í morgun með skotsár í hnakka, þar sem hann sat í bifreið sinni með vélina í gangi á Laugalæk á móts við Lauga­lækjar- skóla, og sneri bíllinn í suður, að nýju sund­laugunum. — Þegar lögreglan kom á staðinn, virtist sem maðurinn væri með lífsmarki, en þegar komið var með hann á slysa­varðstofuna, reyndist hann látinn. Ekkert skotvopn fannst á staðnum, en hins vegar tómt skothylki, og því auðsætt, að maðurinn hefurverið myrtur.

Lögreglunni barst tilkynning í morgun um kl. 7,15 í síma, að eitthvað myndi athuga­vert við mann, sem sæti 1 bílstjórasæti leigubíls frá Hreyfli. Maðurinn, sem gerði lögreglunni viðvart, taldi þá, að bílstjórinn væri látinn.

Hins vegar sýndist lögreglumönnunum bílstjórinn hreyfa sig, þegar þeir komu á staðinn. Var hann fluttur á slysa­varðstofuna, en það var þá um seinan,“ sagði í forsíðu­frétt frétta­blaðsins Vísis þann 18.janúar árið 1968.

Leigu­bílstjórinn var hinn 43 ára Gunnar Sigurður Tryggvason. Tveir vegfer­endur komu að Gunnari látnum í leigubíl sínum og tilkynntu til lögreglu. Fljótt var ljóst að um morð væri að ræða.

Bíll Gunnars var í gangi og ljósin á þegar lögregla kom á vettvang en ringt hafði mikið sem gerði rann­sóknarfólki erfitt með að finna vísbendingar.

„Um síðustu ferðir Gunnars er það vitað, að hann var kvaddur til húss við Skálholtsstíg til þess að taka þar farþega um kl. 3.15 í fyrrinótt. Farþeginn hefur verið yfir­heyrður og segist hann hafa látið Gunnar aka sér beina leið heim til sín og styður kona farþegans þann framburð. Bílstjóri frá Hreyfli segist hafa séð bifreið Gunnars við Hreyfils­staurinn á mótum Sundlauga­vegar og Hrísateigs um kl. 4, en Gunnar hafi verið farinn frá staurnum, þegar leigubílstjórinn ók þar fram hjá fimm mínútum síðar. Annar leigubílstjóri hefur gefið sig fram, sem telur sig hafa séð bifreið Gunnars aftur við staurinn kl. 4.40 til kl. 4.45. Kann því einhver að hafa fengið Gunnar í akstur á tíma- bilinu frá kl. 4.05 til kl. 4.40,“ sagði í Vísi, degi eftir morðið.

Gunnari var lýst sem góðum og reglu­sömum einstaklingi, hann bjó með föður sínum. Bróðir Gunnars sagði í viðtali eftir málið að hann gæti ekki hugsað sér að Gunnar ætti neina óvini eða að það væri neinn sem vildi gera honum neitt illt. Leigu­bílstjórar hjá Hreyfli tóku sig saman og buðu 100 þúsund krónur fyrir upplýsingar um morðingja Gunnars.

Þrátt fyrir mikla rannsókn leið árið 1968 án nokkura vísbendinga um hver hefði getað orðið Gunnari að bana, alveg þangað til í mars árið 1969:

„Rannsóknarlögregla virðist konin á rétta sporið til að upplýsa morðið á Gunnari Tryggva­syni leigubílstjóra. Maður einn hefur nú verið hand­tekinn, grunaður um morðið. Er þetta leigubílstjóri og fannst byssa af sömu gerð og morðið er talið framið með í hanzkahólfi á bíl leigubilstjórans. Bílstjóri þessi var um árabil starfs­maður á hóteli einu í borgnni og var mjög hand­genginn hótelstjóranum. Hótel­stjórinn átti eitt mesta byssusafn í eigu íslendings en svo gerðist þaö fyrir alllöngu síðan að byssa hvarf úr safninu, fágæt byssa, sem talið er að sé ekki f eigu annarra manna hérlendis. Með þessari byssu­tegund er talið að Gunnar heitinn Tryggvason hafi verið skotinn.

Hinn grunaði var af einhverjum ástæðum kallaður fyrir í sambandi við rannsókn á morðinu. Bar hann þá að hann ætti ekki byssu ög alls ekki af þeirri gerð sem um var að ræða. Nú mun hann hins vegar hafa gefið fáránlega skýringu á því hvers vegna byssan fannst í fórum hans,“ sagði í frétt Vísis þann 10.mars árið 1969. Hjón sem keyptu legubíl mannsins fundu byssuna þegar þau þrifu bílinn. Þegar maðurinn kom og ætlaði að sækja eigur sínar neituðu hjónin að láta hann hafa byssuna og leituðu til lögreglu.

Maðurinn neitaði sök en var settur í gæslu­varðhald. Byssan var send í rannsókn hjá bandarísku alríkis­lögreglunni og var þar staðfest að um sömu byssu var að ræða og var notuð í morðinu á Gunnari. Maðurinn sagðist hafa stolið byssunni til að selja hana, hann var sýknaður í dómi fyrir morðið á Gunnari. Enn í dag telst málið vera óleyst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur