Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum – Hann var í rauninni að segja mér að þetta væri búið

Steindór
Steindór

Daníel Örn Sigurðsson, sagði sögu sína í helgar­viðtali Mannlífs. Hann talar um dauðann og sorgina og um hálf­bróðir sinn sem framdi sjálfs­morð.

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá Daníel enda rósir almennt með þyrna. Það sama má segja um einn bróður hans, Steindór, sem var þremur árum yngri. Daníel er elstur bræðranna. Þeir voru fjórir í allt. Nú eru þeir þrír á lífi. Þeir Steindór voru hálf­bræður. Sammæðra. Allir eru hálf­bræður Daníels en þeir tveir yngstu eru þó albræður.

„Steindór dó 13. júní árið 2018. Hann var búinn að vera í gríðar­lega mikilli fíkniefna­neyslu alveg frá því hann var 13 ára. Hann fór sínar eigin leiðir. Hann var rosalega ævintýra­gjarn en hann var á sama tíma ofsalega hlédrægur. Rosalega skrýtinn persónu­leiki. En hann var flug­gáfaður. Rosalega gáfaður strákur. Þetta var svo dýrt dauðsfall af því að hann var svo gáfaður. Og hann var svo klár. Hann var svo áhrifa­gjarn. Rosalega áhrifa­gjarn. Alveg svakalega. Og átti mjög auðvelt með að verða bara undir áhrifum. Hann leiddist fljótt út í viðurkenningu einhvers staðar annars staðar.“

Steindór Smári

13 ára í neyslu.

„Þá var hann byrjaður að reykja hass en hann byrjaði að neyta kókaíns þegar hann var 16 ára og hann var byrjaður að sprauta sig 19 ára svo sem með læknadópi, kókaín og amfetamíni. Hann var orðinn svo sárþjáður sprautu­fíkill að það var orðið erfitt fyrir hann að finna æð. Hann sprautaði sig þangað til hann lést 32 ára.

Ég fékk að vita rosalega mikið eftir dauðsfall hans sem var ofboðs­lega sárt af því að hann sagði öðrum að hann langaði til að verða eins og stóri bróðir sinn. Eins og ég. Þetta vissi ég ekki vegna þess að hann gaf mér ekki tækifæri á því að umgangast sig vegna þess að hann var ekki í sama heimi og ég. Hann gaf okkur ekki tækifæri á að kynnast almennilega til þess að geta sagt að hann þyrfti hjálp. Hann lokaði sig af af því að hann var svo greindur. Hann vissi að það var ekki hægt að vera innan um okkur þegar hann var í neyslu þannig að hann lokaði okkur af.“

Daníel talar um nýársdag árið 2018. „Hann kom til mín grátandi og skít­hræddur með sitt eigið líf af því að vinir hans voru að hríðfalla. Detta niður dauðir. Hann sagði að hann væri vanur að sprauta sig með því sama og þeir og vissi hvað hann þyldi en að þeir væru að deyja og það væri einhver að útrýma þeim. Hann laug aldrei að mér. Hann hélt að einhver væri að útrýma þeim af því að þeir vissu eitthvað sem þeir máttu ekki vita. Það var hans kenning.“

Hann var í raun­inni að segja mér að þetta væri búið.

Daníel segir að þeir Steindór hafi talað saman einni og hálfri viku áður en Steindór dó. „Ég var að skutla honum til mömmu viku áður en hann dó og þá sagði hann mér hvað hann væri kominn í mikið þrot. Hann sagðist ekki hafa meiri orku í þetta. Hann var í rauninni að segja mér að þetta væri búið. Ég fattaði ekki fyrr en eftir á að hann var að kalla á hjálp. Hann var að segja mér að hann væri að fara að hengja sig. Svo gerði hann það einni og hálfri viku síðar.“

„Drullaðu þér út, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ sagði ég.

Daníel segir að Steindór hafi beðið móður þeirra um að fá að vera hjá henni um helgina þar sem hann væri að bíða eftir félagslegri íbúð og fékk hann leyfi svo lengi sem hann væri edrú. Daníel bað móður þeirra um að passa dóttur sína á laugar­deginum. „Svo þegar ég kom að sækja hana á sunnu­deginum þá sagði mamma að Steindór hefði farið út og komið aftur aðfara­nótt sunnu­dagsins dópaður. Ég var svo reiður þar sem stelpan mín var þarna að ég kallaði hann „helvítis drullu­sokk“ og gjör­samlega sparkaði honum út og henti í hann 2000 kalli til að komast með rútu í bæinn. „Drullaðu þér út, helvítis auminginn þinn,“ sagði ég og skellti hurðinni. Ég sá hann ekki eftir þetta. Viku seinna hengdi hann sig.“

Daníel segir að Steindór hafi verið lifandi þegar hann fannst. „Það var hnoðað í tæpa tvo tíma. Það bar árangur en hann fékk púls en eftir fjóra daga í öndunarvél var ljóst hver niður­staðan yrði svo hann var settur í líknandi meðferð og lést degi síðar.“

Daníel á erfitt með að halda tárunum í skefjum þegar hann talar um þetta. Þessi síðustu orð sem hann sagði við bróður sinn áður en hann lést valda honum mikilli vanlíðan.

Þetta er svo mikil van­líðan að það er ógeðs­legt.

„Þetta er hræðilegt. Það er hrikalegt að hafa skilið svona. Þetta er alveg skelfilegt. Þetta er svo skelfilegt,“ segir hann með áherslu, „að þurfa að lifa með þetta. Þetta er svo mikil vanlíðan að það er ógeðslegt.“

Þetta nær engri átt

„Það er kannski líka rétt að nefna það að ástæðan fyrir því að Steindór lést var ekki af því að honum leið illa og líf hans var ömurlegt og allt það; hann var svo ósáttur við það hver hann var. Hann vildi ekki vera þessi maður sem var í fíkni­efnum. Ég fékk að vita það eftir á hjá fólki sem var með honum á geðdeild að hann þráði ekkert heitar en að vera eins og bróðir sinn eins og ég hef sagt. Eins og ég. Eiga fjöl­skyldu og hús. Hann þráði bara eðlilegt líf. Hann vildi ekkert húllumæ. Hann vildi ekki þessa þráhyggju. Hann gat fengið hjálp við fíkn og hjálp við geðveikinni en ekki á sama tíma. Því miður.“

Var Steindór greindur með geðsjúkdóm?

„Nei. En þetta var orðin hálfgerð geðveiki þegar hann var búinn að búa á götunni frá því hann var krakki. Hann var kominn á götuna 21 árs og þá voru bara þrjú ár síðan hann varð lögráða. Þetta er byrði, sérstak­lega fyrir svona óþroskaða einstaklinga.

Það þarf að stofna ein­hvers konar sam­tök.

Daníel segir að Steindór hafi stundum farið inn á geðdeild en að honum hafi verið hent út af því að hann var ekki í sjálf­skaðahættu í augna­blikinu, af því að hann var ekki að fara að drepa sig, af því að hann var ekki í maníu eða af því að hann var ekki öskrandi eða geðveikur. „Hann fékk ekki þá hjálp sem hann var að biðja um. Hann fór sjálf­viljugur inn á geðdeild til þess að fá hjálp en af því að hann var ekki í „critical“ ástandi þá; „sorrí, út með þig, komdu þegar ástandið verður „critical“.“

En ef það var orðið of seint? Hvers lags… Hvers eigum við aðstand­endur að gjalda þegar við getum ekki treyst á okkar eigin kerfi? Hvað eigum við þá að gera? Við verðum að geta treyst á okkar kerfi. Það er svo mikið í húfi. Á bak við hvern fíkil er fjöl­skylda sem situr eftir með alla sorgina. Þetta er bara galið og nær engri átt. Þetta getur ekki verið svona. Þetta verður að breytast. Þetta er ekki hægt. Það þarf að stofna einhvers konar samtök; það þarf að búa til einhvers konar konsept þannig að það sé hlustað. Það þarf eitthvað að gerast þangað til að þeir sem sjá um peninga­völdin verða komnir upp að vegg og dæla pening í þetta. Við verðum að fara að skilja hvað þetta er mikilvægt.

Þegar einstaklingur fer þá eru margir skildir eftir í sárum. Margir fjölskyldu­meðlimir þurfa kannski að taka sér frí í eina til tvær vikur og þurfa áfalla­hjálp eða á sálfræðingi að halda. Þetta er svo mikill kostnaður fyrir svo ofboðs­lega marga bara af því að heilbrigðis­kerfið okkar er bara á rass­gatinu. Þetta er stropað. Þetta nær engri átt. Sorrí. Ég er bara svo reiður.“

Kross í bandi hangir á vegg á heimili Daníels. Steindór átti þennan kross og hafði hann oft um hálsinn.

Jú, það er þessi sorg.

Hann var bara einn.

„Þetta var gríðar­lega erfitt. Ég missti helminginn af sjálfum mér þegar Steindór dó. Ég á tvo aðra hálf­bræður sem eiga aðra feður en ég hef ekki náð að tengjast þeim nógu vel af því að ég var svo lítið heima; þeir fæddust 1995 og 1997 og á þeim tíma var ég á svo miklu flakki út í sveit og hingað og þangað og bjó hjá ömmu og svona. Þannig að ég kynntist þeim lítið en ég ólst svolítið upp með Steindóri. Hann var svolítið hluti af mér. Að missa Steindór er það erfiðasta sem ég hef upplifað og gengið í gegnum vegna þess í fyrsta lagi hvernig við skildum. Og að vita það eftir á hversu mikið hann stóð einn í þessu. Ég vissi það ekki en ég hélt hann væri með einhverja vini þarna úti og væri með þeim að gera eitthvað. Hann var bara einn. Stóð bara einn. Og á jólum og á afmæli sínu.“

„Hann var einhvern veginn einn. Mamma varð aldrei söm eftir að hann dó. Hún lamaðist af gráti. Hún grét svo sárt þegar hann dó. Ég tók þetta svolítið út á vinnunni; ég fór að vinna mikið eftir þetta sem kom í bakið á mér en tveimur til þremur mánuðum síðar grét ég í mánuð. Ég grét hafsjó. Ég var eins og pínulítið barn. Ég syrgði hann svo svakalega. Ég samdi ljóð til hans. Ég vaknaði klukkan sjö um morguninn daginn sem jarðar­förin var með þetta í hausnum og skrifaði niður. Ég lagðist síðan niður og sofnaði aftur. Síðustu orðin hafa svolítið gildi vegna þess að ég enda ljóðið á „mér var aldrei sama“. Ég man ekki einu sinni eftir því þegar ég las ljóðið upp í jarðar­förinni. Fólk sagði að það hefði reglulega lekið tár eins og í takti. Ég man ekki eftir því. Það skilur enginn hvernig ég gat staðið í pontunni en það var einhver styrkur í mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá