Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Öllu starfsfólki hjá Janusi endurhæfingu sagt upp: „Tugir ungra fullorðinna eru á biðlista“

Öllu starfs­fólki hjá Janusi End­ur­hæf­ingu hefur verið sagt upp og verður skellt í lás í sumar sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá stjórn Janusar.

Janus endurhæfing - Mynd: Ja.is
Janus end­ur­hæf­ing - Mynd: Ja.is

Öllu starfs­fólki hjá Janusi End­ur­hæf­ingu hefur verið sagt upp og verður skellt í lás í sumar sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá stjórn Janusar. Samkvæmt heima­síðu Janusar fer fram lækn­is­fræði­leg starfs- og atvinnu­end­ur­hæf­ing hjá þeim og að mark­mið starf­sem­innar sé að aðstoða fólk til að kom­ast á vinnu­mark­að­inn og fyr­ir­byggja var­an­lega örorku.

„Það er þyngra en tárum taki að til­kynna að Janus end­ur­hæf­ing neyð­ist til að leggja niður þver­fag­lega lækn­is­fræði­lega heild­ræna geð­end­ur­hæf­ingu þann 1. júní næst­kom­andi. Úrræðið er sér­hæft fyrir ungt fólk, 18 ára og eldra. Nauð­syn­legt fjár­magn fæst ekki til að veita  end­ur­hæf­ing­una áfram og af þeim sökum hefur erfið ákvörðun verið tekin. Hóp­upp­sögn, öllu starfs­fólki sagt upp,“ en sam­kvæmt heim­síðu Janusar eru 24 ein­stak­lingar sem missa vinn­una.

Stjórnin seg­ist harma ákvörðun stjórn­valda að hjálpa ekki til með fjár­magn því að það sé öllum ljóst að þörfin fyrir sér­hæft úrræði, ætlað ungum full­orðnum, sé mikil. Um sé að ræða jað­ar­settan og afar við­kvæman hóp.

Góður árangur hefur náðst

„Sér­hæf­ing Janusar end­ur­hæf­ingar hefur byggst upp á síð­ast­liðnum 25 árum og ómet­an­leg þekk­ing orðið til. End­ur­hæf­ingin er alfarið ein­stak­ling­smiðuð. Hverjum og einum  er mætt þar sem hann er staddur. Í end­ur­hæf­ing­unni er ungt fólk með langa sögu um geð­ræna erf­ið­leika. Margir eru með tauga­þroska­röskun og oft mikla áfalla­sögu að baki. Þeim er tryggður aðgangur að geð­lækni, sál­fræð­ingum, iðju­þjálfum, félags­ráð­gjöfum og ýmsum fleiri sér­hæfðum fag­að­ilum undir sama þaki. Yfir 55% þeirra sem hafa útskrif­ast frá okkur síð­ast­liðin 3 ár hafa náð árangri með því að fara í vinnu, nám eða í virka sann­an­lega atvinnu­leit. Tugir ungra full­orð­inna eru á biðlista eftir að kom­ast í end­ur­hæf­ing­una.“   

Stjórn Janusar end­ur­hæf­ingar telur ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar og stjórn­valda ganga í ber­högg við stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar og að þessi ákvörðun mun leiða til að ómet­an­leg þekk­ing og end­ur­hæf­ing­ar­geta fyrir þennan jað­ar­setta hóp tap­ast.

Í til­kynn­ingu frá Heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu er greint frá því að þjón­usta við þá ein­stak­linga sem verið hafa í end­ur­hæf­ingu hjá Janusi sam­kvæmt samn­ingnum verði áfram tryggð með öðrum leiðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum