Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hundaeigendur áhyggjufullir vegna barins rakka – „Við reynum að fara fram á úrbætur fyrst“

Mynd/hundategund tengist fréttinni ekki beint
Mynd/hunda­teg­und teng­ist frétt­inni ekki beint

„Við fáum náttúru­lega mjög mikið af ábendingum til okkar. Við reynum að flokka þær eftir alvarleika því þetta hefur sífellt verið að aukast,“ sagði Konráð Konráðsson, héraðs­dýralæknir Matvæla­stofnunnar, í samtali við Mannlíf í gær. Fyrr í vikunni hafði  Mannlífi borist ábending vegna vanrækslu rakka, sem fólk hafði tölu­verðar áhyggjur af. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur málið verið tilkynnt oftar en tvisvar sinnum til MAST. Þrátt fyrir það er rakkinn enn hjá eiganda sínum sem er sakaður um að berja hundinn og beita hann harðræði.

Konráð taldi líklegt að búið væri að skoða málið en gat hann ekki tjáð sig um einstök mál. Sagði hann sum mál leysast strax en öðrum þyrfti að fylgja eftir og fara með „alla leið“.

„Við höfum fengið ábendingar um svona barsmíðar á gæludýrum í gegnum tíðina,“ sagði hann og bætti við að ef slík meðferð á dýrum sé sönnuð endi það með sekt. Aðspurður hvað þurfi að gerast til þess að gæludýr séu fjarlægð af heimilinu segir hann það fara eftir aðstæðum. „Við reynum að fara fram á úrbætur fyrst áður en eitthvað er gert, nema aðstæður krefjist þess að það sé strax gripið til aðgerða, það hefur svo sem komið fyrir líka.“

Konráð segir ábendingar sem berast Matvæla­stofnun hafa aukist.

„Það er að færast í aukana já ábendingarnar til okkar, þær geta orðið ansi margar já.“ Tók Konráð saman meðaltal ábendinga sem berast Matvæla­stofnun fyrir ekki svo löngu síðan. Sagði hann fjöldann vera um það bil ein ábending á dag, sem varðar velferð gæludýra. Því  reyni þau að flokka ábendingar eftir alvarleika. Kvaðst hann að lokum ætla að skoða mál hundsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur