Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hallgrímur er ósáttur við Kynnisferðir: „Er þetta ekki komið út í hreint djók?“

Hallgrímur Helgason rithöfundur og listamaður.
Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

Hall­grímur Helgason er síður en svo sáttur við Kynnis­ferðir um þessar mundir. Í Facebook-færslu rekur rithöfundurinn orðsnjalli, raunir sínar á leið sinni frá Kefla­víkur­flugvelli og til BSÍ.

Hall­grímur kom frá Danmörku á föstu­daginn og tók rútu Kynnis­ferða úr Leifsstöð. Ferð sem hefði átt að taka um 50 mínútur, tók hins vegar eina klukku­stund og 45 mínútur. Byrjaði þetta á töfum við brottför.

„Kom heim frá Danmörku síðdegis á föstudag og tók rútuna úr Leifsstöð. Því miður var það Kynnisferðarúta (sem eitt sinn var og er kannski enn í eigu fjöl­skyldu fjármála­ráðherra), þar sem hún var næst til brott­ferðar. ”Fer eftir fimm” var mér tjáð.

Það reyndust þó þrjátíu og fimm, þar sem hér var spilað af fingrum fram og beðið á meðan fólk streymdi enn út á stæðið. Engin sýnileg áætlun í gangi. Ferðin til höfuð­borgarinnar gekk vel þótt beltin séu reyndar óþægileg.“

Furðu­legur krókur var svo tekinn á leiðinni á BSÍ að sögn Hallgríms. Enskum Rotary-hjónum var skutlað á Hotel 201 í Kópavogi og mátti restin í rútunni bíða eftir að hjónin finndu farangur sinn.

„Hið furðulega gerðist síðan að tekinn var gríðar­legur krókur á leiðinni á BSÍ til að skila einum enskum Rotary-hjónum á Hotel 201 í Hlíðar­smára í Kópavogi, við hliðina á Sýslu­manninum góða. Ekki fundu þau farangur sinn alveg strax og máttu þar 60 farþegar bíða á stæði á meðan Rótarýmaðurinn rótaði í tösku­geymslunni. Þetta tók góðar sjö mínútur. Á meðan gafst færi á að velta því fyrir sér hvort Kynnis­ferðir eigi líka Hotel 201. Þá var loks haldið til Reykja­víkur. Tíminn frá því að mér var sagt að rútan færi eftir fimm og að komu á BSÍ var ein klst og 45 mín. Er þetta ekki komið út í hreint djók? Tíminn frá því ég steig upp í lestina í Odense og út úr henni á Kastrup var ein klst og 26 mín.“

Að lokum gagnrýnir Hall­grímur það sem hann kallar eitt stærsta bílastæði veraldar.

Bíla­stæðin við Kefla­vík­ur­flug­völl

„Á meðan rútu­samgöngurnar okkar eru í ruglinu er Miðnes­heiðin að breytast í stærsta bílastæði veraldar. Allt vegna þess að rútubíla­smákóngar og óþekktir bílastæða­barónar þurfa að græða (allt er þetta einka­rekið).Svona mun þetta halda áfram þar til langtíma­stæðið nær alla leið í Hvassahraun. Nema yfirvöld taki í taumana og gangi í þetta mikla umhverfis- og skipulagsmál. Nóg er nú flug­viskubitið samt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur