Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ómar varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn – Söfnun hafin til að koma honum heim til Íslands

Blessuð sé minning Ómars
Blessuð sé minn­ing Ómars

Ómar Andrés Ottósson varð bráð­kvaddur af völdum heila­blæðingar í Kaupmanna­höfn sunnu­daginn 8. maí.

Hann var tvítugur að aldri og var að ljúka stúdents­námi, en einnig hafði hann lokið bóklegu námi til pípu­lagninga­meistara og eingöngu verklegt nám eftir þar.

Ómar stefndi á háskólanám í sálfræði þar í borg, en hann hefur verið í Kaupmanna­höfn frá 2015. Það er huggun aðstand­enda hans í sorginni að Ómar var líffæra­gjafi og líffæri hans hafa nú gefið mörgum veikum einstaklingum aukin lífsgæði og von um betra líf.

Fjöl­skylda hans undirbýr nú flutning Ómars heim til Íslands. Efnt hefur verið til söfnunar til að aðstoða straum af þeim mikla kostnaði sem fylgir flutningi á honum heim og útför.

Aðstand­endur Ómars gáfu Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta eftir­farandi texta en hafin er söfnun til að standa straum að kostnaðinum sem fylgir að koma Ómari heim til Íslands og vegna útfara­kostnaðar. Mannlíf sendir aðstand­endum Ómars innilegar samúðar­kveðjur.

Ómar Andrés Ottósson, tvítugur verðandi stúdent varð bráð­kvaddur að morgni sunnudags. 8. maí úti í Kaupmanna­höfn þar sem hann hefur búið í nokkur ár með fjöl­skyldunni sinni. Nú hefur þessi afar hjarta­hlýi, fyndni, og umhyggju­sami ungi maður í blóma lífsins verið numinn skyndi­lega og óvænt frá fólkinu sínu. Ómar var rétt að hefja lífið og frelsið eftir mennta­skólaárin var rétt handan við hornið. Við viljum trúa að Ómar Andrés sé nú í Sumar­landinu í faðmi pabba síns, afa og ömmu. Hann var líffæra­gjafi og andlát hans hefur nú fært nokkrum einstaklingum von um betra líf og lífsgæði með líffærunum hans að gjöf sem er huggun allra í sorginni. Það var sannarlega í hans anda að enda jarðvist sína með slíkri gjöf, því hann gaf öllum svo mikið af sér.

Lína, Snorri og fjöl­skylda eru nú í því ferli að undirbúa Ómar fyrir flutning til Íslands sem þau vona að verði á næstu dögum. Það er afar kostnaðar­samt ferli en það er einlægur vilji fjöl­skyldunnar að halda honum hans hinstu veislu á Íslandi og leggja hann til hvílu hjá ömmu og afa hans í Garða­kirkjugarði í Garðabæ að því loknu.

Lína og Snorri standa því frammi fyrir miklum og óvæntum kostnaði, bæði kringum flutninginn á honum heim og útfarar­kostnaði. Við sem erum á hliðar­línunni við þau í þessu verkefni og áskorun að sjá tilgang með lífinu eftir þetta, getum best stutt við þau núna með fjár­stuðningi í tengslum við útförina. Það mun taka þau langan tíma að vinna úr sorginni og vinna úr tómleikanum sem fylgir. Viðbúið er að leiðin framundan verði hlykkjótt með tilheyrandi vinnutapi og kostnaði við aðstoð fagfólks við að finna hugarró og að læra að lifa með svona stóru áfalli, en barns­missir fylgir fólki alla tíð.

Ef þú hefur tök á og vilt vera bakhjarl Línu, Snorra og fjöl­skyldu þá eru hér upplýsingar um banka­reikning sem hægt er að leggja frjáls framlög inn á. Margt smátt gerir eitt stórt.

Banka­reikningur í Danmörku: 0400 4021890834

Banka­reikningur á Íslandi: 0513-26-200174

Kennitala. 110174-3499

Reiknings­eigandi: Sigurlína Andrésdóttir

Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur