Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigga Kling reyndi að fá Helga Björns í einkasöng: „Maður vill bara hafa Helga sinn“

Sesselja Sig­ríður Ævars­dótt­ir eða Sigga Kling líkt og hún er gjarnan kölluð, á 62 ára afmæli í dag. Lífskúnstnerinn Sigga hefur skemmt landanum um áraraðir og er leitun að vinsælli veislu­stjóra en hún er þekkt fyrir skraut­legan persónu­leika og lifandi framkomu.

Mannlíf hringdi í Siggu og spurði hana út í afmælis­daginn og tók hún bara vel í spjallið.

„Í tilefni dagsins byrja ég á því að vinna hjá stóru fjölmiðla­fyrirtæki, klukkan tvö. Svo fer ég að vinna hjá hjúkrunar­konu og síðan hjá Land­spítalanum. Og svo kem ég heim seint og um síðir og ánægð með lífið því ég held upp á afmæli mitt þegar mér sýnist,“ sagði Sigga eldhress og bætti við: „Sko, Covid tók af mér sextugsafmælið svo ég hringdi í Helga Björns og ætlaði að fá hann til að spila heima hjá mér en hann sagðist þurfa hljóðfæra­leikara en það var of crowded fyrir minn smekk. Maður vill bara hafa Helga sinn.“

Þegar blaða­maður Mannlífs skýtur því inn í að Helgi hafi verið heima hjá fólki í gegnum sjón­varpið svaraði Sigga um hæl: „Já en ég vildi fá að snerta hann. Ekki á ógeðs­legan hátt, ég var bara að tala um skóna hans kannski.“

En aftur að afmælis­deginum í dag. Fær Sigga ekki einu sinni köku í tilefni dagsins?
„Jú,jú, dóttir mín kom með kökur hérna og blöðrur og flugelda og ég veit ekki hvað. En hún vakti mig ekki, þegar ég vaknaði var þetta komið.“

En hvað er framundan hjá afmælis­barninu?

„Það stefnir í rosalega gott sumar af því að maður er orðinn svo frjáls og svo þakklátur að þurfa ekki að vera með grímuna, því maður er svo sætur. En maður gat reyndar leyft sér að vera með fýlusvip á meðan maður var með grímuna. En svona það sem stendur upp úr í sumar er að ég ætla að fara á hatta­vikuna í London, 2.-8. ágúst og ég ætla að bjóða með mér öllum konum og mönnum sem vilja koma með mér, ópólitískt, það eina sem tengir okkur eru hattar og barmmerki með íslenska fánanum. Og bara vera saman og tengjast, það verður enginn farar­stjóri, hver getur farið með sínu flugi. Þetta snýst bara um að vera saman og búa til skemmtilegheit.“

Mannlíf óskar Siggu Kling innilega til hamingju með afmælið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur