Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Rúntað á Rucio – 15. þáttur: Paul McCartney stöðvar framgang íslenskrar tónlistar

Árið 1998 hófu vinirnir Carlos Martínez Aguirre og Jón Sigurður samstarf þar sem þeir bjuggu í Aþenu á Grikk­landi. Íslend­ingurinn, sem þá kunni ekki að panta sér bjór á spænsku, hóf að semja lög við ljóð spænska skáldsins sem síðan fór til Madrídar í sumarfrí og nýtti tímann þar til þess að ota þessum lögum að spænska trúbadornum Aute. Ekkert kom útúr því og hætti Jón Sigurður að hugsa um það mál uns Aute féll frá árið 2020, en talið er að hann hafi látist af völdum kóróna­veirunnar. Þá hefjast vanga­veltur Íslend­ingsins varðandi það hvort trúbadorinn frægi hafi í raun fengið geisla­diskinn, hvort hann hafi hlustað á hann, hvort honum hafi þá hugnast það sem þar var að heyra og hvort hann hafi einhverntíman haft hug á að gera eitthvað í málunum.

Í þessum þætti verður þessum tveimur sögum skeytt saman svo hlustendur kynnast Aute, sem var með frægustu tónlistar­mönnum Spánar, en einnig merki­legur mynd­listamaður, skáld, kvikmynda­leikstjóri og handrita­höfundur. Og hinvegar sögunni af því hvernig tónlistin sem honum var send sumarið 1998 fann sinn farveg uppá fjalirnar í Salnum í Kópavogi vorið 2004 þar sem Gísli Magna söng lögin sem samin voru undir Akrapólishæðinni sex árum áður. Tónlistar­fólkið þar var ekki af verri endanum en auk Gísla voru þar Pétur Valgarð, gítar­leikari, Cheik Bangoura slagverks­maður, Aðal­heiður Þorsteins­dóttir, píanó­leikari, og Birgir Thorarensen sem lék á kontrabassa.

Þess má geta að Aute samdi lagið Aleluya no 1, Halelúja, sem síðar var flutt af Ed Ames en í enskum flutningi var það titilað Who Will Answer. Þar var stórt spurt og segir sagan að sá sem hafi tekið að sér að svara hafi verið enginn annar en Paul McCarteny í lagi sem allir þekkja. Kannski hafði það áhrif á Aute sem aldrei lét í sér heyra vegna tónlistar Íslend­ingsins við ljóð vinar síns Carlosar Martínez Aguirre.

Þættinum lýkur svo með frábærum flutningi þeirra Gísla og Aðal­heiðar á laginu Si pronto ya no saná, eða Ef ég læt ekki líknast, en það angurværa lag samdi Jón Sigurður einmitt við ljóð Carlosar Martínez Aguirre í Aþenu árið 1998. Þess má geta að lesa má um þessi grísku ævintýri í bók Jóns Sigurðar Tvíflautan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt