Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Óður smáhundur ógnaði Garðbæingum – Grímuklæddir gaskútaþjófar hurfu sporlaust

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði um nóg að snúast frá því síðdegis í gær og til fimm í morgun.  Alls gistu nú sjö manns fanga­geymslur eftir nóttina.

Þegar lögreglan hugðist stöðva bifreið sem ók Vestur­landsveg og athuga með ástand og réttindi ökumannsins, hlýddi hann ekki er lögreglan gaf honum merki um að stöðva bifreiðina. Gaf ökumaður í og hófst þá eftirför lögreglunnar. Þrír aðilar voru í bílnum en ökumaðurinn ók meðal annars á móti umferð á Vestur­landsvegi í eltinga­leiknum. Gerðu þrímenningarnir svo tilraun til að hlaupa undan lögreglunni en voru stuttu síðar hand­teknir, allir sem einn. Voru þeir allir kærðir fyrir að brjóta vopnalög og gista nú í fanga­geymslu lögreglu í þágu rann­sóknar málsins.

Grímuklæddir stálu gaskútum á rafskútum

Tilkynning barst lögreglu um fjóra aðila á rafskútum sem voru að stela gaskútum í hverfi 108 í Reykjavík. Allir voru þeir grímu­klæddir en þrátt fyrir mikla leit lögreglu, fundust þeir ekki.

Þá var tilkynnt um þjófnað úr verslun í miðbæ Reykja­víkur og er lögreglan að rannsaka málið. Aukreitis barst lögreglu tilkynning um meðvitunar­lausan mann í miðbænum en kom svo í ljós að hann var sótölvaður.

Einnig var samband haft við lögreglu vegna manns sem lá öskrandi á jörðinni í miðbænum. Reyndist hann ökla­brotinn en hann var mold­ölvaður. Maðurinn var fluttur á slysa­deild til aðhlynningar.

Óður smáhundur réðist að fólki og öðrum dýrum í Garðabæ en er lögregluna bar að garði var eigandinn mættur. Áverkar voru minni­háttar.

Ældi í leigubíl og neitaði að borga

Lögreglu var tilkynnt um að ökumaður hefði keyrt á vegrið á Hafnar­fjarðarvegi og haldið svo áfram akstri. Lagði ökumaðurinn svo bifreið sinni og gerði heiðar­lega tilraun til þess að flýja. Lögreglan náði honum þó og kom þá í ljós að maðurinn var drukkinn. Var hann vistaður í fanga­geymslu í þágu rann­sóknar málsins.

Þá fékk leigu­bílstjóri til sín fremur óþægilegan mann í bifreið sína en sá ældi upp í leigu­bifreiðinni og neitaði svo að borga fyrir farið. Greiddi maðurinn skuld sína og fór heim til sín, eftir að lögreglan mætti á vettvang.

Meig á gólf skemmtistaðar

Aðili var til vandræða á skemmtistað í Hafnar­firði. Hafði hann gert sér lítið fyrir og kastað af sér þvagi inni á staðnum og sparkað í bifreið sem hafði verið lagt fyrir utan staðinn.

Einnig fékk lögreglan tilkynningu vegna líkams­árásar á skemmtistað í Hafnar­firði.

Aukreitis var tilkynnt um kóffullan mann sem lá á jörðinni í miðbæ Kópavogs. Var honum ekið heim til sín.

Þá var tilkynnt um rokfulla konu sem haldið var að dyra­vörðum í hverfi 203 í Kópavogi. Var hún handtekin fyrir líkams­árás og vistuð í fanga­geymslu lögreglu í þágu rann­sóknar málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur