Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Örn Karlsson tölvufræðingur seldi og gerðist bóndi: „Gunnar Smári keypti. Þá var hann kapítalisti“

„Ég kynntist Jóni Bernódussyni sem var frumkvöðull í því að reyna að byrja að rækta repju­jurtina á Íslandi,“ segir Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli í Meðal­landi, Skaftarhreppi, í viðtali við Guðna Ágústsson þar sem þeir koma víða við og bætir við að árið 2009 hafi hún verið fyrst ræktuð hér á landi. „Hann var þá hjá Siglinga­stofnun sem rann svo inn í Samgöngu­stofu og þá var pælingin hvort það væri hægt að búa til lífdísel­olíu úr repjunni til að knýja fiskiskipa­flotann. Hann fór á nokkra staði á landinu og prófaði og þetta gekk svona misvel. Ég talaði við Ólaf á Þorvalds­eyri sem var einn af þeim sem prófaði þetta og við fórum síðan að prófa að rækta þetta og lentum í smábasli fyrst vegna þess að þetta var nýtt á Íslandi og það er mismun­andi yrki; þú ert að prófa vetrar­yrki og sumaryrki og svo eru mismun­andi tegundir og stundum voru mikil afföll. Og við héldum áfram. Nú erum við búin að ná mjög góðum tökum á þessu og erum að rækta repju. Við tökum fræin úr henni, pressum það og búum til repjuolíu sem við seljum í verslunum og seljum í sápugerð. Hestafólk er að kaupa olíuna okkar til að gefa hestunum sínum og svo það sem manni datt ekki í hug: Útgerðin kaupir töluvert magn af okkur; línubátar þurfa að smyrja línu­krókana – ég kann ekki alveg að útskýra það – og þeir geta ekki notað jarðefna­olíu í það vegna þess að þá kemur það í fiskinn. Þeir kaupa töluvert af okkur.“

Örn segir að 40 hektarar séu notaðir undir repjuna. Svo ræktar hann meira.

„Já, svo erum við með bygg og byggið höfum við verið að selja í fyrirtæki sem heitir Eimverk sem er að búa til flóka­viskí; búa til viskí úr íslensku hráefni.

Svo erum við með hafrana; þá erum við að búa til haframjöl og selja til manneldis. Svo höfum við verið með nautgripi sem við gefum bygg og hafra og höfum notað hálminn; við fáum gríðar­lega mikinn hálm. Við erum að nota hann sjálf og Flúða­sveppir hafa verið að kaupa svolítið af hálmi frá okkur.“

Við fengum styrk frá Mat­væla­sjóði til þess að skoða að búa til hafra­mjólk.

Þetta er mikið frumkvöðla­starf sem Örn vinnur.

„Já. Svo viljum við halda áfram með hafrana. Við fengum styrk frá Matvæla­sjóði til þess að skoða að búa til hafra­mjólk og unnum það með Matís og það heppnaðist fullkomlega. Og það er alltaf að verða meiri og meiri neysla á jurta­drykkjum á Íslandi. Ég held að nýjustu tölurnar séu frá 2017 og þá var flutt inn 1,1 milljón lítrar af hafra­mjólk. Þetta er hægt að gera. Það er nátt­úrlega töluverð fjár­festing að fara að búa til verksmiðju fyrir það; við fengum svakalega fína vöru í tilrauna­eldhúsi. Þetta er mjög einföld vinnsla í raun og veru. Þetta er hafrar, vatn og svo þarf ensím til þess að brjóta niður sterkjuna í höfrunum.“

Örn hefur heimsótt mörg bú í Norður-Evrópu og skoðað hvað gert er á færustu búunum. Hann segist læra mikið af því. „Svo höfum við verið í töluverðu samstarfi við Land­búnaðar­háskólann. Þeir eru til dæmis með hafra­tilraun hjá okkur. Og Matís sem er með mjög færa vísinda­menn sem og Land­búnaðar­háskólinn.“

Í tölvubransanum

Bóndinn á Sandhóli er einbirni. „Ég ólst upp hjá móður minni; hún var einstæð móðir. Við bjuggum á mörgum stöðum í Reykjavík; maður flutti oft í æsku og maður var alltaf að skipta um vini. Mamma var smá að hrekjast en ég var alltaf á sumrin frá sex ára aldri á Búrfelli í Miðfirði í Húna­vatnssýslu hjá bróður mömmu. Hann er fallinn frá; hét Eiríkur Tryggvason.“

Það var skráð breskt fyr­ir­tæki sem keypti ákveð­inn hug­búnað af okkur.

Örn fór mörgum árum síðar í tölvunám í Svíþjóð þar sem  hann bjó í þrjú ár. „Ég kom svo heim og stofnaði þá fyrirtæki með Vilhjálmi Þorsteins­syni árið 1983 og seldum við það 1996; það hét Íslensk forrita­þróun. Ég hef alltaf verið í frumkvöðla­starfsemi meira og minna; líka í þessu landbúnaðar­brasi sem ég er í núna.“ Hann segir að fyrir­tækinu hafi eiginlega verið skipt í tvennt þegar þeir seldu. „Það var skráð breskt fyrirtæki sem keypti ákveðinn hugbúnað af okkur og við fórum að vinna fyrir það þangað til árið 2000 en þá stofnaði ég annað „start up“-fyrirtæki í hugbúnaði sem lifði reyndar ekki mjög lengi en alveg frá stofnun Kögunar var ég þar í stjórn og varð síðar formaður. Við seldum það svo 2006 til Dags­brúnar; Gunnar Smári keypti. Þá var hann kapítal­isti. Núna er hann sósíal­isti.“

Örn segist hafa látið gamlan draum rætast. „Ég fór í land­búnaðar­störf,“ segir Örn sem er einnig menntaður búfræðingur frá Land­búnaðar­háskólanum á Hvanneyri en þar var hann áður en hann fór í háskóla­námið í Svíþjóð. „Við keyptum jörð austur í Skaftafellssýlu í Meðal­landi, Sandhól. Og hófum þar búskap.“

Hann segir að heima­landið sé um 150 hektarar. „Svo erum við í óskiptri sameign með þremur öðrum jörðum sem eru 1900 hektarar en það er mikið sandar og fjörur.“

Örn er ekki einn í þessu. „Hörður Daði Björgvinsson er bústjórinn og hann er aðal­maðurinn á búinu; hann sér um þetta frá degi til dags. Björgvin, faðir hans, kemur og hjálpar okkur á álags­tímum þegar þarf að þreskja og svona. Og Viðar, bróðir hans, hefur verið mikið við og Arndís, fyrr­verandi konan hans, líka meðan hún bjó þarna.“

Örn er kvæntur maður. Konan hans heitir Ellen Gunnars­dóttir. Synirnir eru tveir. Báðir uppkomnir.

Bullandi tap

Aftur að naut­gripunum.

„Nautabúið er í dag um 180 berandi kýr. Það er þrefalt það þegar það er flest. En við erum hins vegar að draga mikið saman þar. Það er bara bullandi tap. Það bara stendur ekki undir sér.“

Örn segir að þau hafi fengið einn Angus-tudda. „Svo er honum hleypt á einhverjar 30 kýr og svo koma kálfar árið eftir og svo þurfa þeir að verða kynþroska. Þetta tekur langan tíma. Það hefur verið svolítil hindrun í allri kjötrækt og nautakjöts­rækt á Íslandi að við höfum verið með slakt hráefni en það stendur til bóta. En það tekur tíma.“

Örn segir að byggið sem notað er fyrir naut­gripina sé valsað áður en það er sett ofan í naut­gripina. „Þannig að það er ekki mikil vinnsla á því.“

Þetta er útihjörð sem gengur úti allt árið en hún kemst inn í skjól þegar veður er vont.

„Við stýrum þessu þannig að kýrnar bera á vorin og kálfarnir ganga bara með mæðrum sínum þangað til haginn er búinn einhvern tímann í október/nóvember og þá eru fráfærur; þá tökum við kálfana frá mæðrunum, kúnum, og setjum þá inn í fjós og þar fara þeir í sterkt eldi í um ár áður en þeir fara í sláturhús. Við erum að slátra gripunum þegar þeir eru svona 18-22 mánaða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt