Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Talsmaður Ratcliffe segir engar tafir á byggingu villunnar: „Ég kannast ekki við neinar tafir“

Jim Ratcliffe. Mynd / Einar Falur
Jim Ratcliffe. Mynd / Einar Falur

Talsmaður milljarðamæringsins breska, Jim Ratcliffe segir ekkert til í því að tafir séu að byggingu glæsi­villu Bretans í hlíðum Vopna­fjarðar.

Vopna­fjörður

Heimildir Austur­fréttar herma að miklar tafir séu á byggingu villunnar sem hugsað er sem veiðihús. Meðal ástæða er það að hönnun byggingarinnar er enn að taka breytingum þrátt fyrir að framkvæmdir við bygginguna hafi hafist seint síðasta sumar. Samkvæmt Austur­frétt undrast margir heimamenn fámennið sem sjáanlegt er á byggingar­svæðinu.

Gísli Ásgeirsson, framkvæmdar­stjóri veiði­félagsins Six Rivers og talsmaður Jim Ratcliffe, neitar þessu alfarið og segir engar tafir á verkinu hingað til. Verkefnið sé í heild á áætlun þó þurft hafi að færa til verkefni og slíkt. Segir hann villuna eiga vera tilbúna eftir ár.

„Ég kannast ekki við neinar tafir að ráði en það var nýverið skipt út teyminu á staðnum því steypu­vinnu er svo gott sem lokið,“ segir Gísli í samtali við Austur­frétt.

Bjartsýnn á sumarið

Gísli segir aðspurður að sumarið líti afar vel út en veiði­leyfin í Vopna­firði hafa öll verið seld og það fyrir löngu. Segist hann afar bjartsýnn á gott sumar í veiðinni vegna þess að vorið hefur verið hlýrra í ár en mörg undan­farin vor.

„Ég hef verið mikið á þessu svæði allt frá árinu 1986 og nánast alltaf frá 1989 og oftar en ekki hefur verið kalt á þessum slóðum langt fram í júní og jafnvel lengur. Það þarf í engar grafgötur að fara að lofts­lagið hefur breyst töluvert á þessum tíma og nú er til dæmis afar lítil snjóbráð og ef það hlýnar ekki of mikið er það jákvætt fyrir laxinn. Ekki of kalt og ekki of heitt og þá mega menn eiga von á góðu sumri í veiðinni.“

Þá segir Gísli ennfremur að nú þegar stór laxveiðisvæði hafi lokast fyrir rússneskum veiði­mönnum og verði líklegast lokuð útlendum aðilum næstu árin, þýði það að nú verði auðveldara fyrir Íslendinga að verða sér út um leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ