Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Guðmundur vill miklu betri leigumarkað á Íslandi: „Það er ákveðið kúrekamentalitet ríkjandi“

Guðmundur Arngrímsson
Guð­mundur Arn­gríms­son Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er enginn annar en Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslags­arkitekt og skipulags­fræðingur, hellu­hvíslari, möndlu­ristari og formaður Samtaka leigjenda.

Guð­mundur Arn­gríms­son

Guðmundur, sem sjálfur er á leigu­markaði, hefur skellt sér á bólakaf í þessi mál með aukinni eftir­spurn á einskonar reglu­verki utan um rétt leigutaka og rými leigu­salans.

Mun skilvirkari leigukerfi í nágrannalöndunum

Guðmundur segir í viðalinu frá þræl­skipulögðu og skilvirku leigu­kerfi í öðrum löndum á borð við Danmörku, Noreg, og Finnland, svo eitthvað sé nefnt. Í raun eru einhverskonar kerfi eða regluverk í flestum Evrópu­löndum, sem heldur utan um þessi mál og skilar fyrir vikið af sér heil­brigðum og vel hagnýtum leigu­markaði, bæði fyrir leigu­salann og leigutakann.

Gunnar spyr hann hvort að ekki sé vonlaust að glíma við þessi há kapitalísku öfl.

„Nei það er það ekki því við erum með svo margar góðar fyrir­myndir af leigu­markaði í norður­löndunum, alls staðar í Norður-Evrópu og jafnvel í Iberuskaganum og á Ítalíu. Á stöðum þar sem leigu­markaðurinn er bara í jafnvægi, blússandi gangur á fasteigna­markaði en þar eru bara leigjendur varðir. Þar er regluverk sem takmarkar óeðlilegar hækkanir á húsaleigu, réttindi leigjenda eru meiri sem þýðir að þú getur búið lengur í íbúðinni. Þú ert ekki með þessa tíma­bundnu árssamninga eins svo oft er hér.“

Villta vestrið

Guðmundur vill meina að á Íslandi ríki hálfgerð kúreka­stemning þar sem lög er varða rými til hækkunar á leigu séu svo opin að leigu­salinn geti túlkað þau sér í vil. Leiguverð hefur hækkað gríðar­lega undan­farið, sem margir vilja meina að sé í engu samræmi við þróun í nágranna­ríkjum sem og að forsendur hins frjálsa markaðar séu allt aðrar víða erlendis í þessum málum.

„Það er ákveðið kúrekamentalitet ríkjandi, þetta er tiltölu­lega fámennur hópur svona kúreka í þessu en það er af því að við erum með óreglu­væddan leigu­markað. Ef við værum með reglu­væddan leigu­markað sem tæki fyrir óeðlilegar hækkanir á húsleigu, við myndum bara finna eitthvað viðmið, getum fundið viðmið út frá verðlags­þróun, látið hana stýra eða viðmið sem eru hlutfall af lágmarks­launum. Í Danmörku er meðal­leiga á 100 fermetra íbúð í Kaupmanna­höfn um 37% af lágmarks­launum, hérna er það 69%. Meðal­leiga á 100 fermetra íbúð í Reykjavík árið 2020 var 212 þúsund og þá voru lágmarks­laun 330 þúsund.“

Guðmundur talar um að hlutfall þeirra á leigu­markaði hafi hækkað gríðar­lega síðustu ár og að við séum hægt og rólega að færa okkur meira og meira úr því að kaupa okkur fasteignir yfir í leigu­markaðinn sem hefur ekki upp á mikið að bjóða hér á Íslandi. Leigu­salan er búin að færast úr höndum margra einka­aðila yfir í fjársterk fasteigna­félög, ýmis í einkaeigu eða í eigu hluthafa og þar geti félögin nánast stýrt sínum hækkunum sökum neyðar fólks á fasteigna­markaði. Lítið sem ekkert er til af eignum í almennri sölu og svo hefur fasteignar­verð rokið upp úr öllu valdi síðustu ár og nánast ógjörn­ingur fyrir ungt fólk í dag að kaupa sér 2-3 herbergja íbúð nema að standa uppi með minnst 15 milljóna króna útborgun sem fæstir hafa möguleika á að afla sér.

Segir Guðmundur að þess vegna fari fólk út á leigu­markað og með tímanum eftir því sem fólk eldist á leigu­markaði, festist fólk þar og á sér enga möguleika á því hvorki að kaupa sér íbúð né koma sér í örugga leigu þar sem afborganir eru í einhverju samræmi við hvað íbúðar­eigendur eru að borga oftast í afborganir á sínum húsnæðis­lánum. Og hvað þá með íbúðar­verð? Hvernig eiga leigu­salar að fá sann­gjarna endurgjöf sem amk rekur fasteignina að stóru leiti?

Hættulegt heilsunni

„Það er náttúru­lega ekkert vit í því að vera með fólk út á leigu­markaðnum sem er kannski að borga 300 þúsund á mánuði í leigu en synja því um 180 þúsund króna greiðslumat.“

„Það er eitthvað óeðlilegt með það að svona tiltölu­lega vel þénandi fjölskyldu­fólk, eldra en 34 ára, bara kemst ekki burtu úr þeim aðstæðum sem það vill alls ekki vera í. Við vitum hvað við köllum sambönd sem þér líður illa í og þráir að komast úr en getur það ekki. Þetta er óheilbrigt og skapar allskonar vandamál, skapar streitu, kvíða, áfalla­streitu. Þetta skapar óöryggi hjá börnunum. Leigjendur eru að flytja oft og títt. Tilfinningarlegt óöryggi í æsku hefur afgerð­andi áhrif á geðheilsu fólks í fram­tíðinni. Við getum einfald­lega ekki boðið fólki og sérstak­lega börnum upp á þetta.“

Þetta magn­þrungna og upplýsandi viðtal má heyra og sjá hér á spil­aranum fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið finnst á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt