Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ásgeir heldur enn sambandi við sína gömlu liðsfélaga: „Ekkert til að halda mikið upp á sko“

Einn allra besti knattspyrnu­maður Íslands­sögunnar á afmæli í dag. Ásgeir Sigurvinsson er 67 ára í dag.

Atvinnu­ferill Ásgeirs spannar 17 ár en Ásgeir fæddist í Vestmanna­eyjum og lék með ÍBV 1972 og 1973, 21 leik í 1. deild og skoraði í þeim 7 mörk.

Hann gekk svo til liðs við belgíska 1. deildar félagið Standard Liege um mitt sumar 1973 og náði strax að tryggja sér fastann sess í liðinu. Ásgeir lék með Standard fram á sumarið 1981, og var einn af hornsteinum liðsins. Hann var fyrirliði liðsins um skeið og vann einn bikar­meistara­titil með félaginu.

Sumarið 1981 gekk hann til liðs við þýska stór­veldið Bayern München. Með liðinu léku nokkrir af Evrópu­meisturum Vestur-Þýska­lands 1980 og fékk Ásgeir fá tækifæri.

Sumarið 1982 gekk hann svo til liðs við þýska félagið Stuttgart og lék með því til loka ferils síns. Ásgeir var lengi fyrirliði Stuttgart og þótti einn besti leikmaður þýsku 1. deildarinnar um margra ára skeið. Leiddi hann Stuttgart til meistara­titils veturinn 1983-1984 og var þá kjörinn besti knattspyrnu­maður V-Þýska­lands af leik­mönnum deildarinnar.

Vorið 1989 lék hann með Stuttgart gegn Napoli í úrslita­leikjum UEFA-bikar­keppninnar, en Napoli stóð uppi sem sigurvegari. Ásgeir lék alls 211 leiki í Bundesligunni og skoraði 39 mörk. Hann lagði skóna á hilluna vorið 1990 og lauk þar með glæsi­legum 17 ára ferli hans sem atvinnu­manns. Alls lék Ásgeir 45 leiki með íslenska lands­liðinu og skoraði 5 mörk. Tvívegis var hann kosinn íþrótta­maður ársins, 1974 og 1984. Þá þjálfaði hann Fram eitt sumar og íslenska karla­landsliðið í knatt­spyrnu í tvö ár. Árið 2015 var hann tekinn inn í heiðurhöll ÍSÍ.

Þessar upplýsingar eru frá fotbolti.net.

Mannlíf hringdi í Ásgeir og spurði hann út í afmælið, hvort hann ætlaði að halda upp á það.

„Nei,“ sagði Ásgeir og hló. „Þetta er ekkert stórmál. Eflaust verður einhver kaka en þetta er nú ekkert til að halda mikið upp á sko.“

Framundan hjá Ásgeiri eru utan­landsferðir. „Ég býst nú frekar við því að fara utan í sumar. Ætli ég fari ekki á mínar gömlu slóðir, í Þýska­landi eða Belgíu.“
Aðspurður hvort hann haldi enn sambandi við sína gömlu liðs­félaga sagði hann „Já, já, ég geri það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur