Franska konan sem grunuð er um að hafa banað eiginmanni sínum og dóttur á hóteli í miðbæ Reykjavíkur er ekki lengur á sjúkrahúsi, en þangað hafði hún verið flutt með stunguáverka.
Hún sat í gæsluvarðhaldi eftir hina hræðilegu atburði á hótelinu, en var flutt á Landspítalann með slæma áverka og hafa lögreglumenn gætt hennar síðan þá.
Lagði lögregla hald á hníf við rannsókn málsins, en hún nýtur fulltingis lögregluyfirvalda í Frakklandi og á Írlandi við rannsókn málsins.
Eins og áður sagði er franska konan grunuð um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana; var hún úrskurðuð í gæsluvarðhald til 4. júlí. Og samkvæmt lögreglu miðar rannsókn málsins vel en lögregla tók fram að nánari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















Athugasemdir