Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Katrín segir fjármálaráðherra ekki þurfa að víkja: „Framkvæmdin liggur hjá Bankasýslunni“

Katrín Jakobsdóttir forsætissráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­s­ráð­herra. Mynd: RÚV

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, segir ekki tilefni til þess að fjármála­ráðherra víki vegna sölunnar á Íslands­banka. RÚV greinir frá þessu. Katrín segist vilja bíða niður­stöðu Ríkis­endur­skoðunar, sem er með málið í rannsókn.

„Það er okkar mat að það hafi sýnt sig, í gegnum þessa nýjustu atburði, að þetta fyrir­komulag krefjist endur­skoðunar,“ segir Katrín í samtali við RÚV, um tillögu ríkis­stjórnarinnar um að Banka­sýslan skuli lögð niður.

Þegar spurt er hvort þarna sé ekki verið að kasta Banka­sýslunni undir rútuna þegar málið sé í raun þess eðlis að ríkis­stjórnin eigi sjálf að bera ábyrgð á því, segir Katrín að fyrst þurfi að horfa á löggjöfina utan um ferlið. Ríkis­endurskoðun og Fjármála­eftirlit Seðla­bankans fari nú með rannsókn á sölunni „og ég held að við þurfum að bíða og sjá hvað kemur út úr þeim rann­sóknum áður en við tökum ákvörðun um næstu skref.“

Katrín ítrekar að það sé Banka­sýslan sem fari með framkvæmd málsins. Hún segir okkur enn eiga eftir að sjá hverjar niður­stöðurnar komi til með að verða frá þeim sem fari með rannsókn málsins. Henni sýnist þó atriðin sem séu gagnrýni­verð snúa að framkvæmd sölunnar.

Katrín segir jafnframt að ekki sé um að ræða tilefni til stjórnar­slita. „Þannig að ég held að við þurfum að bíða og sjá hverju þessi rannsókn skilar, en framkvæmdin liggur hjá Banka­sýslunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá