Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Gyða Valtýsdóttir heldur stórtónleika í Gamla bíói: „Snertir hlustandann á djúpstæðan hátt“

Gyða með sellóið
Gyða með sell­óið Mynd: Aðsend

Gyða Valtýs­dóttir tónskáld og Selló­leikari heldur stór­tónleika í tilefni af útgáfu fjórðu sóló­breiðskífu hennar, OX í Gamla bíói þann 7. júlí klukkan 21:00.

Gyða Valtýs­dóttir hefur komið víða við á tónlistar­ferlinum. Hún var einn af meðlimum hljóm­sveitarinnar múm og hefur auk þess iðkað klassíska tónlist frá barns­aldri. Hún lauk tveimur masters­gráðum í klassískum sellóleik og frjálsum spuna frá tónlistar­skólanum í Basel, Sviss. Gyða hefur unnið með fjölmörgu lista­fólki, samið fyrir leikrit, dansverk, kvik­myndir og leikið inn á fjöldan allan af hljóm­plötum um allan heim.

Gyða og sell­óið

Samkvæmt frétta­tilkynningu tekst Gyðu, „líkt og á fyrri plötum sínum að skapa persónu­legan hljóðheim sem brúar bil á milli tónlistastefna með einstökum hætti. Tónlist Gyðu snertir hlustandann á djúp­stæðan hátt og hefur hún fengið einvala liði tónlistar­fólks til að spila með sér.“

Þau sem spila með Gyðu eru þau Indré Jurgeleviciute á þver­flautu og litháíska hörpu, Úlfur Hansson á hljóð­gervil og bassa, Bert Cools á gítar, John McCowen á klarinet og Magnús Trygvason Eliassen á trommur en öll koma þau við sögu á nýrri plötu Gyðu.

Gyða Valtýs­dóttir hlaut tónlistar­verðlaun Norður­landaráðs 2019 fyrir tónlistar­flutning þar sem sköpunar­krafturinn brýst fram með afgerandi rödd, frumlegum hljóðfæra­leik og miklum persónu­töfrum eins og það var orðað.

Gyða er hörku selló­leik­ari

Í frétta­tilkynningunni segir einnig: „Tónlistar­flutningur Gyðu er einstak­lega áhrifa­ríkur viðburður og einstök upplifun að heyra víðfeðman og undur­fagran hljóðheim hennar í frumlegum laga­smíðum hennar og útsetningum.“

Nýjasta plata Gyðu, OX fékk verðlaun fyrir upptöku­stjórn ársins á Íslensku Tónlistar­verð­laununum, en hinar þrjár sóló­plötur Gyðu hafa allar verið verð­launaðar sem plötur ársins í opnum flokki.

Lithá­enska hljóm­sveitin Meropé mun stíga á svið á undan Gyðu að hita upp salinn, en tónlist þeirra er líka töfrum líkust, en byggir á samslætti nýrra tóna í bland við ævaforna lithá­enska þjóðlaga­tónlist eins og það er orðað í frétta­tilkynningunni.

Hér er hægt að hlusta á nýjustu plötuna, OX.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt