Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Amber um dóminn: „Ég er miður mín yfir því að fjöll sönnunargagna hafi ekki dugað til“

Amber Heard og Johnny Depp í réttarsalnum.
Amber Heard og Johnny Depp í rétt­ar­salnum.

„Vonbrigðin sem ég finn fyrir í dag eru orðum yfir­sterkari,“ segir Amber Heard í færslu sem hún birti á Twitter í gær.

Í færslunni vísar hún til nýuppkveðins dóms í máli fyrrum eigin­manns hennar, Johnnys Depp, gegn henni. Úrskurður var kveðinn upp í gær og voru báðir aðilar fundnir sekir um ærumeiðingar, hún þó í meiri mæli en hann. Henni var gert að greiða Depp 15 milljónir bandaríkja­dollara á meðan hann á að greiða henni 2 milljónir dollara í bætur. Með þessu tók kviðdómur undir sjónarmið Depp um að í grein sem Heard skrifaði í Washington Post árið 2018, hefðu falist meiðyrði í hans garð. Depp fór fram á 50 milljónir í bætur. Í gagnsök krafðist Heard 100 milljóna í bætur vegna ummæla í hennar garð. Kviðdómur féllst á að í orðum fyrrum lögmanns Depp hefðu falist ærumeiðandi ummæli í hennar garð.

Segir dóminn bakslag fyrir konur

„Ég er miður mín yfir því að fjöll sönnunar­gagna hafi ekki dugað til gegn óhóflegum völdum, áhrifum og stjórn fyrrum eigin­manns míns,“ segir Amber Heard í færslunni.

„Ég er jafnvel enn vonsviknari yfir því hvað þessi dómur þýðir fyrir aðrar konur. Hann er bakslag. Dómurinn færir okkur aftur til þess tíma þegar konur sem tjáðu sig og töluðu opinskátt urðu fyrir þöggun og voru niður­lægðar opinber­lega. Hann brýtur á bak aftur þá viðurkenningu að ofbeldi gegn konum beri að taka alvarlega.

Ég tel að lögmönnum Johnnys hafi tekist að fá kvið­dóminn til að horfa framhjá lykil­atriðum varðandi tjáningar­frelsi og að hunsa sönnunar­gögn sem þóttu svo óyggjandi að við unnum málið í Bretlandi.“

Færsluna endar Heard á eftir­farandi orðum:

„Ég er döpur yfir því að hafa tapað málinu. En ég er ennþá daprari yfir því að hafa misst rétt sem ég taldi mig hafa sem Bandaríkja­mann – að tala frjálst og opinskátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt