Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sáttarbeiðni Jada Pinkett Smith gagnrýnd: „Hana skorti algjörlega sjálfsábyrgð“

Jada Pinkett Smith
Jada Pinkett Smith

Grín­istinn og leikarinn Chris Rock er að sögn áhugalaus yfir sáttar­beiðni leik­konunnar Jada Pinkett Smith en eigin­maður hennar, leikarinn og rapparinn Will Smith sló grín­istann á Óskars­verðlauna­hátíðinni eins og frægt er orðið. Kinn­hesturinn er orðinn frægari en sá sem Gunnar Hámundarson á Hlíðar­enda gaf konu sinni, Hallgerði Langbrók á sínum tíma.

Jada notaði tækifærið á dögunum í spjall­þættinum Red Table Talk sem hún sér um ásamt dóttur sinni og móður, og biðlar til Chris Rock um sættir. „Varðandi Óskarsnóttina, ég vona innilega að þessir tveir greindu, hæfileika­ríku menn fái tækifæri til að ná bata, tala um þetta og sættast. Vegna ástands heimsins í dag, þurfum við á þeim báðum að halda. Og við þurfum í raun enn meira á hvoru öðru að halda um þessar mundir. Þangað til að þetta verður hægt munum við Will halda áfram að gera það sem við höfum gert síðustu 28 árin og það er að halda áfram að reyna að skilja þetta sem kallast líf, í sameiningu.“

Leikkonan Vivica A. Fox gagnrýndi mynd­skeiðið frá Jada í spjall­þættinum Wendy á tilfinninga­þrunginn hátt og sagði í upphafi að það sé erfitt fyrir hana að segja þetta: „Þetta er samstarfs­fólk mitt. Ég hef leikið í kvik­myndum með þeim báðum,“ sagði hún og átti við Smith hjónin. „Þegar ég sá mynd­skeiðið í gærkvöldi, þá grét ég, ég verð að vera hrein­skilin við ykkur. Hana skorti algjör­lega sjálfs­ábyrgð en Will var að verja heiður hennar er hann sló Chris,“ sagði leikkonan en Chris Rock hafði sagt brandara um skallann á Jada en hún þjáist af sjúk­dóminum bletta­skalla. Brand­arinn var að flestra mati afar saklaus en það er önnur saga. Hún hélt áfram: „Ég elska þetta fólk, ég hef fylgst með börnum þeirra vaxa og dafna en ég hefði viljað sjá hana taka meiri ábyrgð á málinu.“

Samkvæmt heimildum etonline.com hefur Chris Rock lítinn áhuga á sáttar­beiðni Jada Pinkett Smith.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Skiptum á búi lauk rúmum þremur og hálfu ári eftir gjaldþrot félagsins, án þess að greiðslur fengjust upp í kröfur.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt