Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi

Ætluðu að ræna af þeim mót­or­hjóli

Systkinin
Systk­inin Systk­inin veittu mót­spyrnu sem kost­aði þau lífið

Taí­lenska lög­reglan hefur hand­tekið tvo menn sem ját­uðu að hafa myrt rúss­nesk systk­ini sem höfðu verið saknað í nokkra daga.

Hin 22 ára gamla Diana Nazimova og 17 ára bróðir hennar, Roman Nazimov, hurfu aðfara­nótt 26. júlí í Pattaya. Móðir þeirra, Zarina Nazimova, til­kynnti um hvarfið eftir að mynda­vélar sýndu þau síð­ast aka á mót­or­hjóli um klukkan fjögur um nótt­ina.

„Börnin mín hurfu í Pattaya í nótt. Eftir að þau sáust síð­ast á mót­or­hjól­inu hefur ekk­ert spurst til þeirra og það er slökkt á símum þeirra,“ skrif­aði hún á Instagram.

Samkvæmt kunn­ingjum systk­in­anna hafði fjöl­skyldan flutt frá Rúss­landi til Taílands fyrir fimm árum. Daginn áður en hún hvarf sagði Diana móður sinni að iPhone-sími hennar hefði varað við óþekktu Bluetooth-rakn­ing­ar­tæki í nágrenn­inu og að hún hefði á til­finn­ing­unni að ein­hver væri að elta hana.

Leit­ar­menn fundu síðar mót­or­hjólið sem systk­inin höfðu verið á. Samkvæmt taí­lenskum fjöl­miðlum hafði því verið tekið í sundur og það grafið í kirkju­garði.

Lög­reglan hand­tók upp­haf­lega tvo menn sem grun­aðir voru um að hafa aðstoðað ræn­ingj­ana, en þeim var sleppt eftir að þeir neit­uðu sök.

Daginn eftir voru tveir aðrir menn, 43 ára og 39 ára, hand­teknir. Samkvæmt taí­lenska miðl­inum Khaosod ját­uðu þeir við yfir­heyrslur að hafa orðið systkin­unum að bana.

Menn­irnir sögð­ust hafa ætlað að stela mót­or­hjóli systk­in­anna. Þegar þau veittu mót­spyrnu hafi þeir skotið Roman til bana og barið Dianu svo illa að hún lést af áverk­unum. Að því loknu hafi þeir flutt lík þeirra og grafið í fjall­lendi í Chonburi-hér­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Mike O'Malley ræddi við Anthony Clark aðeins þremur vikum fyrir andlát hans og minnist hans sem einstaklega fyndins manns.
Heimur

Kynlíf enn eitt öfl­ug­asta vopn leyni­þjón­usta

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku