Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Björn Jón: Ríkisstjórnin getur ekki tekið á vandanum af pólitískum ástæðum og eyðir um efni fram

Björn Jón Bragason sagnfræðingur.
Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur.

„Um þessar mundir mælir Hagstofan verðbólgu 7,2% og vextir Seðla­bankans voru á dögunum hækkaðir í 3,75%. Gylfi Zoëga hagfræði­prófessor bendir á í nýjasta hefti Vísbendingar að ekki dugi að beita stjórn­tækjum Seðla­bankans einum, samhliða þurfi aðilar vinnu­markaðarins að koma sér saman um hóflegar hækkanir launa og þá verði að auka aðhald í ríkis­fjármálum,“ segir sagn­fræðingurinn Björn Jón Bragason í pistli á vefsíðunni DV.

Bætir við:

Gylfi Zoega

„Gylfi segir ennfremur að skortur á samhæfingu og samstöðu ríkis­fjármála og peninga­stefnu muni að líkindum hafa í för með sér að vextir Seðla­bankans hækki enn meira en ella. Það er nefnilega svo að í umræðum um efnahagsmál er um of einblínt á Seðla­bankann og stjórn­tæki hans en alltof lítill gaumur gefinn að stjórn ríkis­fjármála. Þar er þörf á aðhaldi eins og Gylfi nefnir; opinber útgjöld fara hratt vaxandi en skatt­tekjur aukast ekki með sama hraða. Afleiðingin er viðvarandi halla­rekstur.“

Samkvæmt orðum Björns Jóns nema „heildar­tekjur ríkis­sjóðs rúmum 872 milljörðum samkvæmt ríkis­reikningi 2019. Sú tala er komin upp í 955 milljarða í ár. Heildar­útgjöld hafa á sama tíma vaxið úr 913 milljörðum í 1.124 milljarða skv. fjár­laga­frumvarpi þessa árs. Þá er samkvæmt nýrri fjármála­áætlun gert ráð fyrir áfram­haldandi halla­rekstri ríkis­sjóðs næstu árin en einnig hækkandi opinberum útgjöldum.“

Björn Jón nefnir einnig að „ef horft er til ríkis og sveitar­félaga samtals er áætlað að nafnvirði heildar­útgjalda fari úr 1.670 milljörðum 2023 í 1.940 milljarða 2027. Í skýrslu fjármála­ráðs sem kom út í síðasta mánuði er meðal annars gagnrýnt að öllum tekjum sé eytt jafn­harðan. Tekjurnar séu sveiflu­kenndar og útgjöld sveiflu­kennd að sama skapi. Því geti reynst erfitt að hemja útgjöldin þegar gefur á bátinn og af þessu hafi hlotist þrálát skulda­söfnun.“

Hann segir að „fjármálaráð bendir á að tekjuauki hins opinbera vegna tíma­bundins hagvaxtar sé í reynd bara „froða sem ekki ætti að nýta til varanlegra ráðstafana í aukningu útgjalda.“ Þá hafi stundum verið stigið „á aflgjöfina þegar þörf var á að stíga á bremsuna í ljósi hagsveiflunnar á þeim tíma“ eins og það er orðað.“

Björn Jón segir að „slíkt ynni gegn stöðug­leika og sýndi þörfina á festu og aga við stjórn opinberra fjármála. Þegar þannig hátti til að veðurspár rætist sjaldnast þurfi að huga að ríkjandi vindáttum. Útgjöld ættu því aðeins að aukast í takti við langtíma­leitni vaxtar í efnahags­lífinu. Þannig mætti koma í veg fyrir að stjórn­völd falli ítrekað í þá freistni að eyða jafnóðum því sem kemur í kassann. Þá bendir fjármálaráð líka á þá hættu sem getur skapast nú um stundir þegar tekjur hins opinbera aukast tíma­bundið vegna verðbólgu en þetta kallar ráðið „verðbólgu­froðu.“

Fjármálaráð gerir verðbólgu­spána að umtals­efni en í áætlunum stjórn­valda er gert ráð fyrir að hún verði nær 6% á þessu ári en fari síðan lækkandi og verði um 2,5% þegar á árinu 2025.

Björn Jón færir í tal að „ráðið bendir á að þetta gangi þá og því aðeins upp að niður­staða kjara­samninga verði í samræmi við undir­liggjandi stöðu hagkerfisins. Hér reyni enn og aftur á samspil peninga­mála og fjármála hins opinbera og svo vitnað sé orðrétt til skýrslu fjármála­ráðs: „Nægi tekjur hins opinbera ekki fyrir ráðgerðum útgjöldum þarf að hagræða í rekstri, draga úr útgjöldum eða afla aukinna tekna með skatt­heimtu.“

Við blasir að ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur getur ekki tekið á vandanum af pólitískum ástæðum. Sjálfstæðis­menn hafa fengið því framgengt að skattar verði ekki hækkaðir að neinu marki en á móti fá Framsóknar­flokkur og sér í lagi Vinstri grænir að auka útgjöld.“

Björn Jón er ansi ákveðinn þegar hann segir hreint út að „núverandi ríkis­stjórnar­mynstur gengur nefnilega ekki upp: stjórn getur ekki verið hvort tveggja í senn til hægri og vinstri í efnahags­málum; áherslan verður að vera í aðra hvora áttina. Niður­staða flokkanna þriggja hefur einfald­lega orðið sú að gefast upp gagnvart bákninu, eyða um efni fram og velta vandanum yfir á komandi kynslóðir.“

Kemur fram í skrifum Björns Jóns að í „skýrslu sinni frá því í desember í fyrra benti fjármálaráð á að ef ekki væri til staðar formfest umgjörð hefðu ríkis­fjármálin tilhneigingu til að færast til verri vegar en ella. Það birtist þá í þrálátum halla­rekstri og skulda­söfnun yfir langan tíma. Rann­sóknir hefðu sýnt að veikleiki í fjármála­stjórnun og skekktir hvatar á vettvangi stjórn­mála hafi hér mest um að segja. Þetta lýsi sér meðal annars með því að stjórn­málamenn horfi til of skamms tíma og eyði fjármunum umfram það sem aflað er. Þannig sé frestað að taka á undir­liggjandi vanda­málum.“

Einnig að „þá hefur Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn bent á það hvernig miklar sveiflur í opinberum útgjöldum hafi torveldað stjórn opinberra fjármála. Fjármálaráð orðaði það svo í skýrslu sinni í desember síðastliðnum að stigið væri á bensínið og bremsuna á víxl — en ekki nóg með það heldur væri stigið á bensínið þegar þörf væri að stíga á bremsuna í ljósi hagsveiflunnar. Þetta hefði allt unnið gegn stöðug­leika og sýndi þörfina á festu og aga við stjórn opinberra fjármála. Kjarni málsins er nefnilega sá að frá því fyrir faraldurinn hefur verið viðvarandi halli á rekstri ríkis­sjóðs og við blasir áfram­haldandi halla­rekstur og skulda­söfnun. Ríkis­stjórnin ætlar sér bersýni­lega ekki að taka á vandanum og kyndir þar með undir verðbólgu­bálið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur