Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Skringi­legt ástand við hót­elið Fólki var brugðið Mynd: Svanur Már Snorrason.

Tveir látnir og sá þriðji með áverka: „Mér er verulega brugðið“

Hörmu­legur atburður átti sér stað á hót­eli í mið­bænum í morgun

Tveir er­lend­ir ferða­menn fund­ust látn­ir á hót­eli í mið­borg­inni á átt­unda tím­an­um í morg­un. Þriðji aðil­inn, einnig er­lend­ur ferða­maður, var einnig á vett­vangi og var hann með áverka.

Viðkom­andi var færður und­ir lækn­is­hend­ur, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni en til­kynn­ing um málið barst lög­regl­unni kl. 7.14.

Enn eru máls­at­vik afar óljós, enda rann­sóknin á frum­stigi, seg­ir í til­kynn­ing­unni og einnig að ekki sé hægt að veita frek­ari upp­lýs­ing­ar að svo stöddu.

Mannlíf var á svæð­inu og ræddi við nokkra ensku­mæl­andi erlenda gesti sem voru að gera sig ferð­búna.

„Ég veit ekk­ert hvað gerð­ist, ég svaf hrein­lega svo fast“ sagði kona ein sem hvorki vildi mynd­birt­ingu né koma undir nafni. Og hún vissi ekki meira en svo að hún spurði blaða­mann hvað hefði eig­in­lega gerst.

Fleiri komu og ræddu málin við blaða­mann Mannlífs og svo virt­ist sem hrein­lega eng­inn af þessum ferða­mönnum hafi orðið vart við eitt né neitt sem telj­andi tæki að segja frá.

„Það eina sem ég veit er að lög­reglan var hérna, og okkur var sagt að halda okkur inni á her­bergjum okkar þangað til annað kæmi ljós,“ sagði karl­maður á fimm­tugs­aldri sem sagði dvöl­ina á hót­el­inu hafa verið ánægju­lega sem og ferða­lag sitt um landið, en honum þótti leitt að heyra að slæmir hlutir hefðu gerst á hót­el­inu á meðan hann steins­vaf:

„Mér bregður bara við að heyra svona frá þér að alvar­legt atvik hafi átt sér stað á hæð­inni sem ég dvaldi á, mér er veru­lega brugðið,“ sagði hann að lokum og skellti sér upp í hvíta Teslu og var för­inni heitið í Leifs­stöð.

Það var sér­kenni­legt and­rúms­loft við hót­elið og starfs­maður reyndu að skipta sér af störfum blaða­manns en það stóð ekki yfir lengi og það skal tekið fram að starfs­mað­ur­inn var kurt­eis þótt afskipta­samur væri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu