Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Niðurstaða Hæstaréttar setur rétt kvenna til þungunarrofs í hættu

Mynd/skjáskot RÚV
Mynd/skjá­skot RÚV

Hæstiréttur Banda­ríkjanna sneri í dag við fordæmi sínu, best þekktu sem Roe gegn Wade, sem tryggt hefur konum stjórnar­skrár­varinn rétt til þungunar­rofs. Dómur Hæstarétts gerir það að verkum að ríki Banda­ríkjanna hafa nú aukið svigrúm til þess að setja eftir atvikum verulegar takmarkanir á þungunarrof eða banna það alfarið.

Mál Roe gegn Wade er dóma­fordæmi frá árinu 1973 sem hefur, allt frá því að dómurinn féll, tryggt konum rétt til þungunar­rofs ásamt síðari hæstaréttar­dómum. Niður­staða Hæstaréttar Banda­ríkjanna í dag heimilar það að lög um bann við þungunar­rofi eftir fimmtándu viku meðgöngu fái að standa í Missisippi. Það gengur gegn hinu áratuga­gamla fordæmi.

Samuel Alito, einn af sex íhalds­sömum dómurum við réttinn, skrifar í meirihluta­áliti dómaranna að dómurinn í máli Roe gegn Wade hafi verið rangur frá upphafi. Rökstuðningurinn hafi verið veikur og að hann hafi haft skaðlegar afleiðingar.

Hinir þrír dómararnir, sem eru frjáls­lyndu dómararnir við réttinn, sögðu að með dómnum væri rétturinn að svíkja grundvallar­hugsjónir sínar.

Dóma­fordæmið í máli Roe gegn Wade tryggði konum rétt til þess að gangast undir þungunarrof áður en fóstur teldist lífvænlegt, sem yfirleitt er í kringum 24. viku meðgöngu. Ríki í Banda­ríkjunum sem stjórnað er af repúblikönum hafa undan­farin ár sett upp sífellt strangari takmarkanir á þungunarrof.

Málið kom fyrst upp í síðasta mánuði þegar meirihluta­álitinu var lekið í fjölmiðla. Málið vakti mikla reiði, ekki bara í Banda­ríkjunum heldur um allan heim. Um er að ræða sigur fyrir íhalds­sama andstæðinga þungunar­rofs í Banda­ríkjunum, sem barist hafa gegn því í mörg ár.

Mikil ólga er nú í Banda­ríkjunum vegna málsins og vart þverfótað fyrir úrskurðinum og viðbrögðum í fjöl­miðlum þar ytra.

Tvær fyrrum forseta­frúr Banda­ríkjanna hafa stigið fram og tjáð sig um málið. Það eru þær Michelle Obama og Hillary Clinton, sem einnig var utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna í forsetatíð Barracks Obama og mótframbjóðandi Donalds Trump í forseta­kosningunum þegar hann fór með sigur af hólmi. Báðar hafa konurnar fordæmt ákvörðun Hæstarétts Banda­ríkjanna. Obama sagðist vera miður sín vegna málsins, meðal annars fyrir hönd samlanda sinna sem hefðu nú misst grundvallar­rétt til þess að taka upplýstar ákvarðanir um sinn eigin líkama.

„Ákvörðun Hæstaréttsins í dag mun ávallt lifa í minni okkar sem skref aftur á bak í réttindum kvenna og mann­réttindum,“ sagði Hillary Clinton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn