Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Rúmlega 76 prósent lesenda hafa slæma reynslu af innheimtufyrirtækjum

Eflaust þykir fáum sérstak­lega gefandi að fá reikninga og innheimtur. Það þarf þó ekki að þýða að starfs­hættir innheimtu­fyrirtækja eða samskipti þeirra við greið­endur séu ámælis­verð.

Yfir 76 prósent lesenda Mannlífs virðast þó ekki segja farir sínar sléttar af samskiptum við slík fyrirtæki.

Samkvæmt heimildum Mannlífs hafa sumir slæma sögu að segja af innheimtu­fyrirtækjum, að svör frá þeim hafi borist seint og illa, umdeildir reikningar hafi farið í löginnheimtu og safnað kostnaði, á meðan reynt var að greiða úr málum varðandi reikning á milli málsaðila og þar fram eftir götunum.

Neytendur upplifa sig gjarnan á milli steins og sleggju í slíkum tilfellum, þar sem þeir verða að velja á milli þess að greiða reikning sem þeir telja rangan eða ekki eiga rétt á sér yfir höfuð, eða að reyna að fá úr málunum skorið og eftir atvikum leggja fram kæru til viðeigandi nefnda, á meðan reikningurinn safnar dráttar­vöxtum og öðrum kostnaði. Samkvæmt heimildum Mannlífs hafa neytendur orðið fyrir því að lánshæfismat þeirra hjá Creditinfo lækki niður í „ruslflokk“ meðan á slíku stendur.

Í nýjustu skoðana­könnun Mannlífs voru lesendur því spurðir hver reynsla þeirra af Motus eða öðrum innheimtu­fyrirtækjum væri.

Svörin voru afgerandi.

Yfir 76 prósent þeirra sem tóku þátt í könnuninni segja reynslu sína af innheimtu­fyrirtækjum slæma, þegar niður­stöður eru skoðaðar upp úr hádegi í dag.

Rúmlega 13 prósent hafa góða reynslu af slíkum fyrir­tækjum, á meðan rúm 10 prósent svara með „hvorki né“.

Rétt er að benda á að það að fá senda rukkun eða innheimtu á reikningi þýðir ekki að reynslan af innheimtu­fyrirtækinu þurfi að vera slæm. Hér er átt við hvort neytendur geti horft sáttir á framgöngu þess aðila sem fer með milli­göngu um innheimtur frá kröfuhafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá