Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ein algengasta birtingarmynd kynþáttafordóma á Íslandi: „Gefur til kynna einhvers konar útilokun“

Ein algengasta birtingar­mynd kynþátta­fordóma á Íslandi er fyrir­bærið „öráreiti“ sem lýsir sér meðal annars þannig að fólk spyrji sakleysislegra og vel meintra spurninga á borð við „hvaðan ertu?“ eða bendi á að viðkomandi tali góða íslensku. Þetta eru athuga­semdir og spurningar sem einar og sér skipta kannski engu máli en vegna þess að þær eru síendurteknar geta þær valdið skaða og skapað fjarlægð. Sóley Tómasdóttir, jafnréttis- og fjöl­breytileika­fræðingur, og Chanel Björk Sturlu­dóttir, fjölmiðla­kona, útskýra þetta fyrirbæri og gefa góð ráð í

útvarps­þættinum Morgun­vaktin á Rás 1.

Fólk telur að eina birtinga­mynd kynþátta­fordóma sé þegar einhver beitir manneskju af öðrum kynþætti ofbeldi, en sú er ekki bara raunin. „Á Íslandi er eitt helsta form kynþátta­fordóma ómeðvituð hlut­drægni sem byggð er á staðalímyndum og birtist í öráreiti. Við upplifum ekki að fólk sem tilheyri jaðar­hópum sé hluti af okkur,“ segir jafnréttis­fræðingurinn Sóley Tómasdóttir.

Nei, ég meina hvaðan ertu upprunalega?

„Í rauninni er þetta öráreiti skilgreining á mannlegum samskiptum í lífi fólks sem gefur til kynna einhvers konar útilokun og þar með ýkir upplifunina að fólk tilheyri jaðarhópi, minnihluta­hópi, og eigi ekki heima með einhverjum hætti,“ segir Sóley.

Eitt besta dæmið er spurningin: „Hvaðan ertu?“ sem fólk notar gjarnan til þess að tengjast öðrum og samsama sig með þeim. „En ef svört eða brún manneskja, með hreim eða talar ekki nógu góða íslensku fær þessa spurningu, þá dugir ekki að segja: Kópavogi. Heldur kemur viðbótar­spurningin: Nei, ég meina hvaðan ertu uppruna­lega?“ Sóley segir að þá snúist spurningin ekki lengur um að tengjast heldur fá útskýringu á því af hverju viðkomandi sé frávik.

„Er ég þá ekki nógu góð svört manneskja?“ 

Chanel Björk telur að slík áreitni tengist einnig skorti á sýnileika fólks af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.

„Ástæðan fyrir því að einstaklingar eins og ég eru spurð að þessu margoft, er vegna þess að það er svo sterk ímynd á Íslandi um hvernig Íslendingar líta út,“ segir hún. Með því að spyrja hvaðan viðkomandi kemur, er verið að ýta undir öðrun og aðgreiningu sem Chanel Björk segir að stafi af því að fólk geti engan veginn ímyndað sér að viðkomandi geti verið Íslend­ingur, eða í það minnsta ekki full­gildur. „Vegna þess hvernig hún lítur út eða er ekki hvít á hörund.“

Hún segir að oft séu slíkar athuga­semdir settar fram í gríni eða hrósi sem að baki búa undir­liggjandi fordómar eða staðalímyndir. Hún tekur sem dæmi að oft sé hún talin vera góð í íþróttum vegna þess að hún sé svört. Þrátt fyrir að systir hennar beri af í íþróttum og sé í lands­liðinu í handbolta þá hefur Chanel Björk ekki erft þau gen. „Er ég þá ekki nógu góð svört manneskja af því að ég er ekki jafn góð í íþróttum?“ spyr hún. „Væntanlega hefur þetta ekkert með kynþátt að gera.“ Annað dæmi er að fólk hrósi einstaklingum af erlendum uppruna fyrir góða íslensku­kunnáttu. Oft hefur þetta fólk alist upp á Íslandi og þekkir ekkert annað en að tala tungu­málið og vera Íslend­ingur. „Þá er það að heyra: Þú talar svo góða íslensku, mjög gott dæmi um öráreiti því þarna er fólk að gera sér upp einhverja hugmynd um þessa manneskju,“ segir Chanel Björk.

Stíga inn í aðstæður

Hvað er þá til ráða fyrir fólk sem áttar sig á vanda­málinu og vill gera rétt? Chanel Björk ráðleggur fólki í forréttinda­stöðu að stíga inn í aðstæður ef það verður vart við að einhver sé beittur öráreiti eða heyrir óviðeigandi athuga­semdir. „Vegna þess að það getur verið mjög hjálpsamlegt fyrir einstakling sem tilheyrir jaðarhópi og verður sífellt fyrir þessum spurningum og athuga­semdum. Það getur alveg verið erfitt að finna kraftinn til að segja eitthvað,“ segir hún og bendir á að þá geti verið gott ef einhver annar grípi boltann og jafnvel spyrji viðkomandi hvernig þeim líði, hvort þetta hafi verið í lagi og hvort hægt sé að aðstoða eða segja eitthvað. „Það getur alveg skipt sköpum.“

Rætt var við Chanel Björk Sturlu­dóttur og Sóleyju Tómasdóttur í Morgun­vaktinni á Rás 1. Anna María Björns­dóttir í vefrit­stjórn og Sigríður Halldórs­dóttir, dagskrár­gerðamaður tóku saman. Viðtalið má hlusta á í heild sinni í spil­aranum hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur