Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Travis Barker fluttur á sjúkrahús: „Vinsamlegast sendið bænir ykkar“

Kourtney Kardashian og Travis Barker í brúðkaupi sínu.
Kourtney Kar­dashian og Travis Barker í brúð­kaupi sínu.

Tónlistar­maðurinn Travis Barker var fluttur á sjúkrahús í gær. Eiginkona hans, Kourtney Kardashian, var honum við hlið og dóttir hans hefur beðið fólk um að biðja fyrir pabba sínum.

Enn er ekki vitað hvað amar að Barker, en hann leitaði læknis­aðstoðar í gærmorgun á sjúkra­húsi í Los Angeles. Ástand hans var bersýni­lega metið það alvarlegt að stuttu síðar var hann fluttur á börum í sjúkrabíl, sem keyrði hann á Cedars-Sinai sjúkra­húsið í Los Angeles. Samvæmt slúður­miðlinum TMZ var Kourtney Kardashian við hlið eigin­manns síns allan tímann, en parið gekk í það heilaga fyrir einungis um það bil mánuði síðan á Ítalíu.

Það hefur vakið athygli að Barker birti færslu á Twitter fyrr þennan dag sem í stóð: „Guð bjargi mér“. Um er að ræða heiti á lagi með vini Barker, tónlistar­manninum Machine Gun Kelly.

Alabama Barker, 16 ára dóttir Barker úr fyrra hjóna­bandi, biðlaði í gær til fylgjenda sinna á Instagram að biðja. Pabbi hennar hafði verið fluttur á sjúkra­húsið skömmu áður og má því ætla að hún sé að óska eftir því að beðið sé fyrir pabba hennar.

„Vinsamlegast sendið bænir ykkar,“ stóð í færslu dótturinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt