Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gunnari finnst illa vegið að stórum hópi fólks: „Eigum ekki að láta bjóða okkur rugl“

Gunnar Dan Wiium
Gunnar Dan Wiium

Smíða­kennarinn og þáttar­stjórnandi hlað­varpsins Þvottahúsins Gunnar Dan Wiium, sendi frá sér pistil varðandi umræðuna síðustu daga um ofbeldi í andlega heiminum. Gunnar vill minna á það, að ekki er hægt að setja alla undir sama hatt innan þessa geira.

„Mér finnst nefnilega svolítið ílla vegið að svo stórum hóp fólks sem starfar innan þessa geira af mikilli auðmýkt og af hreinum ásetning. Ég er ekki að halda því fram að þær sögur sem ég hef heyrt upp á síðkastið séu ekki réttar, en ljósinu skal einnig beint að þeim sem starfa hafa í þessum bransa í áratugi á óaðfinnalegan hátt.“

Gunnar lýsir því í sínum pistli að hafa nýtt sér ýmisskonar námskeið í sinni andlegu vegferð og segist sjálfur aldrei hafa verið beittur ofbeldi í sínum ævintýra­ferðum, þau 15 ár sem hann hefur stundað andlega vinnu. Hann nýtir sér mikið að fara í svokalla Svett sem er lýst sem hreinsunar­aðferð fyrir líkama og huga.

„Svettið (e. Sweat Lodge) sem ég fór í á Spirit farm í gær var gott, stjórnað af einum auðmjúkum sem hafði 27 ára reynslu af svita­hofum. Hann reyndi ekki að pota fingrum sínum í rassgatið á neinum, hann bauð okkur ekkert hugvíkkandi, bara súpu og húmmus ásamt mjúkri nærveru sem geislaði af honum í formi þétts ljóseinda­flæðis. Ég hef aldrei lent í perrum eða vitleysingum í þessum ævintýra ferðum mínum síðustu 15 árin. Ég reyndar bý yfir dómgreind til að sjá ruglið ef það myndi birtast mér og styrk til að standa upp í miðri athöfn ef svo bæri við og fokka mér út, ég ber nefnilega ábyrgð, ég verð að passa upp á mig, ég set mig ekki algjör­lega í hendurnar á ókunnugu fólki því ekkert fólk er að fara að stjórna mér inn í lausn af neinu tagi.“

Gunnar segir svo að lokum; „til að loka þessu samhengis­lausa röfli í mér langar mig bara að biðja fólk um að axla ábyrgð og sjá hvenær JÁ á við og hvenær NEI á við. Við þurfum ekki og eigum ekki að láta bjóða okkur rugl eða glepjast af grunnum sálfræði­hernaði fávita í kuflum. Sjáum hverjir eru ekta og hverjir ekki, það er í alvörunni ekki svo erfitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur