Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Haraldur er nýr deildarforseti Guðspekifélagsins: „Hvaða skynfæri eru það sem skynja stemmingu?“

Haraldur Erlendsson
Haraldur Erlends­son Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðaranna Gunnars og Davíðs Wiium er enginn annar en geðlæknirinn og nýkosinn deildar­forseti Guðspeki­félagsins á Íslandi, Haraldur Erlendsson. Hér er brot úr viðtalinu.

Haraldur útskrifaðist úr lækna­deild Háskóls Íslands og starfaði á Borgar­spítalanum á endur­hæfingar og tauga­deild og svo á lyfja­deild. Hann tók nám í tauga­lækningum í London (DCN). Haraldur starfaði í nær fimm ár við heilsu­gæslu á lands­byggðinni og var læknir á Flateyri þegar snjó­fljóðin féllu 1995. Þá byrjaði hann að vinna með fólk með áfalla­streitu og í framhaldi af því lærði hann geðlækningar í Bretlandi og kláraði sérfræði­prófin árið 1999 og masters­námið árið 2000. Hann starfaði sem sérfræðingur í geðlækningum í Sussex í East Grinstead og síðar í Hastings. Haraldur byrjaði svo að starfa með konur með mikla áfalla­streitu og jaðar­persónu­leika­röskun í 10 ár. Þá var hann yfir­læknir í Cygnet Hospital Bierley í Bradford og síðar geðlæknir í Dean Hospital hjá Partnership in Care. Árið 2012 flutti hann heim til Íslands og tók við sem yfir­læknir og forstjóri á Heilsu­stofnun NLFÍ í Hvera­gerði ásamt því að gegna stöðu sem yfir­læknir geðheilsu­teymis Suður­lands á Selfossi í nokkur ár. Hann lét svo af störfum þar 2019 og hóf stofu­rekstur, fyrst í Hvera­gerði og síðar í Kópavogi.

Spurður út í það hvernig draumar og ímyndunar­aflið komi inn í þessi hefð­bundnu geðvísindi segir Haraldur að með því að skoða drauma og ímyndunar­aflið má greini­lega sjá samhengi og greini­lega endur­speglun á hvernig manni raun­verulega líður. Hann vill líka meina að hin hefð­bundnu vísindin séu að opnast meira og meira fyrir þessu þáttum hugans.

„Þig dreymir fjall, þig dreymir hund, þig dreymir ljósveru og svo vaknarðu og ferð að hugsa um þennan draum, þá kemur einhver tilfinning með því. Eða þú gengur inn í kirkju eða inn á Þingvelli og þú finnur að það er góð stemming. Hvaða skynfæri eru það sem skynja stemmingu? Þetta er í raun kjarna-andleg upplifun. Í tíbeska búddismanum er þetta kallað „ástand rýmisins“.“

Nýverið var Haraldur kosin deildar­stjóri Guðspekifelagsins. Guðspeki­félagið er félags­skapur fólks sem leitar sann­leikans í gegnum hin ýmsu form trúar­bragða og kenni­setninga. Guðspeki­félaganum er ekki sama hvernig heimurinn er. Hann er í senn áhorfandi og þátt­takandi. Hann vill skoða mannlífið, einkum manns­hugann, eiga þátt í myndun jákvæðra viðhorfa, því samkvæmt guðspekinni eru allir menn fyrst og fremst menn, þrátt fyrir ýmsa meira eða minna tilbúnar skiptingar. Enginn einn getur skorast undan hlutdeild sinni í ábyrgð heildarinnar – af því hann lítur á bræðra­lagið sem staðreynd. Einkennisorð Guðspeki­félagsins eru „Engin trúar­brögð eru sann­leikanum æðri“.

Báðir foreldrar Haralds voru virkir félagar Guðspeki­félagsins svo hann elst upp í þessu umhverfi og umræðum. Hann sjálfur verður svo fyrir ólíkum reynslum sem barn sem marka hann og fullvissa hann um að það sé dulin heimur handan efnis­heims sem ber að rannsaka með íhugum. 

Félagið „Theosophical Society“ var stofnað af rússneska dulspekingnum Helena Petrovna Blavatsky oft kölluð Madame Blavatsky og Henry Steel Olcott í New York í árið 1875. Fljótlega eftir stofnun félagsins flytja Blavatsky og Olcott til Indlands og verða þau og félagið fyrir miklum áhrifum þar í gegnum hindúisma og búddisma. 

Guðspeki­félagið stofnaði útibú í Reykjavík 1912 en Íslands­deild Guðspeki­félagsins var formlega stofnuð 1921.

Eftir að félagið kemur til Íslands fara margir kirkjunnar menn að skrá sig í félagið og má segja að frjáls­hyggjan í þessum efnum hafi leyst upp ákveðið íhald sem lengi hafi ríkt. Félags­skapurinn myndaði sterka senu sem tengdi lands­byggðina á vissan hátt aftur við náttúruna, tengingu sem land­byggðar­fólkið hafði á vissan hátt misst við flutning sinn í þéttbýlið.

„Þau verða fyrir miklum áhrifum í Indlandi, bæði af hindúismanum og búddismanum og taka þátt í sjálfstæðis­baráttu Indverja og eru þess vegna á ákveðnum stalli þar enn. Og svo verða þau einskonar brú milli hugmynda Austur­heims og Vestur­heims. Þau áttu mikinn þátt í því í kringum 1880-90 að, hvernig á ég að orða það fallega? að brjóta upp fastan kristinn hugmynda­heim og komu með mikið af ferskum hugmyndum inn í Vestræna menningu.“

Stórir karakterar eins og Grétar Fells, Haraldur Pétursson, Gunnar Dal, Þórbergur Þórðarson og Sigvaldi Hjálmarsson voru á sínum tíma mjög virkir félagar Guðspeki­félagsins. Mikið af bókum voru skrifaðar af þessum mönnum og liggja þær í miklu magni í hillum forn­bókabúða hér á landi, sann­kallaður brunnur af visku sem þessir merku menn náður sér í og skiluðu af sér með sinni andlegu iðkun samhliða ötullu starfi innan Guðspeki­félagsins.

Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt að hægt er að finna Þvotta­húsið á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt