Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Jón Axel minntist föður síns í beinni útsendingu: „Takk pabbi fyrir að elska mig eins og ég er“

Feðgarnir á góðri stund.
Feðgarnir á góðri stund. Mynd: Facebook

Jón Axel Ólafsson minnt­ist föður síns í beinni útsend­ingu á K100 á föstu­dag­inn en hann lést fyrir helgi.

Útvarps­mað­ur­inn góð­kunni, Jón Axel Ólafsson, sem starfar á K100, minnt­ist föður síns í þætt­inum Skemmti­legri leiðin heim á föstu­dag­inn, undir liðnum „Takk“ en faðir hans, Ólafur Axelsson húsa­smiða­meist­ari, lést á fimmtu­dag­inn.

„Pabbi dó í gær og verður maður þá ekki að þakka fyrir hann?“ sagði Jón Axel við Ásgeir Pál Ágústs­son, sam­starfs­mann sinn.

Fram kemur í frétt K100 var að finna kald­hæðni og húmor líkt vana­lega í dag­skrár­liðnum „Takk“ en líka ein­lægar og hlýjar minn­ingar.

Hér má lesa allar þakk­irnar sem Ólafur heit­inn fékk frá syni sínum:

„Takk pabbi fyrir Ólafsson-genin. Ég er ekk­ert smá hepp­inn að við karl­arnir í fjöl­skyld­unni verðum grá­hærðir – ekki sköll­óttir!“

„Takk pabbi fyrir að stela alltaf skorp­unni af hryggnum. Ég geri það líka núna þegar Óli [sonur minn] er hjá mér. Þú varst fljótur að grípa skorpuna – jafn­vel áður en hrygg­ur­inn kom á borðið!“

„Takk pabbi fyrir að minna mig alltaf á að lífið er ekki sann­gjarnt. Það tók mig reyndar langan tíma að fatta að þú hafðir rétt fyrir þér.“

„Takk pabbi fyrir danstakt­ana með Elvis lög­unum. Ég er ekki viss um að sporin hafi verið kúl, en þau voru góð í minn­ing­unni.“

„Takk pabbi fyrir að tryggja að ég færi ekki út með ruslið á jól­unum, áður en pakk­arnir voru opn­aðir. Hann var alltaf með rusla­pok­ana – hann tók ruslið í raun áður en það varð til!“

„Takk pabbi fyrir að kenna mér að spara raf­magn. Ég lærði ungur að þreifa mig áfram í myrkr­inu, og það hefur nýst mér vel í gegnum árin. Maður var á kló­sett­inu – og allt í einu kom hönd og slökkti ljósið!“

„Takk pabbi fyrir allar klisjurnar þínar. Ég nota þær ennþá.“

„Takk pabbi fyrir fúlu brand­ar­ana. Sem voru virki­lega fúlir – eins og ‘Fyrr má nú afla en kartafla’ og ‘Betri er Clint Eastwood en Klínt allt út.’

„Takk pabbi fyrir að gefa orð­inu ‘Zoom Zipp’ alveg nýja merk­ingu. Þú varst ekki kall­aður Óli Strax fyrir ekki neitt!“

„Takk pabbi fyrir að kalla mig snill­ing – þótt þú vissir betur.“

„Takk pabbi fyrir að elska mig eins og ég er og kenna mér að gera þetta líka. Þó að þú hafir ekk­ert verið að missa þig í að tala um til­finn­ingar í gegnum árin. En ég náði skila­boð­unum. – Karlar voru ekk­ert mikið að tala um til­finn­ingar.“

Og að lokum: „Takk pabbi fyrir allt. Ég vona bara að þarna uppi sé nóg af kaffi­bollum og nef­tó­baki. Eða ertu ekki uppi ann­ars?“

Hér má hlusta á Jón Axel þakka pabba sínum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Vill láta lottó ráða hverjir sitja á Alþingi

Björn Leví Gunnarsson vill að kosningakerfið endurspegli betur að þingmenn séu kjörnir sem einstaklingar en ekki fulltrúar flokka.
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Menning

Menning

Ris og fall Krumma

Einn besti tónlistarmaður landsins á 21. öldinni
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi