Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Flugfélagið Ernir flýgur frá Egilsstöðum á fimmtudaginn: „Við erum ekki að boða komu okkar “

Flugvél Ernis
Flugvél Ernis Mynd: ernir.is

Austur­frétt segir frá að Flug­félagið Ernir bjóði upp á flugsæti á almennum markaði til og frá Egils­stöðum næsta fimmtudag. Er flugið tilfall­andi og ekki byrjunin á samkeppni á flug­leiðinni.

„Við erum með verkefni þennan dag og ákváðum að nýta tækifærið og selja tóma leggi, frekar en fljúga vélinni annað tómri eða láta hana bíða,“ segir Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu- og markaðs­stjóri Ernis í samtali við Austur­frétt.

Samkvæmt miðlinum hafa Austfirðingar fagnað þessu boði Ernis, líka í von um að þetta sé byrjunin á samkeppni við Icelandair á flug­leiðinni sem Austfirðingar hafa beðið eftir í fjöldi ára. Icelandair hefur sætt mikilli gagnrýni undan­farnar vikur fyrir takmarkað sæta­framboð, hátt verð og raskanir á flug­áætlun en fyrir­tækið er eina flug­félagið sem flýgur frá Egils­stöðum. Fagna Austfirðingar að sætið hjá Erni kosti 10.900 krónur.

Segir Ásgeir að flugið á fimmtudaginn sé ekki upphafið að samkeppni á leiðinni af hálfu Ernis. „Þetta er algjör­lega tilfall­andi og við vildum bjóða Austfirðingum og öðrum að ferðast með okkur, ef þeir vildu.

Þó er engin launung um að við höfum fengið fyrir­spurnir úr ýmsum áttum hvort við ætlum að bjóða upp á flug á aðra áfanga­staði en við höfum í dag. Við erum ekki að boða komu okkar með þessu flugi en umræðan er jákvæð,“ segir Ásgeir.

Það verður 32ja sæta Dornier 328 flugvél Ernis sem flýgur með farþega næst­komandi fimmtudag. Verður í boði að fljúga úr Reykjavík klukkan 8:45 um morguninn og frá Egils­stöðum klukkan 19:00. Aðeins verður hægt að bóka sæti í síma eða tölvu­pósti og loftbrú veitir ekki afslátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Skiptum á búi lauk rúmum þremur og hálfu ári eftir gjaldþrot félagsins, án þess að greiðslur fengjust upp í kröfur.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ