Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jón Ingi: „Þjónusta við bæjarbúa er bensínið sem keyrir mann áfram“

Jón Ingi Hákonarson er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði
Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði

Stjórn­mála­maðurinn og leikarinn Jón Ingi Hákonarson er oddviti Viðreisnar í Hafnar­firði og Mannlíf átti við hann viðtal um lífið og tilveruna og ýmislegt fleira.

Segðu mér, hvaðan ertu?

Ég bjó í Norður­bænum fram til tíu ára, þá varð fjöl­skyldan að flytja úr Hafnar­firði til Reykja­víkur því að ekki var hægt að fá banka­fyrir­greiðslu í Spari­sjóðnum þar sem foreldrar mínir voru hvorki innfæddir Hafnfirðingar og ekki voru þau í Flokknum. Konan mín er aftur á móti innfæddur Hafnfirðingur, fædd á Sólvangi á þriðju hæð og setning sem ég hef oft heyrt frá henni er “ég fæddist á Sólvangi þriðju hæð, ég vann á Sólvangi á þriðju hæð og ég ætla að enda á Sólvangi á þriðju hæð.”

En við fluttum í vestur­bæinn en ég sór þess dýran eið að koma aftur og við það stóð ég. Ég átti góða æsku, var í fótbolta og handbolta og eignaðist marga góða vini á þeim vettvangi. Þegar ég hugsa til baka þá var ég heppinn með félags­skap og er ákaflega þakklátur fyrir það, því slíkt er ekki sjálfsagt.

Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór?

Ég ætlaði lengi vel að verða strætó­bílstjóri og kunni nöfnin á öllum strætó­leiðunum í gamla daga, ég elskaði að vera í strætó. Þessi draumur dó þegar ég varð aðeins eldri. En þegar ég var í menntó þá hafði ég mikinn áhuga á því að verða hagfræðingur, en hætti í hagfræðinni þegar ég kynntist leik­listinni í Stúdenta­leikhúsinu. Þá átti leik­listin mig allan.

Örlögin höguðu því að ég fór á æfingu í Stúdenta­leikhúsinu á sínum tíma og Benedikt Erlingsson var með námskeið og það var svo skemmtilegt að ég ákvað að leggja þetta fyrir mig og fór til London og lærði leiklist. Frábær ákvörðun, fátt hollara ungum manni en að standa á eign fótum í öðru landi, læra nýja siði og menningu. Dásam­legur tími og kynntist sjálfum mér upp á nýtt.

Leik­listin – þið eruð leikara­hjón þú og Laufey Brá. Býr hún alltaf í þér, kannski ykkur báðum, leik­listin?

Ég kynntist náttúru­lega Laufeyju minni á leik­sviðinu þannig auðvitað sameinar leik­listin okkur.

Fátt ef ekkert hefur mótað mig meira en leik­listin, hún hefur gefið mér svo margt, hvernig ég hugsa og hvernig ég nálgast viðfangs­efnin.

Í leik­listinni er bara eitt bannorð sem er orðið NEI.

Agi listarinnar, sköpunar­krafturinn, samvinnan og að vera stöðugt fyrir utan þægindarammann er eitthvað sem ég bý að og hjálpar mér í pólitíkinni. Leik­listin býr í mér og mun búa í mér þar til yfir lýkur, ég er leikari þó ég sé ekki að leika. 

Ég fékk á sínum tíma nóg af sjálfum mér sem leikara, var orðinn hroka­fullur og sjálf­umglaður. Égáttaði míg á því eitt kvöldið þar sem ég var í uppklappinu að ég var ekki ánægður með mig, þó að ég væri að leika í frábærri sýningu, í drauma­hlutverki og með stórskota­liði samleikara. Ég man að ég fór heim og tók þá ákvörðun að gera eitthvað annað. Mér fannst það óvirðing við leik­listina að vera ekki 100% glaður og þakklátur því ég var að lifa drauminn. Ég fór í MBA nám í HR og í Madrid, auk meistara­náms í markaðs­fræði. Mér finnst þessi kokteill af skapandi hugsun og viðskipta­fræði vera það sem ég á að vera að nota.

Áhugamál þín og fjöl­skyldunnar?

Mér finnst fátt eins skemmtilegt og nærandi og að fara í leikhús eða tónleika, mætti gera meira af því. En ég er mikill íþrótta­áhugamaður, stunda líkams­rækt og golf. Svo er æðislegt að ferðast með henni Laufeyju minni sem er fjöl­skyldan mín, þar sem við gátum ekki eignast börn. Þess vegna skiptir það mig miklu máli að skapa hér samfélag þar sem fólk getur verið sjálfstætt eins lengi og mögulegt er. Við munum ekki geta reitt okkur á stuðning afkomenda okkar því er það mitt hjartans mál að eldra fólk fái þá þjónustu sem þörf er á. Það eru ekki allir jafn heppnir að geta reitt sig á stuðning afkomenda sinna.

Stjórnmál, hvernig kom það til? Af hverju Viðreisn?

Ég hef alltaf verið mjög pólitískur, fylgst með frá því ég var barn og unglingur. Fyrsti flokkurinn sem ég studdi að einhverju ráði var Alþýðu­flokkurinn, en ég missti svo pólitískt heimili þegar Samfylkinging var stofnuð. Ég tengdi ekki við hana og varð þá partur af hinu fljótandi fylgi en skilaði ansi oft auðu í kosningum. Þegar Benedikt Jóhannesson og félagar hófu undir­búning að stofnun nýs stjórn­málaflokks varð ég forvitinn og fór að mæta á fundi og leist vel á það sem ég heyrði og kunni vel við fólkið. Mér fannst líka mjög spennandi að taka þátt í starfi flokks alveg frá stofnun hans. Ég er í eðli mínu Krati með sterkan hægri fót og ég fann þessu eðli mínu ágætis heimili í Viðreisn.

Sérðu fyrir þér stjórnmál sem aðalstarf þitt næstu árin eða áratugina?

Mér hefur fundist alveg einstak­lega gaman og gefandi að fá að vera í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar. Þetta starf á vel við mig þar sem ég er nokkuð góður í að koma mér inn í mörg ólík mál, setja mig inn í flókin mál og skýra þau út á einfaldan hátt. Ég hef svo breitt áhugasvið og hef svo mikla ánægju af því að vinna með ólíku fólki og vera stöðugt að læra nýja hluti. Eins og staðan er þá gæti ég alveg séð það fyrir mér að taka að mér fleiri verkefni í pólitík.

Hvað bjóðið þið í Viðreisn upp á fram yfir aðra flokkar? Hvers vegna ætti fólk að kjósa þig og ykkur en ekki aðra flokka?

Ég myndi aldrei leyfa mér að segja að við bjóðum upp á eitthvað sem er betra, við erum einfald­lega valkostur, við erum öðruvísi en aðrir flokkar.

Svo er það kjósenda að meta hvort það sé betra eða verra. En í mínum huga þá erum við valkostur í þessum kosningum fyrir þá sem vilja aukna fagmennsku í stjórnun bæjarins og sjá tækifærin út frá langtímasýn en ekki út frá stundar­hagsmunum. Það sem mér líkar best við Viðreisn er að við tökum stöðu með neytendum og notendum kerfanna.

Annað sem fellur vel að mínu gildis­mati er að lífsgæði og valfrelsi eru sitthvor hliðin á sama peningi. Ég vil til að myndaa auka raun­verulegt valfrelsi í skóla­málum og félags­þjónustu. Fólk á að fá að blómstra á eigin forsendum, en stundum vilja kerfin okkar steypa okkur í sama mót. Það fer í taugarnar á mér. Sérstak­lega þegar fólkið er farið að þjóna kerfinu í stað þess að kerfin þjóni fólkinu.

Jón Ingi, ertu ekki bara einn af þeim sem segir fallega hluti kortér í kosningar og svo ekkert meir þangað til það styttist í næstu kosningar á nýjan leik? 

Þú ert ekkert að skafa utan af því, það er gott.

Það er bara ein leið til að komast að því hvort að ég sé froðusnakkur eða heil­steyptur einstaklingur sem vill gera vel og það er gefa mér tækifæri til að sýna úr hverju ég er.

En ég vona að málflutningur minn síðustu fjögur ár gefi fólki einhverja tilfinningu fyrir því hver ég er og hverju ég stend fyrir.

Eitt af því sem ég hef komist að á kjör­tímabilinu og er þakklátur fyrir er sú staðreynd að ég skulda engum neitt. Það á enginn neitt inni hjá mér. Það er mikið frelsi fólgið í því og það frelsi vil ég ekki missa.

Ég vona að þetta svar sé ekki út í hött, en ég er alveg hundrað prósent viss um það að ekki eru allir ánægðir með mín störf og munu kalla mig froðu­snakk og popúlista. En ég veit líka að það eru einhverjir þarna úti sem líkar vel við það sem ég hef staðið fyrir. Ég hef að minnsta kosti reynt eftir bestu getu að standa fyrir máli mínu og rökstyðja mitt mál.

Ég hef líka hlaupið á mig og dregið rangar ályktanir, en ég hef þá líka beðist velvirðingar og afsökunar þegar það hefur gerst. En í raun er þessi spurning erfið vegna þess að það er í raun kjósenda að meta það hvort ég sé pappa­kassi eða eitthvað annað.

Ef þið haldið ykkur inni, hvað bæti þið við, er einhver flokkur eða flokkar sem eru efstir á óska­listanum varðandi samstarf?

Það er ljóst að það hafa verið átök um mörg mál á þessu kjör­tímabili og minni­hlutinn hefur náð að vinna vel saman. Þar hefur ríkt traust á milli okkar og gagnkvæm virðing þrátt fyrir ólíkar skoðanir.

Aftur á móti er ljóst að nokkrir bæjar­fulltrúar úr minni­hlutanum munu ekki setjast aftur í bæjar­stjórn þannig að það flækir aðeins málin. Ég vil aftur á móti snúa spurningunni við og spyrja hverjir séu tilbúnir að vinna með okkur í Viðreisn því við gerum kröfur um fagmennsku, gagnsæi og faglega ráðinn bæjar­stjóra.

Útilokið þið í Viðreisn samstarf með einhverjum flokki eða flokkum?

Nei, en það er ljóst að minni­hlutinn hefur unnið vel saman og þar ríkir gott traust.

Er einhvern tímann hægt að stimpla sig út eftir erfiðan dag eða góðan í stjórn­málum?

Ég átti stundum í erfið­leikum með það fyrstu tvö árin en svo tók ég meðvitaða ákvörðun um að stimpla mig út á kvöldin.

En ég neita því ekki að þegar þung og erfið mál eru til umfjöllunar þá er það mjög erfitt. Erfiðast hefur þó verið að vinna í málum þar sem fólk hefur persónu­gert ágreininginn og vænt mann um eitthvað misjafnt. En ég tók líka meðvitaða ákvörðun um að brynja mig gagnvart því.

En þessi þjónusta við bæjarbúa er svo gefandi og mikilvæg að það er bensínið sem keyrir mann áfram.

Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur