Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Guns N´ Roses rokkmessan loksins haldin á föstudaginn: „Stebbi Jak stökk út í sal og stöðvaði slag“

Stebbi Jak, hinn eini sanni.
Stebbi Jak, hinn eini sanni. Mynd: Aðsend

Næst­komandi föstudag verður einn af þeim viðburðum sem fresta þurfti margsinnis í Covid faraldrinum, loksins að veruleika. Er um að ræða Guns & Roses rokk­messuna. Nú er loksins komið að því að rokka í paradísar­borginni Reykjavík eins og aðstand­endur orðuðu það.

Metal­haus­inn Stebbi Jak Ásta Magg

Ein stærsta rokkplata veraldar, Appetite for Destruction fagnar 35 ára afmælinu á þessu ári og mun dagskrá rokk­messunnar litast mikið af lögum hennar. Aðrir ópusar og þrumu smellir sveitarinnar Guns N´ Roses fá að að sjálfsögðu að fljóta með.

Þetta er ekki í fyrsta né síðasta skiptið sem Guns N’ Roses rokk­messur verða haldnar hér á landi enda alltaf vel sóttir og gríðar­lega skemmtilegir viðburðir. Hljóm­sveitin samanstendum meðal annars af meðlimum hljóm­sveitanna Dr. Spock, DIMMU og Skál­maldar og mun hún sjá til þess að fólk fái rokkið beint í æð í bestu mögulegum gæðum.

Guns N´ Roses eru ekki Skíta­mórall en nokkuð svalir samt.

Mannlíf ræddi við Franz Gunnarsson sem spilar á gítar og syngur í messunni og spurði hann hvort það væri ekki mikil tilhlökkun í bandinu, eftir alla þessa bið.

„Jú það er mikil tilhlökkun í hópnum. Við vorum fyrir norðan síðustu helgi og það var alveg sturlað. Fullt hús og greini­lega hiti í mann­skapnum því á einum tíma­punkti þurfti Stebbi Jak söngvari að stökkva út í sal og stöðva fæting í uppsiglingu, rétt eins og um alvöru Guns tónleika væri að ræða árið 1988. Við erum að gera þetta núna með nýjan Slash (gítar) og Steven Adler (trommur) innanborðs þannig að það er ákveðin endurnýjun og þróun í gangi innan hópsins. Með nýjum mannskap koma nýjar áherslur og munu gestir á Húrra fá að upplifa til dæmis lög sem við höfum aldrei flutt áður á svona rokkmessu ásamt auðvitað öllum sleggjunum sem gera Guns N’ Roses ódauðlega hljómsveit,“ sagði rokk­hundurinn Franz.

Flytjendur:

Söngur: Stefán Jakobsson
Gítar: Davíð Sigur­geirsson
Gítar / Söngur: Franz Gunnarsson
Bassi / Söngur: Jón svanur Sveinsson
Trommur: Jón Geir Jóhansson

Rokk­messan verður haldin 3. júní á skemmtistaðnum Húrra í miðbæ Reykja­víkur og hefst kl. 22:00.

MIÐASALA REYKJAVÍK: https://tix.is/is/event/13285/guns-n-roses-rokkmessa/ 

VIÐBURÐUR REYKJAVÍK: https://www.facebook.com/events/538666657658256 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt