Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Spjallvinur Guðna – Guðni Halldórsson, formaður LH: „Gríðarlega bjartsýnn á framtíð hestamennsku“

„Þetta hefur frestast út af Covid og við vonum að þetta verði risa­íþrótta­viðburður, samkoma, mannamót og sveita­ball,“ segir Guðni Halldórsson, formaður Lands­sambands hestamanna­félaga, í viðtali við Guðna Ágústsson þar sem þeir fara um víðan völl. Risa­viðburðurinn sem um ræðir er Landsmót hesta­manna, sem haldið verður á Rang­árbökkum á Hellu 3.–10. júlí.

Þetta er stærsta ræktunar­hátíð land­búnaðarins á Íslandi.

Þetta verður allt sem hesta­mennskan rúmar.

„Algjör­lega, þarna leiða menn saman sína stærstu og bestu ræktunar­gripi og þarna verður líka keppt í gæðinga­keppni, kapp­reiðum – sem er auðvitað elsta íþrótt okkar Íslendinga vil ég meina – skeið­kappreiðar – og ætti að vera þjóðar­íþrótt – og þarna verður líka keppt í íþrótta­greinum; tölti, slagtauma­tölti og gæðinga­skeiði: Þetta verður allt sem hesta­mennskan rúmar. Þarna verða börn, unglingar, ungmenni, stóð­hestar, mikil hátíðahöld og glæsileg hópreið sem verður vonandi sú fjölmennasta hingað til. Þannig að þetta verður gríðar­lega mikið fyrir augað og eyrað.“

Sveitamaður upp að vissu marki

Hver er Guðni Halldórsson?

„Guðni Halldórsson er sveita­drengur vestan af Mýrum. Bónda­sonur. Ólst þar upp á stóru kúabúi á þess tíma mæli­kvarða, Þver­holtum á Mýrum, þar sem foreldrar mínir voru með kúabúskap.“

Guðni segir að þeir bræðurnir hafi verið með ólæknandi hesta­bakteríu en þeir fluttu vestur þegar Guðni var níu ára og bróðir hans fimm ára. Bróðirinn er Gunnar Halldórsson, járninga­maður og tamninga­maður, sem býr enn þá á Mýrunum.

Vorum að djöfl­ast í þessu af ein­hverri þrjósku og óbilandi áhuga.

„Við fengum gamlan bragga hjá foreldrum okkar sem hafði verið notaður undir hey og innréttuðum hann með frum­stæðum hætti. Við vorum þar með bása og byrjuðum að temja trippi þegar þau höfðu aldur til og vorum að djöflast í þessu af einhverri þrjósku og óbilandi áhuga,“ segir Guðni en hann talar um velvild fólks í sveitinni í garð þeirra bræðra.

Guðni fór síðar í Fjölbrauta­skólann við Ármúla en hann valdi þann skóla þar sem þar var starf­ræktur hesta­klúbbur og að hans sögn var skólinn sá fyrsti sem gaf einingar fyrir hesta­mennsku. „Þá vorum við á námskeiði uppi í Víðidal og vorum á járninga­námskeiði þar sem við lærðum járningar og á reið­námskeiðum.“ Guðni fór síðar í matreiðslunám og eftir það í lögfræði á Bifröst en hann starfar við lögmennsku í dag. „Ég starfa við fyrirtækja­ráðgjöf; kaup og sölu á fyrir­tækjum.“

Eiginkona Guðna er Kristjana Þórarins­dóttir sálfræðingur. „Við erum eiginlega öllum stundum í hest­húsinu; við búum uppi á Skraut­hólum á Kjalarnesi; sveita­sælunni sem er algjör­lega frábært og getum haft hestana fyrir utan gluggann og farið í reiðtúr á kvöldin. Svo eigum við hesthús í Mosó og það er frábær aðstaða þar. Getum riðið út. Og það er hægt að vera þar öllum stundum líka.“

Maður getur starfað við sitt fag en verið sveita­maður upp að vissu marki.

Guðni segir að þau hjónin eigi samtals fjögur börn, 20 hross, tvo hunda, fjóra ketti og 20 hænur.

„Maður getur starfað við sitt fag en verið sveita­maður upp að vissu marki. Kjalarnes er ekki nema 25 mínútur frá vinnu­staðnum. Það er ekkert stórkostlegt vandamál.“

Endurskoðun og uppstokkun

Síðan leiddist Guðni inn í félagsmál.

„Einhvern tímann í gamla daga hafði ég verið í stjórn Íþrótta­dómara­félagsins og hestamanna­félagsins í Borgar­firði og eitthvað svona en síðan hafði ég lítið haft mig í frammi í félags­málum þangað til að eitt kvöldið var hringt í mig frá Félagi hrossa­bænda og spurt hvort ég vildi verða fulltrúi þeirra í landsliðs­nefnd lands­sambandsins. Mér fannst það auðvitað heiður og upphefð og eftir að hafa rætt það við mína konu þá tók ég það að mér.

Ég tók þetta alvar­lega og lagði mikið af mörkum og mik­inn tíma og orku.

Ég fór strax að láta mjög mikið til mín taka í því og við fórum í gagngera endur­skoðun og uppstokkun á landsliðs­starfinu. Við tókum þetta bara alveg frá a til ö með það fyrir augum að auka starfið og fagmennskuna og reyna að ná meiri árangri á öllum sviðum. Það tókst gríðar­lega vel og var ofboðs­lega spennandi og skemmtilegt. Það var mikið starf og ég tók þetta alvarlega og lagði mikið af mörkum og mikinn tíma og orku.

Svo gerðist það að Lárus (Ástmarsson), sem var formaður lands­sambandsins, ákvað að stíga til hliðar úr þessu hlutverki eftir að hafa verið í sex ár. Menn fóru að koma að máli við mig og spurðu hvort ég hefði áhuga á að stíga inn og bjóða mig fram í þetta sem ég og gerði. Ég brenn fyrir þessu starfi og brenn fyrir hesta­mennskunni og vil gera það sem ég get til þess að  bæta hana á öllum sviðum.“

Fjórða stærst

Guðni Halldórsson segir að ekki átti sig allir á því að Lands­samband hestamanna­félaga sé fjórða stærsta sérsambandið innan ÍSÍ. „Það er fótboltinn og golfið, svo eru það fimleikarnir og svo erum við rétt þar á eftir. Við erum töluvert fjölmennari og stærri heldur en handbolti og körfu­bolti og margar aðrar greinar þannig að við eigum að bera höfuðið hátt og berum höfuðið hátt og lítum stórt á okkur og viljum taka til okkar rými.“

Talið berst að reið­höllum og Guði Ágústsson nefnir stórar hugsjónir varðandi mikla höll, nýja og öðruvísi.

Núna þurfum við að fara að sjá yfir­byggðan keppn­is­völl í fullri stærð.

„Það er gríðar­lega spennandi verkefni og ég held að það sé næsta skref ofan á þessar reið­hallir sem eru búnar að rísa og voru bylting á sínum tíma fyrir 20-30 árum. Núna þurfum við að fara að sjá yfir­byggðan keppnis­völl í fullri stærð þar sem menn geta farið að keppa. Þó menn hafi verið að keppa í þessum reið­höllum þá er ekki sama að jafna að vera á full­byggðum velli innanhúss sem þetta myndi skapa auk þess sem það myndi gjör­breyta öllu starfi, kennslu, þjálfun, fatlaðra starfi og æskulýðs­starfi; þannig að þetta er ofboðs­lega spennandi framkvæmd en það eru einka­aðilar sem fara fyrir þessu og auðvitað eru Fákur og lands­sambandið þessu mjög velviljuð. Ég er sann­færður um að þetta verkefni eigi eftir að verða að veruleika.“

Gríðarleg eftirspurn

Svo berast Hólar í tal. Þar er nýr rektor að taka við, Hólm­fríður Sveins­dóttir, og þar útskrifast árlega magnaðir hesta­fræðingar.

„Já, það er nátt­úrlega alger bylting að vera með hesta­skóla þar sem kemur á hverju einasta ári fjöldinn allur af gríðar­lega vel menntuðu ungu fólki sem starfar bæði hér heima og erlendis og tekur þetta tamninga- og kennslu­starf áfram og lengra. Og eftir­spurnin eftir góðu tamninga­fólki hefur verið gríðarleg.

Í hesta­mennsk­unni er í raun skortur á hrossum, hest­húsum, hesta­kerrum og hnökkum.

Það mætti útskrifa fleiri því það er skortur á tamninga­fólki og reið­kennurum og í hesta­mennskunni er í raun skortur á hrossum, hesthúsum, hesta­kerrum og hnökkum. Menn hafa varla undan því það er svo mikill áhugi á hesta­mennskunni sem er auðvitað frábært.“

Guðni er bjartsýnn á fram­tíðina. „Þau eru auðvitað mörg verkefnin og margt sem má bæta í og keyra fastar á en heilt yfir en engin ástæða til annars en að vera gríðar­lega bjartsýnn á framtíð hesta­mennsku. Þetta er svo stórkostlegt sport. Þetta er íþrótt sem sameinar alla fjöl­skylduna. Þetta sameinar útiveru, ferðalög, fólk getur verið að keppa, þjálfað sig alveg upp á heims­mælikvarða og allt þar á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt