Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fósturbarninu Margréti Esther var nauðgað og hún barin: „Skólasystir mín var drepin á heimilinu“.

Margrét Esther Erludóttir
Margrét Esther Erlu­dóttir

„Ég var ekki há í loftinu, 12-13 ára gömul. Það var mikil drykkja á heimilinu og ég þurfti að sjá um að þrífa það. Svo nauðgaði bóndinn mér. Það var maður sem bjargaði mér,“ segir Margrét Esher Erlu­dóttir fata­hönnuður sem lýsir því þegar hún gekk í gegnum helvíti á jörðu þegar hún var barn að aldri. Margréti Esther var komið í fóstur eftir að hún missti móður sína. Þá hófst saga hörmunga. Margrét Esther ræddi við Hildi Maríu Sævars­dóttur í podcastinu að Lifa og njóta.

Hún lýsir atvikum eftir nauðgunina. Bjarg­vætturinn var maður úr sveitinni. Hann reyndi að láta vita af því sem gerðist en með litlum árangri.

„Hann reyndi að gera allt til að fólk vissi hvað væri að gerast á bænum.“

Félags­ráðgjafi hitti Margréti og hjónin einn daginn og voru þau spurð hvort þau hefðu lamið han og hin tvö börnin sem voru í fóstri.
„Nei, við gáfum henni bara kinnhest,“ segir hún að þau hafi svarað.

„Það var miklu meira heldur en það,“ segir hún og bætir við að henni hafi verið misþyrmt meira eftir þennan fund.

„Þar vorum við lamin með hesta­svipum og nagla­spýtum, sérstak­lega ég. Ég passaði upp á að krakkarnir myndu ekki þjást fyrir þetta. Engan veginn.“
Hún segir að fóstur­börnin þrjú hafi ætlað að strjúka en að það hafi ekki tekist.

Dvölin á þessum sveitabæ lauk árið 1986. Margrét fór suður hóf nám við Öskju­hlíðarskóla sem kallast Kletta­skóli í dag. Þar var hún í tvo vetur. „Þaðan fór ég í Iðnskólann í Reykjavík að læra fata­hönnun. Ég útskrifaðist.“

Hún fór svo á enn eitt heimilið og segir hún að þar hafi verið mjög erfitt að vera. „Það var rosalegt,“ segir hún og nefnir að einu sinni hafi verið sparkað í hana svo hún féll niður 12 tröppur og að maður hafi lagt hendur á hana og læst hana inni í sólar­hring.

„Ég var í skólanum og reyndi að hlúa að sjálfri mér sem gekk erfiðlega. Ég fór þaðan árið 1991 þremur eða fjórum vikum eftir að skóla­systir mín var drepin á heimilinu. Hún var stungin 18 sinnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt