Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Áfram grafið í stærsta landnámsskála sem fundist hefur: „Fjöldi perlna er alveg ógnvænlegur“

Horft til vesturs af miðju uppgraftrarsvæðinu. Skálarnir stóru eru í gryfjunni lengra í burtu. Mannvirkin nær eru af óþekktri gerð.
Horft til vest­urs af miðju upp­graftr­ar­svæð­inu. Skál­arnir stóru eru í gryfj­unni lengra í burtu. Mann­virkin nær eru af óþekktri gerð. Mynd: Aðsend

Hinir ýmsu gripir hafa fundist við uppgröft á Stöð á Stöðvar­firði í tveimur misgömlum landnáms­skálum. Eldri skálinn er lang­stærsti landnáms­skáli sem fundist hefur á Íslandi en hann er tæplega 44 metrar á lengd.

Það var fyrir nokkrum árum sem Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifa­fræðingur kom auga á þústir í túninu sunnan og vestan við kirkjugarinn í Stöð. Taldi hann þar vera merki um landnáms­skála. Reyndist það rétt hjá Bjarna en hann hefur stjórnað uppgreftri þar á hverju sumri síðan.

Dr. Bjarni F. Ein­ars­son

Uppgraftar­tíminn hefur verið ansi knappur frá upphafi en þó sérstak­lega í ár en aðeins verður grafið í 3. vikur í sumar. Lengt uppgraftar­tímans fer meðal annars eftir styrk­veitingum frá Minja­stofnun Íslands.

Von á dönskum fræðimönnum

Heimamenn á Stöðvar­firði hafa verið duglegir að aðstoða Bjarna og hóp hans á allan þann máta sem hægt er enda er um að ræða fyrstu landnáms­skála sem fundist hafa á Austur­landi og Stöðfirðingar hæst ánægðir með fundinn.

Á þess­ari yfir­lits­mynd af rann­sókn­ar­svæð­inu í Stöð sést umfang þess vel. Skál­arnir eru í stóru gryfj­unni (annar undir hinum) en í upp­gröfnu svæð­unum fyrir miðju og lengst til hægri, eru mann­virki sem ekki er enn vitað hvaða hlut­verki gegndu.

Aðspurður um það hvernig hefur gengið að grafa í sumar svarar Bjarni því til að þau séu aðeins nýbyrjuð, „Við erum auðvitað ekki búin að grafa í marga daga, við erum að hreinsa þarna fram og reyna að átta okkur á því hvað þetta kunni að vera á svæðum austar af skálunum. Ég veit ekkert um það ennþá, einhverjar vinnslu­svæði eða Activity zones eins og þetta heitir á góðri íslensku. Við erum að undirbúa eldri skálann fyrir komu danskra fræði­manna sem ætla að taka haug af sýnum til DNA greiningar. Jarðvegs­sýnum. Og þá er allt DNA greint, pöddur, bakteríur, fána og flóra.“

Lang ríkasti skáli Íslands

En hafa skálarnir verið aldurs­greindir?

„Já, já. Ennþá held ég því fram að yngri skálinn sé hefð­bundinn landnáms­skáli höfðingja og hann liggur ofan á þeim eldri, svona eins og skál á skál ofan á eldri skálann sem er þá eldri. Sá skáli er frá árabilunum 800-870 og líklegast í neðra rófinu.“

En hverjir eru merkilegustu gripirnir sem fundist hafa í Stöð að mati Bjarna?

„Mér finnst merkilegustu gripirnir þeir sem fólk hefur engan áhuga á en það eru jaspis, verkfærin og stein­skífur en skálinn í Stöð er lang ríkasti skálinn á Íslandi, sem fundist hefur. Fjöldi perlna er alveg ógnvæn­legur, við erum að detta í svona 190 perlur samtals. Svo höfum við fundið silfur og brýni og smá gull meira að segja. Og svo arabísk mynt, tveir rómverskir peningar, sauða­klippur, tveir skutlar, exi og ég er örugglega að gleyma einhverju,“ sagði Bjarni hress með árangurinn.

Hér fyrir neðan má sjá lítið brot af því sem fundist hefur í Stöð.

(Gamla) brýnið.
Skutull (eða skötull eins og við Aust­firð­ingar segja).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ