Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Dóttir Elons Musk óskar eftir nafnabreytingu – Vill ekkert með pabba sinn hafa

Elon Musk, ríkasti maður heims.
Elon Musk, rík­asti maður heims.

Í gær gekk skjáskot um Twitter sem var sagt sýna beiðni dóttur auðjöfursins Elons Musk um nafna­breytingu og nýtt fæðingar­vottorð. Dóttirin, sem er 18 ára gömul, er transkona. Breytingin snýst því um að staðfesta nafn og vottorð sem passar við kynvitund hennar, en samkvæmt þeim sem birti skjáskotið á Twitter í gær, snýst þetta ekki síður um að vilja skera á öll tengsl við föður hennar. Hún vilji ekki vera kennd við hann né tengjast honum á nokkurn hátt. Reuters hafa staðfest þetta.

„Ég bý hvorki með né vil tengjast líffræði­legum föður mínum á nokkurn hátt,“ segir dóttirin.

Hún lagði beiðnina fram í Los Angeles í apríl síðastliðnum, þar sem hún óskar eftir bæði nafna­breytingunni og að skráningu kyns hennar verði breytt úr karlmanni í konu. Móðir hennar er Justine Wilson, en Wilson og Musk skildu árið 2008. Samkvæmt breska fjöl­miðlinum Daily Mail er nýja nafnið Vivian Jenna Wilson, og yrði dóttirin þannig kennd til móður. Þau Wilson og Musk eignuðust saman tvíbura. Hinn tvíburinn er drengur og heitir Griffin.

Elon Musk er eins og flestir vita frumkvöðull, eigandi SpaceX, forstjóri Tesla, og ríkasti maður heims. Þessa dagana reynir hann að klára kaup sín á Twitter. Ekki er vitað hvað gerðist á milli feðginanna. Um það bil mánuði eftir að dóttirin óskaði eftir breytingunni lýsti Musk yfir stuðningi sínum við Repúblikana­flokkinn í Banda­ríkjunum. Ljóst er að ýmsir kjörnir fulltrúar flokksins styðja laga­breytingar sem kæmu til með að draga úr réttindum trans­fólks í ýmsum ríkjum.

Musk hefur tjáð sig um málefni trans­fólks, til að mynda með því að tísta eftir­farandi árið 2020: „Ég styð transfólk sannarlega, en öll þessi fornöfn eru fagur­fræðileg martröð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt