Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kristján þurfti að vaka yfir vini sínum: „Ég horfði upp á besta vin minn ofskammta“

Kristján Ernir. Mynd/skjáskot. Vísir
Kristján Ernir. Mynd/skjá­skot. Vísir

„Ég horfði upp á besta vin minn ofskammta, hann var að nota vímuefni í æð þegar við vorum að gista heima hjá mér í 10. bekk. Hann grátbað mig um að hringja ekki á sjúkrabíl,“ segir Kristján Ernir Björgvinsson sem var gestur Elvu Bjarkar Ágústs­dóttur sálfræðings í nýjasta þætti hlað­varpsins Popp­sálarinnar. Kristján þurfti að vaka yfir vini sínum í von um að hann hefði þetta af. Hræðslan við jaðar­setningu og við refsingu hafi verið slík að þeir leituðu ekki eftir aðstoð.

Kristján segir í þættinum að hann hafi byrjaði í neyslu aðeins þrettán ára gamall. Hann hafi kolfallið strax fyrir áfengi en hafi svo leitað í önnur efni sem væru auðveldara að fela neyslu á en áfengi. Eftir að hafa sokkið djúpt er hann nú búinn að vera edrú í fimm ár og situr í starfs­hópi heilbrigðis­ráðuneytisins um afglæpa­væðingu neyslu­skammta.

Kristján ræðir um reynslu sína af þeirri refsistefnu sem nú er við lýði þegar kemur að vímuefnum, en auk þess um áföll, skaða­minnkunar­sjónarmið og neyslu­skammta. Nýverið fékk Elva Björk til sín í Popp­sálina Halldóru Mogensen, þingmann Pírata, þar sem þær ræddu einmitt um afglæpa­væðingu neyslu­skammta.

Að mati Kristjáns er það hreinlega spurning um líf eða dauða að fara mannúðlegri leiðir en refsistefnu þegar kemur að vímuefnum.

Veikasta fólkið er að selja

Kristján Ernir segist fljótt hafa orðið háður vímuefnum, bæði andlega og líkamlega, og fjár­magnaði neysluna með sölu. „Það er veikasta fólkið okkar sem er að selja,“ segir hann og þessu fylgi líka aðrir glæpir.

Upphafið að endinum hjá honum var þegar hann byrjaði að misnota svokölluð bensólyf, róandi lyfseðils­skyld lyf.

Hann segist alltaf hafa verið í sífelldum feluleik með neysluna af ótta við að verða jaðarsettur, og segist til dæmis alltaf hafa verið „tilbúinn með hreint piss“ ef það ætti að prófa hann fyrir vímuefnum.

Auðveldara að redda kókaíni en bjór

Í þættinum segist hann vera kvíða­sjúklingur með ADHD og að áfengi hafi slökkt á kvíðanum hjá honum. Hann prófaði kannabis og amfetamín en þau efni gerðu ekki það sama fyrir hann og áfengið. Hann áttaði sig á því að það gengi ekki upp að koma heim til mömmu sinnar fullur aðeins þrettán ára gamall þannig að hann fór að leita annarra leiða til að deyfa kvíðann. „Kannski þarf ég að finna mér önnur efni sem er léttara að fela,“ hugsaði hann með sér.

„Það er miklu erfiðara að redda sér áfengi heldur en ólöglegum fíkni­efnum á Íslandi,“ segir hann og á þá sérstak­lega við fyrir ungmenni sem geta ekki farið í Vínbúðina. Hann hafi aðeins fjórtán, fimmtán ára gamall lent í því að geta ómögulega reddað sér bjór en ekkert mál hafi verið að verða sér úti um kókaín, jafnvel um miðja nótt.

Léttir að vera „böstaður“

Vegna refsistefnu í vímuefna­málum hér á landi veigri fólk sér oft við að leita sér aðstoðar, jafnvel þegar mikið liggur við.

Og eftir áralangt leikrit og enda­lausan feluleik segir hann að það hafi í raun verið kærkomið þegar leikritið gekk ekki lengur upp: „Það var léttur að vera böstaður í fyrsta skipti,“ segir hann.

Hér má hlusta á þáttinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur