Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Magnea Gná, yngsti borgarfulltrúi sögunnar: Í skólanum kynntist ég nemum sem höfðu slasast í stríði

„Fyrst og fremst vil ég vinna af heilindum í þágu borgarbúa. Ég vil vera málsvari ungs fólks í borgar­stjórn og brýna þau sjónarmið sem skipta ungt fólki máli; þar eru húsnæðis­málin efst í huga. Það þarf að byggja meira, fjöl­breyttara og hraðar til að tryggja það að ungt fólk geti eignast þak yfir höfuðið. Markmiðið er að hrinda framfara­málum í framkvæmd, stuðla að meiri samvinnu og sátt og auka traust til borgar­stjórnarinnar,“ segir Magnea Gná Jóhanns­dóttir, nýkjörinn borgar­fulltrúi Fram­sóknar og yngsti borgar­fulltrúi sögunnar hér á landi.

Hver væri draumurinn hvað væntanlegan meirihluta varðar og hvers vegna?

„Það væri meirihluti þar sem unnið er að þeim stefnu­málum sem við í Framsókn höfum lagt áherslu á eins og húsnæðis­málin. Ég vil sjá Reykjavík sem er stýrð út frá hagsmunum barna. Við þurfum stór­eflingu í dagvistar­kerfinu, efla þjónustu við barna­fjölskyldur og ekki síst fjöl­skyldur barna með fötlun og félags­starf ungmenna til dæmis varðandi ungmenna­húsin og hækkun frístunda­styrks. Samgöngu- og skipulagsmál eru líka afar brýn en leysa þarf úr umferðar­þunganum með eflingu almennings­samgangna samhliða uppbyggingu gatna­kerfisins og gera ráð fyrir fjöl­breyttum samgöngu­máta. Þá þarf að hanna íbúða­hverfi þannig að þau séu sem sjálf­bærust og huga að umhverfis­málum í öllum framkvæmdum. Við þurfum einnig að hlúa að fjöl­menningar­samfélaginu þar sem fólki líður vel og tilheyrir í hverfum sínum en einnig borginni sem heild.“

Ég tel ekki heilla­væn­legt að vera með öfgar til hægri eða vinstri.

Hvers vegna Framsókn?

„Framsókn er miðju­flokkur sem vinnur með samvinnu að leiðar­ljósi. Ég aðhyllist þá hugmynda­fræði og tel best að vera á miðjunni þótt í ákveðnum málum sé maður kannski aðeins til hægri og öðrum aðeins meira til vinstri. Ég tel ekki heilla­vænlegt að vera með öfgar til hægri eða vinstri en við getum mæst á miðjunni og við þurfum að geta unnið með ólíku fólki og finna grundvöll til að sætta sjónarmið og gera ráð fyrir fjöl­breyttum lausnum.“

Mikilvægt að ungt fólk eigi rödd

Magnea segist lengi hafa haft áhuga á stjórn­málum og vinnu í þágu samfélagsins. „Ég fylgdist töluvert með sveitar­stjórnar­málum í uppvextinum. Ég tók síðan sjálf virkan þátt í barátt­unni fyrir síðustu alþingis­kosningar sem kveikti áhuga minn til að taka enn meiri þátt. Þá hef ég verið virk í Framsókn í Reykjavík síðan ég flutti heim úr námi árið 2018 og tekið þátt í umræðum þar um það sem megi betur fara í Reykjavík og þá sérstak­lega fyrir ungt fólk. Þegar komið var að því að stilla upp á lista í Fram­sóknar ákvað ég að taka af skarið og gefa kost á mér í efstu sætin á lista flokksins. Ég tel mikilvægt að ungt fólk eigi rödd þegar ákvarðanir eru teknar enda mikið af málum á sveitar­stjórnar­stigi sem snerta ungt fólk beint til dæmis húsnæðis- og leik­skólamálin. Ungt fólk er líka sá hópur sem mun erfa ákvarðana­tökur dagsins í dag.“

Kosn­inga­bar­átta er stórt sam­vinnu­verk­efni ólíkra aðila á öllum aldri.

Magnea segir að það sem hún hafi lært af því að taka þátt í kosninga­baráttu sé hvað samvinna og samheldni skilar miklum árangri. „Kosninga­baráttan brýndi fyrir mér mikilvægi gras­rótarinnar sem stóð vaktina kvölds og morgna við undir­búning viðburða, móttöku gesta og úthringingar. Ég á baklandinu og grasrót Fram­sóknar í Reykjavík allt að þakka fyrir árangur Fram­sóknar í kosningunum. Kosninga­barátta er stórt samvinnu­verkefni ólíkra aðila á öllum aldri sem hafa öll það sameiginlegt að vilja láta gott af sér leiða í þágu samfélagsins. Ég fékk líka tækifæri til að tala við marga, heyra ólík sjónarmið borgarbúa á ýmsum málum svo sem þjónustu borgarinnar í hinum ýmsu hverfum og fara í heim­sóknir til fyrir­tækja, félaga og stofnanna og öðlast um leið mikilvæga innsýn inn í starfsemi, þarfir og áherslur þessara aðila.“

Hvað með langtíma­markmið Magneu varðandi stjórn­málin?

„Að ákvarðanir sem ég tek þátt í verði samfélaginu til hagsbóta. Ég er enn að átta mig á þessu nýja hlutverki. Hvað framtíðin innan stjórn­mála ber í skauti sér á enn eftir að koma í ljós. En ég mun gera mitt besta til að rísa undir því trausti sem mér er sýnt og vona að borgar­búar verði duglegir að koma sjónar­miðum sínum á framfæri og láta vita af því hvar gera má betur því við erum í þjónustu þeirra.“

Bjó í Noregi og Taílandi

Magnea fæddist á Land­spítalanum árið 1997 en ólst upp á Hanhóli í  Bolungarvík. Foreldrar hennar eru Guðrún Stella Gissurar­dóttir og Jóhann Hannibalsson og er Magnea ein fjögurra systra. Hinar eru Ásta Björg, Þorsteina Þöll og Salvör Sól.

„Ég man ekki eftir mér öðruvísi en með miklar skoðanir á samfélaginu. Ég hef alltaf verið með mikla réttlætis­kennd og brennandi áhuga á samfélags­málum. Ég á kannski ekki langt að sækja stjórnmála­áhugann því foreldrar mínir hafa bæði verið virk í stjórn­málum um langt skeið og hafa til að mynda bæði setið í bæjar­stjórn og komið að ýmsum samfélags­verkefnum. Stjórnmála­umræðan var því alltaf hluti af umræðunni við eldhús­borðið.

Ég átti frekar venjulega barnæsku; æfði sund, prófaði að læra á ýmis hljóðfæri, tók þátt í leik­félaginu, ungliða­deild björgunar­sveitarinnar og var í nemenda­ráði félags­miðstöðvarinnar og í ungmenna­ráði. Í grunn­skólanum var lögð mikil áhersla á alþjóða­samstarf sem vakti áhuga minn á alþjóða­samvinnu en ég tók þar þátt í Evrópu­verkefnum meðal annars um samfélags­frumkvöðla.

Fékk ég það tæki­færi að fara sem full­trúi Íslands í alþjóð­legan mennta­skóla í Noregi.

Eftir stutt stopp í Mennta­skólanum á Ísafirði fékk ég það tækifæri að fara sem fulltrúi Íslands í alþjóð­legan mennta­skóla í Noregi. Þannig að ég flutti að heiman rétt rúmlega 18 ára. Skólinn sem ég fór í er undir alþjóða­framhalds­skóla­hreyfingunni United World College sem leggur áherslu á að sameina fólk, þjóðir og menningu fyrir frið og sjálfbæra framtíð í gegnum menntun. Einnig var lögð áhersla á að efla leiðtoga­færni og frumkvæði.

Í skólanum voru 200 nemendur frá um það bil 95 löndum. Við bjuggum saman fimm í herbergi og 40 í húsi. Þess var gætt að sem flest þjóðerni ættu sinn fulltrúa og að í hverju herbergi mættust einstaklingar frá ólíkum menningar­heimum. Á mínu fyrsta ári var ég til að mynda með stelpum í herbergi frá Síerra Leóne, Kosta Ríku, Frakk­landi og Kambódíu. Það spáðu margir í það hér heima hvernig það gengi upp að búa svo þétt með fjórum ókunnugum stelpum í herbergi. En það var í raun ekkert mál. Maður lærir bara að virða þarfir náungans og sýna þeim virðingu. Maður lærir líka að skilja ólíka menningar­hætti þjóða og einblína frekar á það sem sameinar okkur í stað þess sem sundrar. Í skólanum kynntist ég nemum sem flúið höfðu stríðs­hrjáð lönd og svæði, nemendum sem höfðu slasast í stríði og nemendum sem sættu ofsóknum í heima­landi sínu vegna meðal annars kynhneigðar og trúar­skoðana. Þetta mótar mann og fær mann til að vilja taka þátt í að móta samfélag þar sem gert er ráð fyrir fjöl­breytni og ólíkum þörfum með samvinnu að leiðar­ljósi. Þá gerði ég mér grein fyrir hversu lýðræðið er mikilvægt og nauðsyn þess að standa vörð um það og efla meðal annars með því að taka þátt í stjórnmála­starfi.

Ég var í stúd­enta­ráði United World College RCN í nor­egi 2016-2017.

Í skólanum var ég fulltrúi hússins sem ég bjó í á heimavist skólans og í stúdenta­ráðinu en í því fólust ýmis verkefni svo sem að sinna velferð nemenda sem stundum áttu erfitt með að vera fjarri heima­högum, taka á samskipta­vanda og vera tengi­liður við yfir­stjórn skólans auk þess að gæta að ýmsum umhverfis­verkefnum skólans.

Ég var í stúdenta­ráði United World College RCN í noregi 2016-2017. Það var frábær reynsla og mikil áhersla lögð á lýðræði innan skólans.  Við héldum opna fundi hvern sunnudag fyrir nema skólans þar sem þeir gátu komið sínum málum á framfæri og síðan tókum við boltann og reyndum að finna lausnir á þeim verkefnum sem uppi voru í samstarfið við skóla­stjórnendur.

Eftir dvölina í Noregi bauðst mér að fara sem starfs­nemi til Taílands í eitt ár til aðstoða við að setja á laggirnar UWC skóla og reyna að miðla umburðar­lyndi og lýðræðis­legum vinnu­brögðum í félags­störfum nemenda. Þar kynntist ég líka asískri menningu og fékk tækifæri til að ferðast um þennan heims­hluta og kynnast mismun­andi viðhorfum, ólíkum efnahag og svæðum þar sem íbúar búa við slakt velferðar­kerfi, skoða skipulag ólíkra borga og bæja og safna í sarpinn kostum og göllum þessara samfélaga.“

Mannréttindi og réttindi barna

Magnea er í meistara­námi í lögfræði við Háskóla Íslands; á fjórða ári. „Ég hef einkum lagt áherslu á áfanga í meistara­náminu sem tengjast mann­réttindum og réttindum barna. B.A.-ritgerðin mín var skrifuð á sviði barna­réttar með áherslu á þátttöku barna en ritgerðin fjallar um lækkun kosninga­aldurs. Þegar kemur að lögfræðinni væri ég helst til í að vinna innan þess áhuga­sviðs án þess að vera búin að gera upp hug minn innan hvaða starfs­vettvangs það væri.“

Magnea sagði frá verkefnum sínum í Noregi og Taílandi og svo hefur hún tekið þátt í félags­störfum stúdenta hér heima og gegndi hún embætti alþjóða­ritara Orators, félag laganema við Háskóla Íslands, 2021-2022 þar sem hún sá um alþjóða­samstarf laganema. Hún bendir á að lagadeild eigi langa sögu af norrænu samstarfi og samstarfi við bandarískan háskóla í Ohio. Þá sat hún í jafnréttis­nefnd Háskóla Íslands 2019-2020.

Það er mik­il­vægt að ungt fólk hafi vett­vang innan stjórn­mál­anna.

Magnea er formaður Ung Framsókn í Reykjavík. „Það er von mín að starfið muni eflast enn frekar með auknu fylgi í borginni og nýjum borgar­málaflokki og að ungt fólk komi meira að stefnu­mótun samfélagsins og sinnar framtíðar. Það er mikilvægt að ungt fólk hafi vettvang innan stjórn­málanna þar sem það getur komið sínum sjónar­miðum á framfæri og kynnst starfi stjórn­málaflokka. Áður en ég tók við formennsku í Ung Framsókn hafði ég verið í stjórn félagsins og kynningar­stjóri Sambands ungra Fram­sóknarmanna. Fyrir hönd Sambands ungra Fram­sóknarmanna hef ég í tvígang tekið þátt í Norður­landaráði æskunnar.“

Hugleiðsla og núvitund

Hvað með áhuga­málin?

„Ég hef verið mjög virk í ýmsum félags­störfum í gegnum tíðina og félags­starf bæði innan Fram­sóknar og utan hefur einkennt líf mitt síðustu ár. Þá hef ég sennilega verið í nefnd eða nemenda­ráði í öllum skólum sem ég hef verið í. Vinir mínir grínast stundum með það hvaða húsfélag ég ætli að bjóða mig fram í næst en líklega er samfélagsáhugunn og viljinn til að breyta og bæta meðfæddur.

Ég fer töluvert í sund og stunda hugleiðslu og núvitund sem ég kynntist þegar ég bjó í Taílandi og hef reynt að halda því við hér heima. Ég hef einnig gaman af útivist og elska að vera úti í nátt­úrunni. Pabbi er mikil fjalla­geit þannig ég ólst upp við að klífa fjöll fyrir vestan frá því að ég var farin að ganga. Fjöl­skyldan mín er mjög náin og samheldin. Ég held að sá dagur líði ekki sem ég tala ekki við foreldra mína og systur og við reynum að eiga eins margar samveru­stundir og hægt er.“

Heim­ur­inn varð ein­hvern veg­inn minni.

Magnea segir að það að flytja ung til útlanda í krefjandi alþjóðlegt nám og umhverfi sé sú lífs­reynsla sem hafi mótað sig. „Ég held að ég hafi aldrei lært jafnmikið á skömmum tíma. Í skólanum kynntist ég gjör­ólíkum menningar­heimum sem gat oft verið krefjandi þegar menningar­árekstrar áttu sér stað en maður lærir með tímanum að einblína frekar á það sem sameinar okkur í stað þess sem sundrar eins og ég sagði. Tímabilið einkenndist af stans­lausri ögrun á gildi mín og viðhorf í lífinu enda fólk þarna saman komið sem hafði allt önnur sjónarmið á lífið og gildi en ég. Það vakti upp ýmsar spurningar hjá mér og varð til þess að ég  horfði út fyrir boxið og ég leit ef til vill heiminn og veröldina öðrum augum á eftir. Heimurinn varð einhvern veginn minni og nær og ég eignaðist á þessum tíma vini í flestum löndum eða landsvæðum veraldarinnar.“

Hverjir eru draumarnir varðandi fram­tíðina burtséð frá pólitíkinni?

„Að láta gott af mér leiða, vera hamingjusöm og eiga þátt í að aðrir geti líka verið hamingju­samir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur