Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sóli Hólm mætir með posa í Fjárhúsið á Valgeirsstöðum: „Ég er Herbert minnar kynslóðar“

„Ég hef aldrei áður komið í Árnes­hrepp en lengi verið á leiðinni,“ segir skemmtikrafturinn Sóli Hólm, sem skemmtir íbúum og gestum í Árnes­hreppi í höfuð­stöðvum Ferða­félags Íslands í hreppnum. Viðburðurinn verður laugardags­kvöldið 2. júlí og fer fram í Fjár­húsinu á Valgeirs­stöðum í Norður­firði þar sem margir listamenn hafa stigið á stokk undan­farin sumur. Fasta­gestur þar hefur verið Bjartmar Guðlaugsson en einnig má nefna Lay Low og Mugison sem smekk­fyllti Fjárhúsið á sínum tíma þegar 240 manns mættu til að hlusta á hann.

Sóli Hólm í ýmsum hlut­verkum.

Sóli hefur slegið rækilega í gegn með sýningum sínum og víst að hann mun kæta þá sem mæta. Hann er spenntur fyrir því að mæta í Árnsehrepp.

„Það verður gaman að skemmta í fyrsta sinn á þessu svæði, bæði heima­fólki sem og fótfráum göngu­görpum,“ segir hann.

Verð á miða er 5500 krónur. Miðasala verður við dyrnar. Sóli segist verða með posa.

„Já, auðvitað. Ég er Herbert minnar kynslóðar,“ segir hann.

Sóli hefur gert víðreist um landið í sumar. Hann skemmtir í Búðardal 1. júlí. Þann 15 júlí mun hann skemmta á Eskifirði. Sýningar Sóla hafa slegið rækilega í gegn. Hann hefur sýnt alls 35 sinnum í Bæjarbíó í Hafnar­firði fyrir fullu húsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt