Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Joðskortur áhyggjuefni fyrir börn verðandi mæðra: „Það þarf að snúa þessari þróun við strax“

Mjólkur- og fisk­neysla íslendinga hefur minnkað umtals­vert síðastliðinn áratug. Næringa­fræðingar hafa áhyggjur af neyslu­mynstri íslendinga og þá sérstak­lega ungra kvenna á barneingaaldri. 80% íslenskra kvenna fá ekki nægilegt magn af joði og getur það haft neikvæð áhrif á börn í móður­kviði. Að stórum hluta skýrist þetta á lítilli neyslu á mjólkur­vörum og hvítum fisk.

Börn þeirra mæðra sem neita ekki nægilegs magns af joði á meðgöngu geta glímt við náms­erfiðleika, þroska­skerðingu og vitræna skerðingu. „Það þarf að snúa þessari þróun við strax,“ segir Jóhanna Eyrún Torfa­dóttir, næringar­fræðingur hjá Embætti land­læknis, í samtali við Kastljós.

„Skjald­kirtillinn er einn af aðal­innkirtlum líkamans og sér um að halda jafnvægi á hormónum hans. Ójafnvægi í starfsemi skjald­kirtils getur leitt til ýmiss konar einkenna, helstu einkenni joðskorts eru m.a. þreyta, þyngdar­aukning, svefn­leysi, síþreyta og aukin næmni fyrir kulda.

Fóstur framleiða ekki eigin skjald­kirtils­hormón fyrr en á öðrum þriðjungi meðgöngunnar og eru því háð skjald­kirtils­hormónum frá móður sinni og flutningi þeirra yfir fylgju fram að þeim tíma. Þegar fóstur fara að framleiða eigin skjald­kirtils­hormón eru þau samt sem áður háð joði frá móður til að geta framleitt eigin skjald­kirtils­hormón. Þess vegna eru barns­hafandi konur í sérstökum áhættu­hópi,“ segir á síðu Heilsu­gæslu Höfuð­borgar­svæðisins.

Þess má geta að eitt vinsælasta vítamínið fyrir verðandi mæður hér á landi, Með barni sem framleitt af Heilsu ehf, inni­heldur ekkert joð.

Einnig hefur ávaxta­neysla minnkað, neysla á mettaðri fitu aukist. Ráðleggingar Embættis land­læknis eru þær að fá ekki meira en 10% orkunnar úr mettaðri fitu en aðeins 2% þjóðarinnar fer eftir þeim.

Skortur á trefjum er það sem skiptir mestu máli þegar skoðað er ástæður á bak við ótímabær dauðsföll í heiminum. „Ef þessu mataræði er haldið svona í langan tíma er aukin hætta á krabba­meinum, hjarta-og æðasjúldómum og á sykursýki tvö,“ segir Jóhanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur