Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hildur Sólveig, bæjarfulltrúi í Eyjum: „Vinir, fjölskylda, trúin og vonin skiptir miklu máli“

Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir

„Að geta lagt mitt af mörkum við að gera samfélagið mitt betra og að vera börnum mínum góð fyrirmynd skiptir mig miklu máli. Ég vil geta notið lífsins í Vestmanna­eyjum, því hér á ég heima,“ segir Hildur Sólveig Sigurðar­dóttir þegar hún er spurð hverjir draumar hennar séu og markmið varðandi stjórn­málin og persónu­lega lífið, en hún er bæjar­fulltrúi í Eyjum og í 2. sæti á lista Sjálfstæðis­manna fyrir kosningarnar á laugardag. Hildur Sólveig hefur tekið þátt í stjórn­málum síðan 2010. „Á þeim tíma hef ég lært mikið um rekstur sveitar­félagsins, kynnst atvinnu­lífinu mun betur, eignast vini fyrir lífstíð og áttað mig á að allir geta haft áhrif á nærsamfélagið sitt og að sveitar­félagið samanstendur fyrst og fremst af íbúunum sem það byggja.“

Jú, það styttist í kosningar. Hvernig hafa síðustu dagar verið?

„Mjög skemmtilegir en annasamir. Mikið um að vera, fjölmargir viðburðir og marga að hitta sem bætist ofan á hitt hversdags­lega umstang. En þetta er mjög lærdóms­ríkur tími og gaman að kynnast betur meðframbjóðendum sínum og samfélaginu enn betur.“

Eins vill unga fólkið eiga mögu­leika á að geta stundað háskóla­nám í heima­byggð.

Hvað brennur helst á fólki sem Hildur Sólveig hittir á kosninga­fundum? Hvað er fólk helst ánægt með og hverju vill fólk helst breyta?

„Fólk er almennt ánægt með og stolt af Vestmanna­eyjum. Heilbrigðis­málin, samgöngu­málin, rafmagns­málin og málefni eldri borgara brenna þó á mörgum og hagsmuna­gæslu gagnvart þessu þarf að bæta. Við finnum líka að það brennur mikið á unga fólkinu að fá aðstöðu til sköpunar á hinum ýmsu sviðum og við viljum svara því. Eins vill unga fólkið eiga möguleika á að geta stundað háskólanám í heima­byggð með öflugra fjarnámi eða hafa möguleika á að flytja störfin sín aftur heim. Til þess að það sé möguleiki þarf aðstaða að vera til staðar og góð nettenging og við viljum svara því ákalli fljótt og vel.“

Hvað hefur verið erfiðast í kosninga­baráttunni og hvað er eftir­minnilegast?

„Þegar maður er fjarri fjöl­skyldu og heimili löngum stundum en það gleymist fljótt þegar maður mætir heim og hleður batteríin með nokkrum knúsum og sögum af því sem gerðist hjá krökkunum í skólanum. Eftir­minnilegast eru öll góðu samtölin og augna­blikin með kjósendum til dæmis þegar við Gísli, meðframbjóðandi minn, bönkuðum til að afhenda stefnu­skránna hjá einum, fengum kaffi og tókum blús.“

Hildur Sólveig er spurð hvað það gefi henni að gefa kost á sér og vilja vinna að áherslu­málum sínum?

„Að vera virkur þátt­takandi í mótun samfélagsins er mjög gefandi. Þegar maður finnur að maður hefur bein áhrif á það hvernig þjónustu er verið að veita og þegar maður sér áþreifanlegan árangur, til dæmis að sitja fundi með samgöngu­ráðherra í aðdrag­anda yfirtöku Herjólfs og finna að samstaða bæjar­stjórnar og sú skilaboð sem þar voru send skiluðu því að reksturinn í dag er í okkar höndum og að finna að hörð varnar­baráttan fyrir sýslumanns­embættinu skili árangri. Þá finnur maður að þetta er klárlega þess virði að verja tímanum í.“

Ég hef reynslu og þekk­ingu sem ég vil miðla áfram.

Hildur Sólveig segist gefa kost á sér þar sem stjórn­málin séu skemmtileg og gefandi. „Þar hef ég eignast marga af mínum betri vinum. Ég tel líka að á meðan ég hef metnað og eldmóð fyrir samfélaginu þá geti ég unnið Vestmanna­eyjum gagn. Ég hef reynslu og þekkingu sem ég vil miðla áfram og ég hef óbilandi trú á mögu­leikum Vestmanna­eyja.“

Hver eru svo áherslu­málin?

„Ég vil tryggja sjúkra­þyrlu á Suðurland með vetursetu í Vestmanna­eyjum, ég vil bættar og reglulegar flug­samgöngur við Eyjar, ég vil leggja áherslu á aukið framboð fjar­námsleiða í háskóla­námi, ég vil að til sé aðstaða fyrir fólk sem vill flytja störf sín með sér til Eyja og stunda hér fjarvinnu og ég vil efla stuðning við aðila með nýsköpunar­hugmyndir.“

Hvers vegna Sjálfstæðis­flokkurinn? „Því hann leggur meðal annars áherslu á lágar álögur, frelsi og einstaklings­framtakið.“

Fimm mínútur í burtu

Hildur Sólveig er gift Sindra Ólafssyni, hagfræðingi og ritstjóra Eyja­frétta. „Saman eigum við þrjú börn, Aron, tólf ára, Söru Rós, átta ára, og Drífu, níu mánaða,“ segir Hildur Sólveig, sem fyrir utan að vera bæjar­fulltrúi er sjálfstætt starfandi sjúkra­þjálfari og fyrir­lesari.

Hún segir að það að hafa eignast börnin þrjú hafi mótað hana mest. „Það er ekkert jafn­auðmýkjandi en á sama tíma vald­eflandi og að eignast barn. Maður lærir svo mikið um sjálfan sig og jafnvel foreldra sína þegar maður verður sjálfur foreldri. Ég veit að það er ekki sjálf­gefið að fá að eignast börn og er ég afar þakklát að hafa fengið það tækifæri og sem einkabarn ákvað ég að ég myndi aldrei eignast færri en tvö gæti ég yfirhöfuð ráðið einhverju þar um.“

Þessa þætti er mik­il­vægt að rækta bæði í gleði og sorg.

Hvað er það erfiðasta sem hún hefur gengið í gegnum og hvernig hefur það mótað hana?

„Það eru nokkrir atburðir sem koma fyrst í hugann; fyrst kannski skilnaður foreldra minna sem auðvitað hefur áhrif á börn, þegar frum­burðurinn veiktist af ungbarna­flogaveiki og við þurftum að dvelja á barna­spítalanum og svo fráfall æsku­vinkonu. Allir þessir atburðir hafa sýnt manni hvað vinir, fjöl­skylda, trúin og vonin skiptir miklu máli og getur fleytt manni yfir erfiðustu tímana og þessa þætti er mikilvægt að rækta bæði í gleði og sorg.“

Vestmanna­eyjar. Þar sem eldar loguðu úr jörðu og háhyrningurinn Keikó kom við á sínu lífssundi. Hvað er best við Vestmanna­eyjar? Hver er uppáhalds­staðurinn þar og hvers vegna?

„Samfélagið, samheldnin og íbúarnir. Fram­úrskarandi íþróttalíf, stór­brotin náttúra og að allt er bara í fimm mínútna fjarlægð. Hér verður einfald­lega meira úr tímanum. Stafsnesið er uppáhalds­staðurinn minn, hann er nokkurs konar leyni­paradís þar sem er yndislegt að vera á góðum sumar­dögum í góðra vina hópi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur