Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Segir framtíð ríkisstjórnarinnar skýrast á næstu vikum: „Í mínum huga gengur þetta ekki lengur“

Ríkisstjórn Íslands
Rík­is­stjórn Íslands Mynd: Rúv – Ragnar Visage

Brynjar Níelsson segir að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið gangi ekki mikið lengur.

Vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Brynjar Níelsson var gestur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bergþórs Ólasonar í jóla­þætti Sjón­varps­lausir fimmtu­dagar, hlað­varps­þætti þeirra Mið­flokks-félaga.

Í þætt­inum, sem fór í loftið þann 21. des­em­ber, var hann meðal ann­ars spurður út í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið, svona í lok árs. „Það verður að segj­ast eins og er að þetta er ekk­ert sér­stakt ástand,“ svar­aði Brynjar og hélt áfram. „Ég held að ég geti alveg full­yrt það, og það blasir alveg við öllum, alveg sama þó ég sé vara­þing­maður og hluti af þess­ari rík­is­stjórn í þeim skiln­ingi, þetta er mjög þungt. Þetta er mjög þungt og það næst ekki almenni­leg sam­staða um mik­il­væg mál eða hefur ekki gert það.“

Bergþór spurði þá hvort náðst hefðu í raun sam­staða um ein­hver stór mál, þó menn geti ákveðið að „kyngja og þegja.“
Brynjar: „Já, já, menn eru alltaf að kyngja og þegja, það er hluti af því að vera í þessu en það eru auð­vitað risa­stór mál sem varða hags­muni þjóð­ar­innar, hvort sem það raf­orkan eða hæl­is­leit­endur eða glíman við verð­bólg­una. Það verður bara að segj­ast eins og er að ekki að sjá að það sé mikil sam­staða í því. Og þá kannski ger­ist heldur ekki mikið. En ég ætla nú ekki að vera svo svart­sýnn að úti­loka það að menn kom­ist að skyn­sam­legri nið­ur­stöðu en sá tími er bara að renna út.“

Sig­mundur Davíð spurði þá hvort það komi sá tíma­punktur að Sjálf­stæð­is­menn segir „Hingað og ekki lengra. Nú hættum við að gefa eftir og nú klárum við þessi mál, komum ein­hverju skikki á hæl­is­leit­enda­málin og orku­málin og fleira, eða þetta er bara búið.“ Sig­mundur sagð­ist hafa heyrt að Vinstri grænir geri mikið af því að stilla Sjálf­stæð­is­flokknum upp við vegg og hóti að hætta sam­starf­inu, fái þeir ekki sínu fram. Segir Sig­mundur að Sjálf­stæð­is­menn komi þá „trítlandi“ fram og geri það sem Vinstri grænir biðja um.
Brynjar svar­aði: „Já, það er nú til­hneig­ingin hjá okkur Sjálf­stæð­is­mönnum að reyna að halda lífi í öllu. Halda áfram og vona að menn sjái að sér. En auð­vitað eru ein­hver tíma­mörk á því.“

Þarna greip Sig­mundur Davíð fram í og spurði hvort þetta hafi ekki heyrst nokkuð lengi.
„Jú,“ svar­aði Brynjar og hélt áfram. „Ég er bara að reyna að vera eins mildur og ég get.“ Vakti þetta svar kátínu þátta­stjórn­enda. „Þér var ekki boðið hingað til að vera mildur,“ sagði Sig­mundur upp úr hlát­ur­rok­unum. „Ekki fara að taka upp nýjan karakter allt í einu hér í jóla­þætt­inum.“

„Nei, auð­vitað er það í mínum huga þá gengur þetta ekki lengur. Þú verður bara að taka á þessu. Og það bara kemur í ljós á fyrstu vik­unum eftir ára­mót, hvort það sé hægt að halda þessu áfram. Og það blasir bara við öllum, það þarf engan Brynjar Níelsson til að segja ykkur þetta.“

Hægt er að finna við­talið í heild sinni á Spotify og sjálf­sagt fleirum hlað­varpsmiðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum