Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Deilur innan meirihlutans í Hafnarfirði: „Málið ekki fengið efnislega meðferð í Fjölskylduráði“

Það er hiti í Hafnar­firði; nánast við suðumark. Og hér er um að ræða klofning í meirihluta Sjálfstæðis­flokks, Framsóknar­flokks og Óháðra.

Það er stutt í sveita­stjórnar­kosningar, en þær fara fram þann 14. maí næst­komandi.

Í Hafnar­firði hefur átt sér stað viðsnúningur; sigur Guðmundar Árna Stef­ánssonar í próf­kjörinu hefur nánast endurnýjað Samfylkinguna í Hafnar­firði. Og kannanir sem flokkarnir í Hafnar­firði hafa sjálfir látið gera sýna fram á mikla fylgis­aukningu Samfylkingarinnar og mikið fylgis­hrun hjá Sjálfstæðis­flokknum. Framsóknar­flokkurinn gæti hangið inni með sinn eina mann.

Því er komin ansi hressileg tauga­spenna í röðum Sjálfstæðis­manna og Fram­sóknarmanna í Hafnar­firði; og það virðist sjást vel þegar skoðað er mál sem snýst um aksturs­þjónustu Hópbíla og það tekjufall sem fyrir­tækið telur sig hafa orðið fyrir vegna Covid 19. Þar eru Sjálfstæðis­menn ekki hrifnir af því sem Ágúst Bjarni Garðarsson (líka alþingis­maður sem þáði eða þiggur jafnvel enn tvöföld laun, frá bæði ríki og bæ þrátt fyrir loforð um annað) lagði fram um málið –  en í fundar­gerð um það má lesa eftir­farandi:

2011573 – Samningar um sérhæfða akstursþjónstu og skóla- og frístunda­akstur, tekjufall Samningar um sérhæfða aksturs­þjónustu, tekjufall. Fulltrúi Fram­sóknar og óháðra bókar eftir­farandi. Fulltrúi Fram­sóknar og óháðra tekur jákvætt í erindi Hópbíla um tekju­fallsstyrk. Á þessum Covid tímum hafa Hópbílar haldið úti góðri og samfelldri þjónustu. Hópbílar hafa, eins og svo mörg önnur fyrirtæki, orðið fyrir tekju­falli vegna faraldursins. Mikilvægt er að bregðast við, eins og víða hefur verið gert, til að tryggja áfram­haldandi þjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp.

Fulltrúi Framsóknar­flokksins í bæjar­stjórn er Ágúst Bjarni Garðarsson, sem einnig er þingmaður fyrir sama flokk, og hefur þegið tvöföld laun – frá Hafnar­fjarðarbæ fyrir setu í bæjar­stjórn og fjölda nefnda sem og frá Alþingi, eins og sjá má hér.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru ekki sáttir

Helga Ingólfs­dóttir er einn af fimm bæjar­fulltrúum Sjálfstæðis­flokksins, og hún er ekki sátt við afgreiðslu málsins. Segir meðal annars:

„Ekki hafa fengist skýringar frá formanni bæjarráðs á forsendum sem liggja að baki mismun­andi prósentum vegna viðbótar­greiðslna né nákvæmar fjárhæðir á þeim greiðslum sem hafa verið samþykktar sem eru um 140 miljónir vegna ársins 2020, 2021 og 2022. Ekki liggja fyrir viðaukar fyrir hluta af þessum greiðslum. Afgreiðslur í bæjarráði varðandi tekju­fallstyrki til verksala hafa verið án aðkomu eða samráðs við Fjölskylduráð sem fer með forræði á samningi um Sérhæfða aksturs­þjónustu í Hafnar­firði í umboði bæjar­stjórnar.“

Samingurinn sem um ræðir var gerður í mikilli samvinnu við Ráðgjafarráð fatlaðs fólks í Hafnar­firði sem áttu tvo fulltrúa í starfs­hópi Fjölskyldu­ráðs sem undirbjó útboð vegna samningsins og sem yfirfór þjónustu­þörf og skoðaði leiðir að því markmiði að gera aksturs­þjónustuna skilvirkari og hagkvæmari en verið hafði í samvinnu­verkefni um þjónustuna frá árinu 2015 undir yfir­umsjón Strætó BS. Með starfs­hópnum starfaði Innkaupa­stjóri Hafnar­fjarðar­bæjar og verk­fræðingur. Með því að skilgreina þarfir og skipulag þjónustunnar náðist fram mikilvæg hagræðing í núverandi samingi án þess að slakað væri á kröfum um gæði og það ásamt því að heimastöð verksala er í Hafnar­firði er megin­ástæða þess að hagstæður samingur var gerður milli aðila en jafnframt sú mikla reynsla sem verksali býr yfir. Viðbótar­greiðslur vegna viðmiðunar­fjölda ferða eiga ekki við miðað við samnings­forsendur.

Fulltrúi Samfylkingarinnar, Árni Rúnar Þorvaldsson bókaði:

„Undir­ritaður tekur jákvætt í erindið enda mikilvægt að tryggja áfram­haldandi rekstur þessarar mikilvægu þjónustu. Fulltrúi Samfylkingarinnar harmar hins vegar þau vinnu­brögð meirihluta Fram­sóknar- og Sjálfstæðis­flokks að halda fjölskyldu­ráði frá umræðu um málið þar til nú og taka ákvarðanir án samráðs við fjölskylduráð í máli sem heyrir undir ráðið. Meirihlutinn ber því alla ábyrgð þeim vandræða­gangi sem nú er kominn upp vegna málsins. Fulltrúi Viðreisnar tekur undir bókun frá fulltrúa Samfylkingarinnar.“

Fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins Kristjana Ósk Jóns­dóttir bókar:

„Ég harma að málið hafi ekki fengið efnislega meðferð í Fjölskyldu­ráði fyrr. Og tek ekki afstöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá