Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigríður Eyþórsdóttir hefur unnið marga sigra í lífinu: „Við erum að lifa draum sem nú hefur ræst“

Sigríður Eyþórsdóttir Ljósmyndari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förðunarfræðingur: Helen Dögg Snorradóttir. Myndir teknar í hljóðverinu Hljóðrita í Hafnarfirði.
Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Mannlíf ræddi við Sigríði Eyþórs­dóttur í byrjun apríl og birtist viðtalið í kjölfarið í blaðinu. Í tilefni dagsins verður viðtalið birt hér á vefnum í heild sinni.

„Við viljum standa okkur fyrir Ísland. Okkur þykir svo vænt um landið okkar. Við finnum fyrir svo mikilli samstöðu og ég er svo stolt af tungu­málinu okkar. Það er eins konar „leyni­tungumál“. Þess vegna er svo gaman að fá að syngja þennan gull­fallega texta við lagið sem Lovísa samdi.“

Sigríður Eyþórs­dóttir sigraði í Söngva­keppni sjón­varpsins árið 2022 ásamt systrum sínum, Elínu og Betu, og Eyþóri, bróður þeirra á trommum, með flutningi sínum á laginu Með hækkandi sól.

Sigríður Eyþórðs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir Gleraugu frá Optical studio Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði

Á borðinu er rjúkandi kaffi og heitt súkkulaði og blaða­maður hlakkar til að hitta þessa áhuga­verðu konu og kynnast henni betur. Sigga hefur frá mörgu að segja og er tilbúin til að deila með okkur sögum af helstu áskorunum og sigrum hennar í lífinu um leið og við ræðum söngva­keppnina og undir­búninginn fyrir Eurovision.

Við erum ótrú­lega spenntar. Þetta verður mikil vinna, en ég elska að vinna svona mikið

Síðustu dagar hafa verið ótrúlegir í lífi systranna: „Þessi keppni er stærra en allt sem við höfum gert áður. Ég hef alltaf horft á Eurovision, en ég hef aldrei kynnst heiminum á bak við tjöldin. Við kapp­kostuðum auðvitað að koma þessu vel frá okkur. En okkur þótti líka vænt um að fá að kynnast öllu þessu fólki, bæði hinum keppendunum og starfs­fólki RÚV. Það fór örugglega ekki fram hjá neinum að sigurinn kom okkur á óvart. Núna tekur við mikil vinna og skemmtilegur undir­búningur fyrir keppnina á Ítalíu. Svo er ótrúlega gaman að lesa allar jákvæðu athugasemdirnar, flestar jákvæðar, en ekki allar, en gagnrýnin á lagið okkar er sett fram á smekk­legan hátt á erlendum miðlum og Youtube. Þannig að við erum ótrúlega spenntar. Þetta verður mikil vinna, en ég elska að fá að vinna svona mikið.“

Frá vinstri: Elín, Beta, Eyþór og Sigga. Aðsend mynd.

Það eru níu ár á milli Siggu og Elínar og fimm ár á milli hennar og Betu. „Elín er svo voða róleg. Ég er orkumeiri og með mikla ábyrgðar­tilfinningu, of mikla eiginlega, kannski af því að ég er elst. Beta er voða ljúf og oftast ofur jákvæð. Öll börn elska hana, en hún er einmitt að vinna í Hjalla­stefnunni. Það á svo vel við hana. Auk þess erum við svo heppnar að hafa Eyþór litla bróður með okkur, hann er ótrúlega klár söngvari og tónlistar­maður (á trommunum), en hann er sá yngsti í systkina­hópnum.

Foreldrar okkar ólu okkur upp við réttsýni í hugsun. Mamma er alltaf tilbúin að berjast fyrir málstað minnihluta­hópa. Ég er svo þakklát fyrir uppeldið okkar. Þau hafa aldrei sett sig á neinn stall. Við erum bara partur af heildinni og það breytist ekki núna, þrátt fyrir þennan sigur. Við erum frekar jarð­bundnar oftast, en erum líka miklir sveim­hugar.

Þetta er minni­hluta­hópur sem er okkur mjög kær

Við tileinkum flutning okkar mann­réttindum, sér í lagi trans-börnum. Ef við getum notað rödd okkar til þess að styðja við og vera rödd fyrir minnihluta­hópa þá er einhverju náð. Við viljum vekja athygli á þörf fyrir bætta þjónustu við trans-börn, en það er há tíðni sjálfsvígs­tilrauna eða allt að 40%.

Snerti streng hjá mér

Sigga ólst upp í Miðbænum en flutti til Englands þegar hún var tveggja ára. Á þeim tíma var Eyþór, pabbi hennar, að gera það gott með Mezzoforte. „Við bjuggum þar í sirka tvö ár og komum svo aftur heim. Foreldrar mínir sögðu mér að ég hafi sungið frá því að ég var nokkurra mánaða gömul og spilað á píanó frá því að ég var sirka 5 eða 6 ára.

Við bjuggum í Miðbænum þangað til ég varð 10 ára, en þá fluttum við í Vestur­bæinn þar sem ég gekk í Hagaskóla. Þegar foreldrar mínir fluttu síðan í Grafar­voginn varð ég eftir og fór að búa með þáverandi kærasta mínum. Þegar ég var 16 ára fór ég út til Kaupmanna­hafnar sem au pair hjá Kikku (rithöfundinum Kristlaugu Maríu Sigurðar­dóttur) á meðan hún var að skrifa Ávaxta­körfuna. Það var einstök reynsla.“

Ég átti svo tvö börn í milli­tíð­inni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára

Nokkrum árum síðar eignaðist Sigga sitt fyrsta barn með æsku­ástinni. „Ég fór í sjúkraliðanám þegar fyrsta barnið mitt var eins árs. Bókleg fög hafa aldrei höfðað mikið til mín svo að ég fór ekki í mennta­skóla. Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á heilbrigðis­vísindum. En ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara í sjúkra­liðann var að ég hafði hugsað um ömmu mína sem var með krabba­mein. Hjúkrunar­konurnar sem sáu um hana sögðu við mig: „Þú ert svo góð í þessu, þú ættir bara að fara að læra þetta.“ Það snerti einhvern streng hjá mér. Ég átti svo tvö börn í milli­tíðinni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára þegar ég kláraði sjúkra­liðann og stúdents­prófið.“

Sigga giftist Þorsteini Einars­syni, söngvara og gítar­leikara í Hjálmum. „Við eigum tvö yndisleg börn saman. Þegar leiðir okkar skildu eftir langt samband var ég einstæð um tíma, þangað til ég kynntist yndis­legum manni árið 2017. Hann er frá Banda­ríkjunum og núna búum við hér á Íslandi og eigum eitt lítið örverpi saman.“

Sigga ásamt þremur sonum, dóttur og mann­inum sínum. Aðsend mynd.

Mikilvægt að rækta vitundarsamband við líkama sinn

„Eftir sjúkra­liðann fór ég í Lista­háskólann og kláraði nám í tónsmíðum. Samhliða því stofnaði ég hljóm­sveitina Sísý Ey með systrum mínum og vann að hinum ýmsu tónlistar­verkefnum. Fyrir utan tónlistina hafa heilbrigðismál alltaf verið mér hugleikin, sem varð til þess að ég bætti við mig námi í einka­þjálfun. Það var frábært nám. En mig langaði að kafa dýpra og bæta andlega þættinum inn í æfinga­kerfið. Ég er ekki einungis að þjálfa fólk til þess að styrkja sig líkamlega, heldur finnst mér ekki síður mikilvægt að rækta vitundar­samband og bera virðingu fyrir líkama sínum.

Það þýðir ekki að fara bara í megrun og refsa sjálfum sér stans­laust og vera bara: ég ætla að fara með þennan ógeðslega líkama sem ég hata í ræktina og þræla honum út.

Þannig að þegar ég kláraði námið í einka­þjálfaranum fannst mér jóga vera rökrétt næsta skref hjá mér. Ég fann mér jóga­kennara og hef upp frá því stundað jóga næstum daglega. Andleg málefni hafa alltaf verið mikil­vægur hluti af mínu daglega lífi.“

Sigga tók sér tíma­bundið hlé frá tónlistinni þegar hún eignaðist sitt yngsta barn. Þegar Covid skall á ákvað hún svo að bæta við sig námi í hjúkrun. „Mig langar að auka þekkingu mína á heil­brigði til að geta hjálpað fólki að huga vel að sér. Ég hef í gegnum tíðina átt erfitt með saman­burðinn sem fylgdi mér við að vera tónlistar­kona. Það var ekki alltaf uppbyggilegt. Það getur verið erfitt að lesa gagnrýni um sjálfan sig. Þú opinberar þig svo rosalega í listinni, þannig að það er auðvelt að taka neikvæðri gagnrýni mjög persónu­lega.“

Ég við­ur­kenni alveg að mér sárn­aði þegar ég sá sumar athuga­semdir sem komu eftir sig­ur­inn í Söngvakeppn­inni

Núna er Sigga aftur komin af stað með systrum sínum í tónlistinni. Hún finnur fyrir miklum styrk og er tilbúin til að helga sig alfarið þessu nýja verkefni. „Það er vissulega erfitt að lesa óbilgjarna gagnrýni, sem manni finnst ekki sett fram af virðingu. Ég held að margir tónlistar­menn fái illt í hjartað og hætti jafnvel í tónlist, því það getur verið svo erfitt að finna sjálfs­traustið þegar búið er að segja ósann­gjarna hluti. Auðvitað hefur fólk mismun­andi skoðanir á því sem maður gerir, en sé gagnrýnin ekki sett fram af virðingu þá getur það verið sárt. Ég viðurkenni alveg að mér sárnaði þegar ég sá sumar athuga­semdir sem komu eftir sigurinn í Söngva­keppninni. Ég staldraði hins vegar ekkert við það. Við erum sterkar saman systurnar og við erum með góðan hóp í kringum okkur sem heldur vel utan um okkur.“

Kvíði og áfengi er ekki góður kokteill

„Ég greindist seint með ADHD, rétt fyrir þrítugt, en hafði vitað lengi að ég væri líklegast með ADHD. Þegar ég hugsa til baka þá hefur þetta sennilega verið fyrsta alvöru áskorunin. Það hefur haft mikil áhrif á allt mitt líf. Maður er með hugann úti um allt og upplifir sig alltaf að vera að trufla. Sérstak­lega í skóla­kerfi þar sem ætlast er til þess að maður haldi sig innan ákveðins ramma. Margir kennarar höfðu litla trú á mér og voru neikvæðir í minn garð.

Næsta stóra áskorunin var að takast á við átröskun sem ég þróaði með mér eftir að ég átti fyrsta barnið mitt. Ég fór í meðferð við átröskun hjá Hvíta bandinu og vann mig út úr henni og verið í bata síðan 2015. Það var mjög stórt verkefni fyrir mig, jafnvel eitt það erfiðasta.“

Því næst tók við tímabil þar sem Sigga komst að því að hún átti ekki samleið með áfengi.  „Ég er oft að kljást við kvíða og þegar maður notar alkóhól til að deyfa sig þá verður það fljótt víta­hringur. Kvíði og áfengi er ekki góður kokteill. Kvíðinn bara eykst. Ég er því búin að vera edrú í tíu ár, fyrir utan nokkra mánuði. Á þeim tíma hafa lífsgæði mín aukist mikið. Hugleiðslan og heilbrigt líferni hefur gjör­breytt öllu hjá mér. Ég gæti ekki hugsað eins vel um börnin mín og ég geri í dag ef ég hefði ekki látið af þessari sjálf­hverfu sem fylgir því oft að lifa óábyrgum og óheil­brigðum lífsstíl að fara illa með áfengi.

Hjá mér snerist þetta um að átta mig á því að ég væri ekki upphaf og endir á þessu öllu. Þó svo að ég muni kannski aldrei komast að tilganginum með jarðvist minni, þá þarf ég samt að trúa á það góða. Við erum öll bara sálir á ferðalagi með mismun­andi ramma.“

Sigga segir: „Raskanirnar voru á endanum mér í hag. Það truflar mig óneitanlega oft að vera með ADHD, en oft er það mér í hag.

Ég er líka mjög glöð að vera með ADHD, það er ekki bara áskorun, heldur hef ég áhuga á mörgu og vil alltaf læra meira. Forvitnin mín gerir það að verkum að ég hef mikinn áhuga á öðru fólki. Ég hef enda­lausan áhuga á því að fræðast um nýja hluti. Ég get verið algjör­lega filters-laus, sem getur oft verið fyndið og öðrum til skemmtunar. Ofvirknin getur líka komið sér vel og hjálpað mér að vinna vel og vera dugleg.

Ég hef alltaf upplifað mig vera verri en ég er og hef óskaði þess að vera einhvern veginn betri. Nú er ég bara þannig að ég næ að samgleðjast sjálfri mér og öðrum og vera með, í stað þess að bera mig alltaf saman við aðra.“

Ég er örugglega að koma úr erfiðu fyrra lífi

Frá vinstri: Eyþór Gunn­ars­son, Sigga Ey og Ellen Krist­jáns­dóttir. Aðsend mynd.

Sigga og systurnar eiga sér greini­lega marga aðdáendur. Að borðinu okkar á kaffi­húsinu kemur fólk og óskar henni til hamingju með sigurinn. Sigga þakkar fyrir sig af hógværð og einlægni og fjörugar samræður fara af stað um flutninginn, lagið, Eurovision og stuðning þeirra við trans-börn. Það er ljóst að tilhlökkunin eftir keppninni í vor er mikil. Eftir áhugavert samtal um keppnina horfum við hvor á aðra og drögum andann djúpt. Svo tökum við upp þráðinn að nýju og ræðum aðeins betur um kvíðann, sem Sigga segir að hafi hrjáð hana alla tíð.

„Ég held að ég hafi örugglega fæðst með kvíða. Ef ég tek þetta út frá jóga­heim­spekinni þá er ég örugglega að koma úr erfiðu fyrra lífi. Mamma og pabbi hafa alltaf talað um að ég hafi verið svo vör um mig þegar ég var barn. Svo gat ég líka verið svo hvatvís, sem er kannski skrítið þegar maður er kvíðinn. Ég fór bara í heimsókn til fólks og treysti bara. Ég labbaði bara inn. Ég trúði því að allir væru góðir, en svo var brotist inn til mín og öllu rænt.

Mér finnst góður eigin­leiki að trúa því að allir séu góðir og ég vil ekki breyta því. Fyrst var ég svolítið hrædd eftir innbrotið, því ég var ein heima með dóttur mína og einhver hefði getað gengið inn á okkur. En svo hugsaði ég; þetta er bara fólk sem er að ströggla í lífinu. Þetta er ekki minn sársauki, þetta er meira þeirra. Ég hafði líka hugsað fyrir innbrotið að ég þyrfti að fara að losa mig við jakka og alls kyns föt, svo þau sáu bara um það fyrir mig. Ég vil ekki festast í reiðinni og ég er ekki langrækin. Ég held að reiði sem tilfinning sé stundum nauðsynleg til þess að koma manni í gegnum erfið áföll svo maður gefist ekki upp. En svo þarf að gera hana upp, svo hún verði ekki að andlegu meini.

Ein stærsta áskorunin sem ég hef lent í var þegar ég missti íbúðina mína eftir banka­hrunið og þurfti að flytja heim til mömmu og pabba og búa hjá þeim í þrjá mánuði. Það var mjög mikið högg fyrir sjálfs­myndina og óttinn við að geta ekki skapað börnunum mínum betra líf var mikill. Ég trúði ekki að ég myndi missa heimili mitt. Ég er samt svo heppin að eiga ótrúlega góða fjöl­skyldu sem stendur við bakið á mér og ég þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að eiga ekki í mig og á.

Hins vegar ýfði þetta áfall mjög upp kvíðann hjá mér. Að finna að ég væri ekki örugg sem einstæð móðir. Með tíð og tíma, og með hjálp alls þessa yndislega fólks sem ég hef í kringum mig, komumst við út úr þessu. Sem betur fer. Kvíðinn yfir því að hafa ekki nóg fyrir mig og börnin mín tók stundum yfir, en ég hef verkfæri til að takast á við það sem veldur mér kvíða.“

Þegar maður hefur mis­þyrmt lík­am­anum þá þarf maður að byggja sig aftur upp frá grunni

Sigga átti sitt fyrsta barn tvítug. Hún var hins vegar að nálgast 37 ára aldurinn þegar hún átti fjórða barnið. „Munurinn á að eiga barn núna er sá að ég er ekki eins sjálf­hverf og þegar ég var tvítug. Mér finnst ég ekki alltaf vera að missa af einhverju. Núna er ég viðkvæm fyrir því að missa svefn hahaha … Ég læt það ekki stoppa mig, en ég þarf að vera rosalega meðvituð um það. Það kemur líka út frá átröskuninni, það er viss aftenging við líkamann og virðingar­leysi. Þegar maður hefur misþyrmt líkamanum þá þarf maður að byggja sig aftur upp frá grunni með virðingu að leiðar­ljósi.

Ég þakka samfélags­legum breytingum hversu góðum bata ég hef náð. Og ég sé líka hvernig hugarfar mitt er orðið miklu betra. Mér finnst fjöl­breyti­leikinn vera þannig að allir líkamar eru fallegir. Ég fagna því að fitu­fordómar séu á undan­haldi. Af því að ég er svo grönn þá fæ ég meira línur í andlitið. Ég get ekki einu sinni breytt neinu og húðlæknirinn minn sagði að það eina sem ég gæti gert til þess að fylla í hrukkur væri að bæta aðeins á mig,“ segir Sigga í gríni en segist ekki vilja fara út í umræðuna um aldurs­fordóma. „Það er fallegt að eldast og það er fallegt að það sjáist að þú hafir lifað.

Mér finnst svo gaman að börnin mín fái að sjá mig fertuga að vinna Söngva­keppnina. Það sýnir þeim að maður getur allt sem maður vill. Þau eru búin að vera með mér einstæðri og sjá mig harka svo mikið. Það er því ekki síður persónu­legur sigur að ná þessum árangri.“

Helstu sigrarnir

Við höldum áfram að tala um sigrana hjá Siggu. Hún færir sig til í stólnum og það kemur viss værð yfir hana þegar hún útskýrir stolt að hennar helstu sigrar séu börnin hennar.

„Þau eru stórkostlegar manneskjur, kurteisar og fallegar. Mér er alveg sama hvað þau fá í einkunn í skólanum, bara að þau séu góðar manneskjur. Það er helsta afrekið. Mér þykir líka svo vænt um samband mitt við fjöl­skylduna, því það er ekki sjálf­gefið að maður eigi það.“

Við höfum lifað og hrærst í tón­list­ar­heim­inum alla tíð og það hefur gagn­ast okkur hell­ing

Sigga ólst upp við tónlist. Foreldrar hennar eru tónlistar­menn, en auk þess voru afi hennar, Jón Múli Árnason, og amma hennar, Ragn­heiður Ásta Péturs­dóttir, bæði þjóðþekkt og daglegir gestir á íslenskum heimilum gegnum Ríkis­útvarpið. „Það kom alveg stundum fyrir að ég óskaði þess að fjöl­skylda mín væri hefð­bundnari, að allir væru í dagvinnu og við hefðum getað verið meira heima á kvöldin og um helgar. En svo öfunduðu aðrir mig af því að fá að upplifa þennan heim, gista á hótelum og vera á tónleikum og eiga þekkta foreldra. Við höfum lifað og hrærst í  tónlistar­heiminum alla tíð og það hefur gagnast okkur helling.

Eyþór Gunn­ars­son og Sigga Ey að spila á píanó. Eyþór er þekktur djas­spí­anisti. Aðsend mynd.

Foreldrar mínir hafa alltaf stutt okkur svo mikið. Og amma Sísý á meðan hún lifði. Hún var mér svo mikil fyrirmynd. Hún hafði svo óbilandi trú á mér. Hún sá mig alltaf sem einhverja súper­stjörnu þó að ég hefði aldrei trú á því. Mamma og pabbi sjá líka alltaf meira í okkur en við sjálfar. Ég hef átt alls konar fyrir­myndir í mínu lífi. Þar á meðal eru hinn andlegi kennari Ram Dass, sem ég er rosalega hrifin af, og Alan Watts heim­spekingur og fleiri. Þeir hafa kennt mér mikið um lífið. Ég lít til þeirra, því þeir boða kærleika, jöfnuð og frið, að allir fái að vera þeir sjálfir. Með þeim skoða ég hvernig ég virkja friðinn innan frá mér. Ég laðast að öllum sem breiða út þann boðskap.“

Ekki flott að vera hipp hoppari og hlusta á metal

Við ræðum um tónlistina. Sigga orðar það svo að þær systurnar séu allar frekar „genre-fluid“ á tónlist. „Ég fíla alla tónlist. Ég hlustaði mikið á rapp­tónlist þegar ég var unglingur en á sama tíma fílaði ég Metallica, sem ég þorði varla að viðurkenna þá. Það þótti ekki flott að vera hipp hoppari og hlusta á metalrokk. Ég elskaði t.d. Nirvana og Led Zeppelin og ég hef alltaf elskað kántrí­tónlist. Ég var bara um tvítugt þegar KK frændi kynnti mér tónlist kántrí­söngkonu sem heitir Gillian Welch. Hún er alveg geggjuð og mikill áhrifa­valdur minn og svo elska ég líka raftónlistar­menn eins og t.d. James Blake. Það er engin tónlist sem ég get ekki gefið séns á einhvern hátt. Ef svo er þá er það algjör undan­tekning. Það er viðhorfið sem skiptir mig máli. Ég hugsa það þannig, að allir séu að gera sitt besta þó svo að ég setji það kannski ekki á Spotify-listann minn.

„Heyrðu! Ég er ennþá með kven­manns­rödd, þú getur ekki sett mig í svona djúpa rödd.“

Tónlistar­smekkur okkar systranna er svolítið kántrí- og þjóðlaga­skotinn. Við ólumst upp við það að radda mikið og það er gjöf sem við fengum. Þessi tónlist er tilvalin til þess, þ.e. þjóðlaga­tónlist. Ég er oftast neðri röddin. Þó að ég geti sungið alls konar raddir þá funkera ég oftast best í neðstu röddinni. Elín er í miðjunni og Beta í efstu röddinni. Pabbi setur mig stundum í óþarflega lágar raddir og þá er ég er bara: „Heyrðu! Ég er ennþá með kven­mannsrödd, þú getur ekki sett mig í svona djúpa rödd.“ Mér finnst samt visst „power“ í því að syngja neðstu röddina og það á mjög vel við mig.“

Við áttum ekki von á þessu

Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck. Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Gleraugu frá Optical studio. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Talið berst að annríkinu seinustu daga – keppninni og niður­stöðu hennar. Sigga er enn svolítið hissa. „Sérstak­lega af því að við áttum ekki von á þessu. Ekki af því að við hefðum ekki trú á laginu, sem Lay Low samdi, eða að við séum að gera lítið úr okkur sjálfum. Það var meira út af því að lagið okkar er ekki dæmigert júróvisjón-lag.

Það er alltaf gott að koma á óvart, en við fundum síðustu dagana fyrir úrslitin að hjólin voru byrjuð að snúast aðeins með okkur. Við sögðum við Unni, leik­stjórann okkar, þegar við vorum að setja atriðið saman, að við yrðum að vera við sjálfar á sviðinu. Það er partur af því að vera með ADHD. Ég get ekki leikið og ég get alls ekki dansað og sungið á sama tíma. Eina sem Unnur, okkar frábæri leik­stjóri, vildi láta okkur gera var að tengjast mynda­vélinni og vera ekki svona mikið inni í okkar í eigin heimi.

Lovísa er líka svo stórkost­legur laga­höfundur og manneskja. Það er svo mikil fegurð og útgeislun frá henni. Hvort tveggja lagið og textinn höfðaði svo sterkt til okkar. Við fundum svo mikla kvenorku í því. Textinn er um konu sem er í vistar­bandi og er að velta fyrir sér aðstæðum sínum. Vistar­band var notað yfir það þegar fólk átti ekki jarðir eða húsnæði og neyddist til að búa og vinna á bæjum hjá öðrum. Bóndinn réð allri vinnu hjúa sinna og fékk af henni allan arð, hvort sem vinnan var unnin á heimili hans eða utan þess. Ef vinnu­maður fór til dæmis á vertíð, þá fékk bóndinn sem hann tilheyrði allan afla sem vinnu­maðurinn dró úr sjó. Á móti bar bóndi ábyrgð á því að hjú hans fengju fæði, klæði og húsaskjól á ráðningar­tíma þeirra.

Við eigum lausn­ar­bréfið hennar

Langafi okkar talaði mikið um þetta við okkur. Langa­langa­langamma okkar var í vistar­bandi. Við erum öll svo ung í okkar fjöl­skyldu þegar við eignumst börn, þannig að ég var svo heppin að eiga langömmu og langafa og langa­langa­langömmu, langt fram eftir aldri. Við eigum lausnar­bréfið hennar, þar sem hún bað um að losna úr vistar­bandinu. Hún fékk lausn frá vistar­bandinu, en þurfti skilja barnið sitt, sem hún átti með bóndanum, eftir á bænum. Það var vegna þess að hún gat ekki séð fyrir því og taldi það geta átt betra líf þar. Bóndinn átti sína konu og fjöl­skyldu og þau ólu fram­hjáhalds-barnið upp saman.“

Elskar að lagið sé „love/hate“-lag keppninnar

Þegar Sigga er spurð um hin lögin sem komust áfram í keppninni, þá tekur hún það fram að hún elski það, að þeirra lag sé það sem kalla má „love/hate-lagið“ og að fólk sé yfirhöfuð að hlusta á það og mynda sér sterka skoðun á því – viðbrögðin séu oftast samt jákvæð. „Annars elska ég portúgalska lagið með henni Maro. Ég hlakka svo til að hitta hana. Ég mun halda áfram að hlusta á lagið hennar þegar Eurovision er búið. Og svo finnst mér hollenska lagið mjög flott, svona Lana Del Rey fílingur í því. Ég held að keppnin verði lituð af átökunum í Úkraínu. Það er mikilvægt að boða frið með öllu sem við gerum.

Það er líka svo geggjað að sjá fólk á öllum aldri vera að hlusta á okkur. Og ég verð að segja að ein athugasemd á Twitter fékk mig til að brosa. Þá sagði ein að hún hefði grátið sig í svefn yfir úrslitum keppninnar. Hún hafi svo sótt sjö ára son sinn í pössun daginn eftir og hann sagt henni að hann hefði kosið systurnar átta sinnum. Við erum greini­lega ekki með sama tónlistar­smekk, sagði konan.

Annars elskar dóttir mín, sem er þriggja ára, Reykja­víkurdætur og biður mig reglulega um að hlusta á lagið sem og öll hin lögin líka. Í gær byrjaði t.d. dagurinn okkar á því að hlusta þrisvar sinnum á öll lögin í keppninni og svo vildi hún færa sig yfir í sjón­varpið og horfa á þau öll þar aftur.“

Mesta „boss lady“ sem ég hef kynnst

Áður en við klárum úr bollunum og ljúkum spjalli okkar vill Sigga minnast á eitt. Hún talar um hvað hún hafi verið ánægð með RÚV og kven­orkuna, sem þar er nóg af. „Það er mikill viðsnúningur á RÚV. Pródúsentinn, hún Salóme, er brjál­æðislega klár og sama á við um Ragnhildi, sem er mesta „boss lady“ sem ég hef kynnst. Hún er rosalega dugleg og hefur fallega sýn á allt sem hún gerir. Hún er svo mikið á bak við allt. Annars var hver einasta manneskja frábær í RÚV-teyminu. Ég hef aldrei kynnst öðru eins. Partur af því að mig langaði til þess að sigra var til þess að fá að halda áfram að vinna með þessu frábæra fólki.

Við erum stað­ráðnar í að ná eins langt og við mögulega getum í keppninni. Við viljum nýta okkur hana sem stökkpall til að vekja athygli á tónlistinni sem við elskum. En hvað sem gerist á þessu ferðalagi, þá erum við að lifa draum sem nú hefur ræst, umkringdar dásamlegu fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur