Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ómar tapaði gegn Mannlífi vegna frásagnar um að hafa ofrukkað konu: – Siðanefnd sýknaði í málinu

Ómar R. Valdimarsson
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Ómar R. Valdimarsson lögmaður átti ekki erindi sem erfiði fyrir siðanefnd Blaðamanna­félags Íslands. Ómar kærði Reyni Traustason, ritstjóra Mannlífs, til nefndarinnar vegna umfjöllunar Mannlífs á málum Ómars. Voru kæru­atriðin þrjú en tveimur þeirra var vísað frá og því þriðja hafnað.

Siða­nefndinni bárust þrjú kæru­atriði úr sömu umfjöllun Mannlífs þann 18. febrúar síðastliðinn. Fyrsta kæru­atriðið varðaði þá endursögn Mannlífs að Ómar hafi stundað skattsvik með því að þiggja greiðslur skjólstæðinga sinna sem hann gæfi ekki upp til skatts. Annað kæru­atriðið snéri að umfjöllun þess efnis að Ómar hefði hótað að stefna netverja vegna mynd­birtingar af Ómari á Facebook þann 31. janúar síðastliðinn. Þriðji og síðasti kæru­liðurinn varðaði ásökun um ákúrur siða­nefndar lögmanna fyrir að ofrukka veikan skjólstæðing.

Sjá einnig: Ómar vændur um skattsvik

Fyrstu tvö kæru­atriðin vörðuðu efni sem hafði áður birst hjá vefmiðlinum Frettin.is en þar kom fram meðal annars vitnað í færslu einstaklings á Facebook og birt mynd af Ómari og hann vændum um að bjóða skjólstæðingum að borga undir borðið til að forðast skatt­greiðslur.

Í umfjöllun siða­nefndar Blaðamanna­félagsins um málið segir að fyrstu tvö kæru­atriðin snúi að endursögn Reynis Trausta­sonar í dálki, sem kallast Orðrómur, á efni sem þegar hafði birst hjá Frettin.is. Því beri að vísa þeim kæru­atriðum frá, án þess að siða­nefndin taki afstöðu varðandi efnið en eðlilegra hefði nefndinni þótt að Ómar beindi kærunni að Frettin.is en ekki Mannlífi. Þriðja og síðasta kæru­atriðinu hafnaði siða­nefndin á þeirri forsendu að Reynir hefði þar farið með rétt mál og teljist ekki hafa brotið siða­reglur í því atriði. Það snerist um að Ómar hefði ofrukkað veikan skjólstæðing sinn.

Sjá einnig: Ómar braut reglur – Lands­réttur taldi vinnu­brögðin ámælis­verð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá