Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Janice Arnason, fjallkona ársins 2022 í Kanada: Íslenskar rætur fjallkonunnar vestra eru sterkar

Janice Arnason
Janice Arnason

Kona í gervi fjall­konunnar kom fyrst fram á Íslendinga­deginum í Winnipeg í Kanada árið 1924 en hins vegar var fyrsti Íslendinga­dagurinn haldinn í Winnipeg árið 1890. Frá árinu 1934 hefur Íslendinga­dagurinn hins vegar verið haldinn hátíð­legur í Gimli. Janice Árnason var þar nýlega valin fjallkona ársins 2022. Hún er í raun og sann íslensk í húð og hár sem og eigin­maður hennar, Cameron Arnason, en bæði eru afkomendur Íslendinga sem fluttu búferlum vestur um haf á sínum tíma.

Búningur fjall­konunnar íslensku í Kanada er skírskotun í Ísland. Hvíti kjóllinn jöklarnir og græna skikkjan sveitin. Höfuð­búnaðurinn snæviþakin fjöllin og í kórónunni er skjaldar­merkið. Fjallkona er útnefnd árlega þar vestra og er þá kona valin sem hefur verið í tengslum við Ísland og frætt aðra um sögu forfeðranna á Íslandi og viðhaldið íslenskri menningu og þjóðar­arfi. „Margt hefur breyst í áranna rás en að viðhalda menningu og þjóðar­arfi Íslands hefur alltaf verið í forgangi. Andi Íslands lifir hér. Við sýnum hugrekki forfeðra okkar virðingu; þeirra sem fluttu frá Íslandi sem var landið sem þeir elskuðu til að fara annað þar sem þeim fannst að næstu kynslóðir gætu blómstrað meira. Það er heiður fyrir mig að vera í hlutverki fjall­konunnar í ár.“

(Mynd: The Icelandic Festival of Manitoba; „Islend­inga­dag­ur­inn“.)

Skyr, lifrarpylsa, hangikjöt og rúllupylsa

„Ég er afkomandi fyrstu og annarrar kynslóða íslenskra innflytjenda. Móðir mín, Guðný Johnson Narfason, var dóttir Guðríðar Böðvars­dóttur sem eftir að hafa misst föður sinn kom til Nýja Íslands ásamt tveimur systur sínum árið 1914 og settist að í Húsafelli rétt hjá Riverton með afa mínum, Bjarna Jónssyni. Afkomendur ömmu Guddu og Bjarna afa búa enn á Húsafelli. Guðríður fæddist á Akranesi og flutti síðar til Hafnar­fjarðar eftir að móðir hennar, Alfífa Halldórs­dóttir, lést. Langafi, Böðvar Jónsson, drukknaði ásamt syni sínum þegar þilskipið Geir fórst árið 1912.

Pabbi, Óli Narfason, er sonur Guðmundar Erlends og Guðrúnar Ísfeld Narfason sem voru bændur á Víði­völlum í Minerva á landi þar sem langafi minn, Magnús, hóf búskap ásamt konu sinni, Emmerentiana, árið 1897. Langafi minn, Magnús Narfason, var frá Traðar­koti á Vatnsleysu­strönd og langamma mín, Emmerentiana, var frá Skammadal skammt frá Vík.“

White Rock þar sem margir íslenskir land­nemar komu að árið 1875.

Janice segir að í æsku hafi íslensk menning og arfleifð verið ríkjandi á heimilinu. „Mamma og pabbi höfðu talað íslensku sem fyrsta mál þar til þau fóru í skóla. Það leið ekki sá dagur sem ég heyrði ekki íslensku talaða á heimilinu og töluðu mamma, pabbi og ömmur mínar og afar saman á íslensku. Skyr, lifrar­pylsa, hangikjöt og rúllu­pylsa voru alltaf til og pönnu­kökur, kleinur og vínar­terta voru uppáhalds­sætabrauðin.“

Við lærðum íslensk þjóð­lög auk þess að læra fram­burð orð­anna í text­unum.

Tónlist spilaði stóran þátt á uppvaxtar­árunum og segir Janice að það hafi verið mikilvægt fyrir foreldra hennar að þau systkinin væru í Íslenska barna­kórnum sem fjallkona ársins 2021, Anna Stevens, stjórnaði. „Við lærðum íslensk þjóðlög auk þess að læra framburð orðanna í textunum. Við komum reglulega fram á íslenskum hátíðisdögum eins og á sumar­daginn fyrsta. Mörgum árum síðar stjórnaði ég Íslenska barna­kórnum þegar haldið var upp á aldar­afmæli Íslendinga­dagsins og það var yndislegt að geta kennt dætrum mínum og frænkum þessi íslensku þjóðlög sem urðu þekktar sem Valkyrjurnar og komu þær fram á mörgum menningar­hátíðum á svæðinu og í Norður-Dakóta.“

Rætur barn­anna okkar þriggja – Signýjar, Heiðu og Stefans – eru alís­lenskar.

Í föðurætt voru forfeður eigin­manns Janice, Cameron, frá Villingadal í Eyjafirði og Tjörn og nefnir hún Arngrím málara. Í móðurætt voru þeir frá Akureyri. „Rætur barnanna okkar þriggja – Signýjar, Heiðu og Stefans – eru alíslenskar.“

Janice og dætur hennar á Íslend­inga­deg­inum á sínum tíma.

Janice og Cameron voru á sínum tíma forsetar Íslendinga­dagsins og buðu þá íslensk stjórn­völd þeim um að vera gestir á 17. júní hátíðar­höldunum í Reykjavík auk þess sem þeim var boðið á Vesturfara­setrið á Hofsósi.

„Við fengum konunglegar viðtökur og erum svo þakklát fyrir þetta frábæra tækifæri og fá að heimsækja staðina þar sem forfeður okkar bjuggu. Við ákváðum að fram­lengja dvöl okkar um 10 daga og á þeim tíma hittum við marga ættingja okkar í Reykjavík og Akureyri og mættum mikilli gestrisni. Við erum í sambandi við margt af þessu fólki og vonumst til að hitta það aftur. Hápunktur ferðarinnar var að heimsækja bæinn þar sem langafi Cameron, Jóhann Árnason, bjó en hann hafði yfirgefið heimili sitt í Eyjafirði til að flytja til Kanada.“

Janice fór svo aftur til Íslands fyrir nokkrum árum þegar frænka hennar, Dilla Sigurlína Narfason, ákvað að fara til Íslands til að heimsækja ættingja. Um 10 fjölskyldu­meðlimir slógust í förina. Dilla sá um allt skipulag svo sem hvert yrði farið og hvaða ættingja ætti að heimsækja. „Það var stórkostlegt fyrir mig að kynnast sögu forfeðra okkar.“

(Mynd: The Icelandic Festival of Manitoba; „Islend­inga­dag­ur­inn“.)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur