Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fámennur hópur mótmælti við minningamessu Rússa í Fossvogskirkjugarði: „Sjá þessa fjóra aumingja!“

Prestur Réttrúnaðarkirkjunnar
Prestur Rét­trún­að­ar­kirkj­unnar Mynd: Mannlíf

Um tuttugu Rússar söfnuðust saman við minnis­merkið Von í Foss­vogs­kirkjugarði og minntust ættingja sem féllu í seinni heim­styrjöldinni. Í dag er Sigur­dagurinn mikli í Rússlandi þar sem fólk fer í minningar­messu til minningar um fallna ættingja úr stríðinu.

Nokkrar konur mættu og stóðu skammt frá með mótmæla­spjöld gegn innrás Rússa í Úkraínu. Veittust nokkrir Rússar að mótmælendunum með orðum.

Blóm við minn­is­varð­ann
Þrjár af fjórum mót­mæl­endum með skiltin sín.

Timur Timofey Zolotuskiy, prestur rétt­trúnaðar­kirkjunnar á Íslandi fór með bænir og söng með viðstöddum. Lögreglan var áberandi á svæðinu en boðað hafði verið til mótmæla í kirkju­garðinum í skyndi og því búist við nokkrum fjölda. Aðeins fjórar konur sáu sér fært að mæta með svo stuttum fyrirvara en þær stóðu þögular á bíla­stæðinu með mótmæla­skilti í hönd. Er fólk tók að týnast úr minningar­messunni létu sum þeirra í ljós skoðun sína á mótmælendunum. „Sjá þessa fjóra aumingja! Við erum massi en sjá ykkur!“ sagði ein rússnesk kona sem gekk framhjá þeim. Svöruðu konurnar ekki en lyftu þess í stað skiltunum hærra.

Timur Timofey Zolotuskiy fer með bæn.

Vaninn er að sendi­herra Rússlands á Íslandi mæti á þessa samkomu ásamt prestinum en að sögn lögreglunnar mætti hann eða starfs­menn sendi­ráðsins um klukkan 10 í morgun og stoppuðu stutt við. Hafði presturinn óskað eftir því að halda þessu aðskildu þetta árið.

Í samtali við blaðamann Mannlífs sagði ein af þeim sem mótmæltu, rússnesk kona sem búið hefur á Íslandi síðustu 15 árin að „að halda upp á þennan dag hátíð­legan í Rússlandi í dag, við þessar ástæður, er eins og að hrækja framan í fortíð, nútíð og framtíð landanna tveggja. Fortíð, af því að stríðið í Úkraínu svifti hetjur seinni heimsstyrjladar, Rússa og Úkraínu­menn sem börðust hlið við hlið, þeirra heiður með því að eyði­leggja allt sem þeir áorkuðu. Nútíð af því að hver dagur fyrir venjulegt fólk bæði í Úkraínu og Rússlandi fer meira og meira að líkjast martröð. Framtíð, af því að sársauki og hatur mun fylgja næstu kynslóðum bræðra­þjóðanna beggja í marga áratugi.“

Sigur hvað sem það kostar?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur