Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Brynjar Níelsson blandar sér í umræðu um sölu Íslandsbanka: „Varlega í söluferli sumarhúsanna“

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, aðstoðar­maður innan­ríkis­ráðherra, hefur blandað sér í umræðuna um sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka.

Það vakti nokkra athygli í gær þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fjallaði um söluna með líkinga­máli þar sem ekki var verið að selja hlut í banka heldur sumar­bústaði í eigu VR með afslætti í samtali við Vísi. Hann sagði síðan að ef hann viðhefði slíka vinnu­brögð yrði honum ekki sætt sem formanni, en Ragnar hefur kallað eftir afsögn Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra vegna málsins, en Mannlíf fjallaði um málið í gær.

Boðinn var út um fjórðungs hlutur ríkisins í bankanum og var umfram eftir­spurn gífurlega mikil. Sölu­verðið var á 117 kr hver hlutur, en á sama tíma var verðið skráð 122 í Kaup­höllinni. Afsláttar­verðið í ljósi umfram eftir­spurnarinnar hefur valdið mikilli óánægju, sérstak­lega þar sem að bréfin hækkuðu strax um tvö prósent svo gróði fjár­festanna strax á fyrsta sólar­hring orðinn nokkur.

Sumarhúsamarkaðurinn gæti farið á hliðina

Brynjar heldur áfram með líkingu við sölu sumarhúsa en sagan er aðeins önnur en hjá Ragnari. Brynjar segir sögu af því að stéttar­félagi fái í hendur á sjöunda þúsund sumarhúsa sem eru metin á um tvö hundruð milljarða, í uppgjöri við erlenda aðila.

„Stéttar­félagið hyggst selja sumar­húsin þar sem stéttar­félagið vill ekki vera fasteigna­félag í samkeppni við félags­menn sína. Auk þess liggur fyrir að stéttar­félagið þarf á fjármunum að halda þar sem það hefur verið rekið með halla síðustu árin. Halli síðasta árs var til að mynda 288 milljarðar króna. Ljóst þykir að varlega þurfi að fara í söluferli sumar­húsanna svo sumarhúsa­markaðurinn fari ekki á hliðina,“ segir Brynjar í færslu á Facebooksíðu sinni.

Í sögunni er sett á laggirnar sérhæfð stofnun til að sjá um söluna. Stofnunin fær til liðs við sig fjölda sérfræðinga, innlendra sem erlendra, sem sérhæfa sig í sölu sumarhúsa. Að fenginni ráðgjöf sérfræðinganna er afráðið að selja sumar­húsin á 2-3 árum, í nokkrum áföngum. Ferlið er kynnt opinber­lega fyrir öllum hags­munaðilum og ekki síst fyrir stétta­félaginu sjálfu, sem samþykkir fyrir­komulag sölunnar.

Hverjir eru að krefjast afsagnar?

„Í fyrsta áfanga eru seld sumarhús fyrir um 55 milljarða króna. Viðskiptin eru talin viðskipti ársins af þar til bærum aðilum, sem best þekkja til sumarhúsa­markaðarins. Þegar kemur að næsta áfanga, 9 mánuðum síðar, hafa sumarhús almennt séð hækkað töluvert í verði, eins og aðrar fasteignir. Hvert sumarhús í eigu stéttar­félagsins er nú metið að meðaltali á 40 milljónir króna og hafa sumar­húsin aldrei verið verðlögð hærra. Það liggur þó fyrir að kaupendur sumarhúsa eiga því að venjast að fá einhvern afslátt, jafnvel 5-10%, ef mörg hús eru keypt í einu lagi,“ segir Brynjar.

Síðan eru seld 1.380 sumarhús fyrir 53 milljarða stað­greitt, með 4,1% afslætti af ásettu verði sem jafn­gildir því að hvert sumarhús hafi verið selt á 38,4 milljónir króna.

„Krafist er afsagnar formanns stéttar­félagsins, af aðilum sem:

  1. a) hafa ekki kynnt sér málið,
  2. b) hafa kynnt sér málið en hafa – kannski eðlilega – ekki nægilega þekkingu til að geta skilið það, eða
  3. c) hafa kynnt sér málið og skilja það en kjósa að kalla það spillingu, af því þeir telja það sér til fram­dráttar,“ segir Brynjar að lokum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá