Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Segir nýjan meirihluta vera kláran: „Leiddi flokkinn til lökustu niðurstöðu sögunnar“

Ólafur Arnar­son, fyrr­verandi for­maður Neyt­enda­sam­takanna telur að flest bendi til að nýr meirihluti í borginni sé klár. Í pistli sínum segir hann að það þurfi mikið til að það fari úrskeiðis til að fjögurra flokka meirihluti verði ekki niður­staðan í Reykjavík.

„Samfylking, Framsókn, Píratar og Viðreisn munu mynda hann með 13 borgar­fulltrúa á bak við sig. Ætla má að formlegar viðræður hefjist á næstu dögum en verið er að vinna að þessari niður­stöðu að tjalda­baki.“

Ólafur virðist lítt hrifinn af oddvitum sumra flokka í borgar­stjórn og segir þá hafa farið mikinn í fjöl­miðlum og komið fram í ýmsum viðtölum og haft lítið markvert að segja. „Sumum finnst greini­lega skemmtilegt að baða sig upp úr athygli fjölmiðla og aðrir eru að auki að reyna að planta einhverjum viðhorfum sem hafa ekkert að segja varðandi raun­verulega meirihluta­myndun.“

Hildur illa læs á umhverfi sitt

Hann skilur jafnframt ekki Hildi Björns­dóttur, sem leiddi lista Sjálfstæðis­flokksins. Hann segir hana hafa „leitt flokkinn til lökustu niður­stöðu sögunnar og var sjálf strikuð úr af nærri 300 flokks­mönnum, hefur reynt að koma því inn hjá fjöl­miðlum að flokkur hennar eigi raun­verulega möguleika á að komast í meirihluta­samstarf við aðra flokka í borginni. Þetta er ekki rétt. Hér verður ekki fullyrt um það hvort Hildur er að reyna að blekkja eða hvort hún er svona illa læs á umhverfi sitt.“

Fer ekki í meirihlutasamstarf við aðra flokka

Ólafur telur Sjálfstæðis­flokkinn ekki fara í meirihluta­samstarf við aðra flokka í borginni. „Fyrir liggur að Píratar og Sósíalista­flokkur Íslands hafa ítrekað lýst því yfir að þeir vilji alls ekki vinna með Sjálfstæðis­flokknum. Þá hafa Vinstri græn dregið sig í hlé frá stjórnmála­starfi í borginni og ætla að meta stöðu sína, sleikja sárin og reyna að komast að því hvers vegna þeim var hafnað í Reykjavík – og reyndar algerlega hafnað í flestum helstu byggðar­lögum landsins, eins og t.d.í Kópavogi, Hafnar­firði, Garðabæ og Mosfellsbæ. VG er því ekki að fara að mynda neinn meirihluta í Reykjavík.“

HÉR er hægt að lesa pistillinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur